Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1963, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 09.06.1963, Blaðsíða 6
Gamli kennarinn Rasmus Thomsen til vinstri, en til hægri höfundur greinarinnar, Hans Jacobi. Þeir skutu líka strax út árum tú þess að fá eins m;kinn skrið á bátinn og mögulegt var. Það var von þeirra að ná til Ritenbenks áður en myrkrið félli yfir og gerði siglinguna erfiðari. En þeir höfðu ekki siglt meira en góða idukkustund, þegar byrjaði að hvessa af suðvestri. Fljótlega reis sjór svo mikið, að þeir áttu í erfið- teikum með að halda réttri stefnu. Samtímis því, að stormurinn magn- Jiðist, skal'l á krapadrífa, svo að þeir áttu illt með að sjá, hvar þeir fóru. Báturinn var þunglestaður og lá und- ir stöðugri 4k'jöf. Farþegarnir tveir og þeir af áhöfninni, sem ekki þurftu að vera uppi við, fóru niður undir þiljur. Formaðurinn gerði sitt ýtrasta til þess að halda bátnum upp í vind- inn i þeirri von að ná til „Landa erfðaprinsins“ — sem svo voru köll- uð — og leita þar neyðarhafnar. En stormurinn óx í sífell.u, og ógerningur var að halda skipinu lengur upp í vindinn. Og það hrakti því æ lengra norður á bóginn í áttina að „Nugs- suaq“-skaganum. Sjóirni.r skuil'u yfir skipið með svo míklu afli, að formað- .urinn varð að binda sig fastan við stórmastrið, ávo að honum skolaði ekki fyrir borð. Því nær sem dró „Nugssuaq“, þeim mun hættulegri varð för skipsins, því að skyggni minnkaði stöðugt, og það var miklurn erfi.ðleikum bundið að komast hjá árekstri við hina mörgu ísjaka, sem rak fyrir vindi og sjó út „Tarsuka- taq“-fjörðinn. Veðurhæðin var nú orðin svo mi'kil, að sjóirnir riðu stöð- ugt yfir skipið, O'g það hafði vart rétt sig af einum sjónum, þegar ann- ar brotnaði á því. Augljóst var, að skipið gat ekki staðizt þennan ágang til lengdar, og formaðurinn reyndi án árangurs að stýra því inn í litla vík, „Pakituarssuq", rétt austan við bjarg- ið. Við þessa tilraun reið að slík stormhryðja, að stórmastrið brotnaði með miklum bresti, féll í sjóinn og reif seglbleðlana með sér, — um leið hallaðist skipið svo geigvænlega, að formaðurinn heFði farið sömu leið og mastrið, hefði hann ekki verið bundinn við stúfinn, sem eftir stóð. Áhöfnin reyndi árangurslaust að losa skipið við brakið, sem hékk við það og gerði allar frekari tilraunir til að komast í hlé, að engu. Þegar næsti brotsjór reið að skipinu, kast- aðist það með mikl'um 'brestum að kletti, sem stóð upp úr sjónum fast við lóðréttan bjargvegginn. Um leið og skipið tók niðri, féll formastrið, og öldurnar skullu yfir sökkvandi ski.pið, þar sem mennimir stóðu al- teknir skelfingu og gátu ekkert að- hafzt til að koma í veg fyrir skip- brotið. En rétt í því, að stór alda slengdi ski.pinu upp við klettinn, stukku tveir af áhöfninni, Severin O'g Asafe, upp á hann og tókst að kippa litla drengnum, Anton Zethsen, með sér. Móðir hans gerði einnig tilraun til þess að stökkva, en hún féll aftur yfir sig með skelfingarópi og hvarf í bylgjurnar ásamt skipinu og þrem- ur skipsmannanna. Mennirnir tveir á klettinum héldu sér með höndum og fótum á klett- inum, 'Sem stöðugt gaf yfir, og þar hlutu þeir að verða vitni að því, er félagar þeirra og móðir drengsins hurfu í brimið, án þess að þeir gætu rétt þeim hjálparhönd. Asafe og drengurinn voru gjörsam lega lamaðir af þreytu og taugaáfalli, og Severin var alljóst, að vera þeirra á klettinum var gjörsamlega vonlaus, því að þeim væri ekki unnt að halda lffi lengi, holdvotir eins og þeir voru og hvergi skjól að finna fyrir stormi og snjó. Það var heldur ekki minnsta von til þess, að þeir fyndust þarna á klettinum. — Severin fylgdi lóðrétt- um bjargveggnum með augunum, en hann gat rétt greint útlínur hans í hríðinni, því næst lét hann þau hvarfla út yfir stormbarinn hafflöt- inn. Að því búnu kraup hann á kné og bað til guðs um hjálp, beindi síðan augunum enn .á ný að bjarg- veggnum. Hinir tveir féllu nú líka á kné og báðu langa, innilega bæn. Severin vildi ekki gefast upp, og hann rétti hendur til himins í von um að hljóta styrk þaðan. Er hann hafði kropið þannig nokkra stund, Framhald á bls. 525. 510 TÍMINN — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.