Tíminn Sunnudagsblað - 15.09.1963, Síða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 15.09.1963, Síða 6
hafi sagt, að hann mundi vart hafa verið einhlítur að koma Illuga fyr- ir, ef hann hefði ei hlotið aðstoðar karlsins, þvi að Illugi hefði verið hamramasti óvættur, sem hann hefði þekkt. — Og endar svo þessi saga“. Næsta saga er skrásett af Runólfi i Vik. „Svo er sagt að prestur sá hafi þjónað á Kirkjubæjarklaustri sem Iilugi hafi heitið; var hann kallað- ur fjölkunnugur og yfirhöfuð hafi hann verið mjög óvinsæll. Hann skal af einhvörjum atburðum hafa misst prestinn og hafi þá séra Magnús fengið brauðið og komizt í að bera síra Illuga út; hafi þá Illugi verið orðinn blindur og þeg- ar hann hafi verið út borinn hafi hann hrækt í allar áttir um leið og hann fór út úr húsunum, en þá hafi Magnús prestur haft svarta vettlinga á höndum og þurrkað með þeim hrákana Illuga prests jafnóðum, en í bæjardyrakampinn hafi hrákinn lent inn í holu milli steina svo Magnús prestur náði þar ekki til að þurrka og hafi sá kampur litlu síðar hrunið niður. En þegar Illugi var út kominn skal hann hafa beðið síra Magnús að bera sig að skilnaði í kringum kirkjuna. Því skal Magnús prestur hafa tekið vel, en í þess stað hafi hann látiö bera Hluga í kringum hjall, sem Illugi átti og hafi þá hjallurinn sokkið. — Ekki er þess getið að þeir hafi átt fleira saman í það sinn. En Illugi skal hafa far- ið eitthvað langt burtu, én hafi jafnan síðan hatað séra Magnús og sent honum fjarska margar send ingar, en prestur hafi aldrei verið varbúinn við þeim. Loks er sagt, að Magnús prestur hafi lagzt til svefns og sofnað, en kona hans hafi þá verið að skammta graut utar við dyr í sama húsi sem prestur svaf í; hafi hann þá vaknað við það að kona hans hafi sagt: „Harðar klauf ir Illuga", og hafi hún þá dáið á sömu stundu, en grár hrútur hafi gengið innar á mitt gólfið. Segir þá sagan að prestur hafi risið upp í flýti og kveðið vísu þessa: „Stattu kyr á gólfi, grár, í guðs nafni ég særi þig. Hrærðu þig ekki, heljar ár, en herrann Jesús styrki mig“. Svo er sagt að vísurnar hafi verið alls sex, en grái hrúturinn hafi ver ið fyrrnefndur Illugi afturgenginri; og að aldrei hafi oröið vart við hann síðan“. Magnús Grímsson skrásetur þetta fróðleikskorn „eftir sögusögn Síð'umanna á ferð 1847“: „Illhugi hét prestur á Kálfafelli á Síðu. Hann lét eitur í sakramentis vinið og ætlaði að drepa með því óvin sinn, en tilræðið komst upp. Tóku bændur þá Illhuga prest hönd um og fluttu hann upp á Kálfa- fellsheiði þangað sem nú heitir síð- an Illhugatorfa. Vita menn ekki um Illhuga þann síðan“. Og þá er kominn tími til að vita eitthvað og gæta nánar að hver Illugi var. Q i Það situr miðaldra klerkur í kamesi sínu norður á Presthólum eitt kvöld í skammdeginu og er eitthvað að þylja; þetta er nálægt aldamótunum 1600. Hann hefur samið heilræðabálk í ljóðum, 84 erindi; og þótt þau kunni að skír- skota til allra manna jafnt er einni veru í heiminum sérstaklega ætlað að geyma þau sér í minni. Við hné hans dvelur nefnilega dá- lítill drengur: __ Óskaráðin, arfi minn, ætla ég þér að bjóða, huggast ég við heiðurinn þinn, hafðu dagana góða. Láttu hvorki hold né heim hefta ráði þínu, að lokka þig frá lausnara þeim, sem leysti þig frá pínu. Hvar þú lítur ljótan sið og lymskufulla hrekki soddan breytni sjáðu við og samsinntu því ekki. Heimskur maður hefndar snar og hyggur skaða að vinna þó orkað fái hann ekki par til illskuverka sinna. Dáruskap og heimsins háð hjá þér skaltu leiða, forðast þú með fullri dáð ferlega munnsins eiða. Ef yndinu því sem auðnan gaf óðum fyrir þér hallar þolinmóður þreyðu af þrautir lífsins allar. Varla mun höfundurinn, Jón Bjarnason Presthólaklerk óra fyrir þeim þrautum sem „heimskir menn og hefndar snarir“ eiga eftir að leggja fyrir piltinn; og enn síður getur hann rennt grun í þau firn sem munnurinn á mönnum er í standi til að eigna syni hans eftir tvö til þrjú hundruð ár. Hann von- ar allt hið bezta um breytni sonar síns og breytni annarra við hann, er ánægður nokkuð með vel kveöna heilræðarímu sína og veit ekki að það er Galdra-Illugi ,sem tekur við henni. Illugi Jónsson, prests Bjarnason- ar mun hafa fæðzt um 1590 norður í Reykjadal. Veturinn 1611—12 er hann í Skálholti, og hefur þá lokið námi, því um það leyti fær hann Kirkjubæjarklaustursprestakall; — vígðist þangað 1612. Það skipti engum togum að strax árið eftir ákærðu hann hjón úr sókninni, Jón Runólfsson og Guð- finna Loftsdóttir, — fyrir að hafa aðeins útdeilt þeim brauðinu en ekki vininu í altarissakramentinu; kaleikurinn hafi verið tómur. Mál- inu var skotið til biskups óg hélt Oddur biskup Einarsson presta- stefnu í Laxárholti í Eystrihrepp vorið 1614. Þar var séra Illuga dæmdur synjunareiður, og sönnuðu eiðinn tveir prestar með honum. Nokkur atriði fleiri fylgdu kæru Jóns Runólfssonar á hendur presti, en þau þóttu ósönnuð. Segir nú ekki af séra Illuga unz hann fær Kálfafell um 1627. Arnbjörn Arnbjarnarson hét mað ur í sókninni; hafði sá deilt við séra Illuga áður, og varð það nú hans fyrsta verk, eftir að Illugi kom til Kálfafells, að kæra hann fyrir að vera valdur að sjúkleika sínum,- en Arnbjörn var sagður mjög tauga bilaður og hjartveikur. Um þetta var þingað á Kleifum undir Pjalli vorið 1628 og aftur um haustið af Þorleifi sýslumanni Magnússyni, en hann kemur við þjóðsöguna hér að framan. Prestur bauð fram synjun- areið um að aldrei hefði hann gert Arnbirni né nokkrum öðrum mein með göldrum og gerningum, enda hefði hann aldrei lært slíkt né fram ið; þar að auki fékk hann stuðning fyrri sóknarbarna sinna um góða hegðun, og fjórir prestar buðust til að sanna synjunareiðinn með hon- um og einn leikmaður að auki. Prestarnir voru Jón Sighvatsson, Sveinn Bjarnason, Þorleifur Magn ússon og Magnús Pétursson. Arn- björn fékkst hins vegar ekki til að rökstyðja ákæru sína, svo að svo komnu máli þóttust dómendur ekk ert geta dæmt og skutu því til úr- skurðar biskups og lögmanna. Hér gæti svo virzt sem séra Illugi vséri laus við málið ,en það fór á annan veg Arnbjörn Arnbjarnarson lézt um veturinn og lýsti því yfir skömmu áður að séra Illugi væri valdur að meini sínu. Munu menn fljótlega hafa tekið að gína við þessu eftir andlát Arnbjarnar; galdrabrennuæðið var að búa um sig í fólki; og nú skrifuðu Kálfa- fellssóknarmenn Oddi biskupi og afsögðu með öllu að þola Illuga sem prest sinn fyrr en hann hefði hreinsað sig af áburði Arnbjarnar. Biskup og lögmaður skipuðu nú Högna prófasti Jónssyni og Þor- leifi sýslumanni að taka tylftareið af Illuga presti. Settu þeir rétt á Kleifum vorið 1629. Þangað hafði Illugi með sér eiðsvarinn vitnisburð tveggja kvenna um að Arnbjörn hefði lýst yfir við þær „að illa hefði 750 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.