Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1963, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1963, Blaðsíða 4
Stórbáturinn Signa í baráttu við storm og sjó. Það stingur dálítið í stúf við hið til- tölulega lága og frjósama strand- lendi. Þegar hinir ógurlegustu haust- stormar geisa, skella brimöldurnar með miklu afli og drunum á þessu lóð rétta bjargi, og brimlöðrið kastast marga metra í loft upp. Brimið og sterkur straumur fjarðarins mynda bullandi hringiðu neðan við bjargið. Hversu oft sem ég hef siglt fram hjá „Ivnarssuit", hefur mér í hvert sinn orð ð það á, að hrista höfuðið í undr- un, þegar ég hef virt fyrir mér lóð- réttan bjargvegginn og leitt hugann að því, hvernig það gæti átt sér stað, að maður klifí þetta fimmtiu metra háa bjarg; en það' gerðist fyrir rúmum sjötíu árum, þegar stórbáturinn Signa brotnaði í spón við hamravegg inn í suðvestan stormi. f hvert sinn hef ég orðið að gefast upp við að finna lausn á því, hvernig þetta gat átt sér stað. Það er ekki mögu- legt að greina hinar m.nnstu ójöfnur í hamraveggnum, sem gætu gefið von um nokkra fóffestu, hvað þá meira, sem nauðsynleg er til að klífa bjargið, og ég hef fundið kuldahrollinn læs- ast um mig við hugsunina eina. Það er einkennilegt, að í fyrsta skipti sem ég kom í námunda við bjargið — fyrir um 30 árum — var ég í hinum gamla, hálfopna lækna- báti Jakobshafnar, og stýrimaðurinn á honum var einmitt sá maður, sem hafði klifið bjargið 17 ára gamall og bjargað þannig lífi sínu og tveggja annarra í skipbrotinu. Severin Krist- offersen hét hann. Staðurinn í bjarginu, þar sem hann kl'ejf upp_ hefur siðan þá verið kallaður „Siva- lip majuarfik“ (Severins-klif). Þetta eðllega nafn mun halda áfram að lifa gegnum kynslóðirnar, þótt hin upprunalega orsök fyrir nafngiftinni gleymist. Severin gat ekki talizt til skraf- hreifinna manna, og kunnátta mín í grænlenzku hefur varla verið meiri en svo, að ég hafi getað skil'ið nema lítið eitt af því litla, sem hann ef til vill hefði viljað segja um skipbrotið. Ég fékk samt sem áður strax þá til- finningu, að björgun hans hlyti að standa í sambandi við eitthvað óskil- greinanlegt, eitthvað, sem hann sjálf- ur setti fullkomlega eðlilega í sam- band við yfirnáttúrlega krafta. Mörgum árum síðar dvaldist ég aftur á þessum slóðum og „Ivnar- ssuit“-bjargið blasti aftur við augum mínum. Og í hvert sinn_ er ég fór fram hjá þessum drungafega og ógn- vekjandi hamravegg, fór kuldahrollur um mig. Um leið vaknaði hjá mér sterk löngun til þess að fá að vita nán ar um einstök atriði í skipbrotinu. En þegar hér var komið sögu, var Sev- erin löngu íarinn til frelsara síns, og tilraunir mínar til þess að komast í samband við fólk, sem hafði haft fregnir — í nálægð eða fjarlægð — af skipbrotinu, reyndust því miður árangurslausar. Þegar ég nú af litlum efnum tekst samt sem áður á hendur að segja frá skipbrotinu, er það aí þeirri ástæðu, að bjargið verkaði stöðugt á mig sem óleyst gáta, og mér fannst að leyndardómur þess mætti ekki hverfa í þoku gleymskunnar, heldur ætti að reyna að skýra hann. Og í lei.t minni að einhverju, sem unnt væri að festa hendur á í þessu skyni, rakst ég að endingu á 72 ára gamlan uppgjafa- kennara í „Qutdligssat“, en hann var upprunalega frá „Tartunaq" og hét Rasmus Thomsen. Hann hafði samt sem áður ekki yfir að ráða ejgin þekkingu frá fyrstu hendi á skipbrot- inu, þar sem hann fæddist sama ár og það átti sér stað. En í litlu byggð- arlagi, þar sem flestir dagar eru öðr- um líkir og fólk er nær alltaf upp- tekið við að afla lífsnauðsynjá, mun slys — eins og það, sem hér um ræð- ir — verða í mannaminnum í mörg ár og mjög til umræðu um langan aldur. Rasmusi hafði að sjálfsögðu verið sagt frá öllu viðvikjandi slys- inu þegar á barnsaldri, en vegna aldurs hans var frásögn hans mjög gloppótt og ófullkomin. Hann mundi bezt eftir því, að hann hafði ásamt öðrum díengjum farið til slysstaðar- ins á báti, þegar lágsjávað var og stillt veður, og innbyrt nokkra kola- mola, sem veri.ð höfðu í lest skipsins. Og í einhverjum þessara ferða höfðu þeir fundið ryðgaðan framhlaðning og hluta úr kolaofni, sem hafði verið í káetu áhafnarinnar á Signu. Ég var svo heppinn að komast í samband við son Severins í Jakobs- höfn. I-Iann hét Pétur Kristoffersen og var fimmtíu og fimm ára gamall, sfol'tur og dugmikill selveiðimaður, og var hann fús til þess að segja frá því, sem hann mundi úr frásögn föð- ur hans af skipbrotinu og hinni yfir- náttúrulegu björgun hans. Hann sagði frá föður sínum með rólegum og einlægum hætti; faðir hans hafði alltaf verið mjög þögull og innilok- aður maður, sem aðeins sjaldan minnt ist á þennan örlagarika atburð_ sem 508 TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.