Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1963, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 22.09.1963, Blaðsíða 4
lega hafður við hönd. Sjálfur kvað hann bæði mikið og vel, og jafnvel eftir að hann gerðist rúmliggjandi reyndi hann að kveða. Svona er hægt ag fá kveðskaparbakteríuna í blóðið, og manni fyndist lífið vera snauðara, ef aldrei væri kveðið. Það er á þess- um grundvell'i sem kvæðamannafé- lögin byggja starfsemi sína. Þar kem- ur fólk saman reglulega til að kveða, heyra kveðið og lifa þessa stemningu, sem ógerlegt er að lýsa. — Svo þú vilt eflaust láta gera allt til að viðhalda þessari list? — Svo sannarlega. Kveðskapurinn íslenzki er einstakur músíksögulega séð. Hann er sérstæð íslenzk tónlist, sem hvergi er til nema hér. Þag þarf að gera miklu meira fyrir hann, bæði að vinna skipulegar að söfnun kvæða- laga, og eins þarf að kynna hann erlendis, láta útvarpsstöðvar og hljómplötufyrirtæki fá góðar upptök- ur. Það er ekkert aðaiatriði að fá mikið vísnamagn kveðið, heldur skiptir hitt meira máli að komast yfir stemmurnar, lögin. Og þær verð- ur að varðveita á bandi eða plötu, því ag nótuskrift nær ekki yfir þær. Rímnastemmurnar eru í allt öðrum tóntegundum en sönglög og stemm- ur fluttar af nótum verða söngur en ekki kveðskapur. Og kveðskapur og söngur er sitt hvað. Vitað mun vera um eitthvað fjögur hundruð stemm- ur, fyrir utan safn Bjarna Þorsteins- sonar, en þar er eiginlega ekki að finna nema beinagrindurnar af stemmunum. Þag vantar að minns:a kosti í þær taugakerfið, enda verða lögin hjá honum miklu fremur sung- in en kveðin. — Og heldurðu að kvæðamennsk- an muni lifa? — Ég er dálítið hræddur um hana. Meginhættan held ég sé sú, ag fólk fari að syngja kvæðalögin og á þessu er þegar nokkuð farið að bera. En eins og ég sagði, þá hverfur hinn rétti blær, þegar söngur kemur í staðinn fyrir kveðskapinn. Hins veg- Eg sat heima hjá Kjartani Hjálmarssyni kennara og vi<S röbbuíum um kveíSskap og kvæftamennskii yfir kaffibolla. Ég vissi fyrir aíi Kjartan var fróður maður um þá hluti og kvæðamaour ágætur, enda nitfji skáldsins frá Bólu. Og þar kemur, að ég spyr hann, hvort hann hafi ekki veriíf kveíandi alla ævi. — Jú, ég lærði að kveða í föður- húsum. Fyrsta endurminning mín er sú, ag eitt sinn fyrir jól'in var verið að baða mig í bala og þá kvað ég hástöfum á meðan. Faðir minn, Hjálmar Kjartansson leturgrafari, var þjóðlegur með afbrigðum og hon- um fannst ekki vera neitt bragð af lífinu, nema kveðskapur væri dag- ar getur verið býsna erfitt að halda þessu tvennu aðgreindu. Ég hef oft rekið mig á það í sambandi við kennsluna, að ég má gæta mín á mánudagsmorgna, eftir að ég hef verið að kveða um helgina, að kveða ekki fyrir börnin í stað Þess að syngja með þeim, eins og til er ætl- azt. — Hvaða skilyrði þarf góður kvæðamaður að uppfylla? — Hann þarf helzt að vera fædd- ur með þetta í blóðinu og alast upp 772 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAO

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.