Tíminn Sunnudagsblað - 18.09.1966, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 18.09.1966, Blaðsíða 18
algerlega einstakt. Með öðrum orð um: Sérhveert augnablik er „nýtt augnablik, ólíkt öllum öðrum augna- blikum. — Þetta er í samræmi Við kenningu allra dulspekinga (mystik- era), því að það, sem meðal annars einkennir reynslu þeirra, er einmitt það, sem nefna mætti nýsköpun hvers augnabliks. — Fyrir þeim verður því lifið alltaf nýtt, og þeir eru þvi alltaf nýir menn á hverju augnabliki. Lífið heldur áfram, segir Bergson. Það er eins og straumur. Raunveru- legur vöxtur er þróun, en ekki endur tekning. Og sérhver reynsla í fortíð inni er algerlega sérstæð, og kem- ur aldrei aftur í sömu mynd. — Lífið getur aldrei snúið við. Klukka þess verður aldrei færð aftur á bak. Bergson virðist halda fram algeru viljafrelsi mannsins. ■ Hann er hér það, sem á erlendu máli er nefnt „indeterministi.“ — Maðurinn er að hans dómi ekki leiksoppur blindra ytri afla, lífið er ekki orrustuvöllur, þar sem þeir, sem lífshæfastir eru, halda velli („the survival of the fitt est,“ er Darvin nefndi svo). Straum- ur þess ber manninn áfram og upp á við á vegi þróunarinnar og þessi straumur er ekki utan mannsins — heldur í honum. Lífið er eins og sjálf kvæmur innblástur listamanns. Á hverju augnabliki er það reiðubúið til að springa út, eins og blóm, og verða að einhverju nýju, sem var ófyrirsjáanlegt. Það streymir frain úr uppsprettu dásamlegs, ótakmark- aðs veruleika. „Hjarta guðdómsins," segir Henri Bergson, er falið í vaxtar úrkostum mannsandans. Hin skapandi þróun er GUÐ. Guð er lifið, og lífið stefnir áfram og upp á við. — Dýr- ið er áframhald jurtarinnar, mað- urinn dýrsins, og mannkynið allt í rúmi og tíma er einn stórfelldur herskari, sem þreytir göngu sína við hlið vora, á undan og eftir, undir áhrifum yfirþyrmandi áskorunar, sem gerir honum fært að brjóta niður alla mótstöðu og ryðja sérhveri hindr- un úr vegi.“ — Jafnvel dauðinn er sigraður. — Lífið heldur áfram eftir líkamsdauðann og stenzt allar breyt- ingar og tilhneigingu efnisins til að eyða sjálfu sér. — Enginn stundar ósigur fær stöðvað Iífið: Ekkert get- ur stöðvað það. — Þessi ósigrandi lífshvöt, þessi „neisti lífsins“ („Elan Vital“) er hið innra með oss öllum. Þessi orka, sem eins og af sjálfri sér sameinast hinum lægstu lífsform- um, aðlagar sig þeim, en nær að lok- um tökum á þeim, losnar úr læðingi þeirra 1 manninum og nær hámarki sínu í hinu skapandi sjálfi.— Þetta skapandis jálf er alheimssjálf ið, þessi orka, sem knýr listnmann- inn til að framleiða listaverk, sem er stærra en hann sjálfur sem ein- staklingur og verður, sameiginleg elgn manna. Þessi sköpunarhvöt býr þó ekki aðeins i listamanninum,held ur í öss öllum. Hún er á bak við hverja göfuga hugsun, unaðinn í kossum elskendanna, í gleði móður- innar yfir því, að hafa fætt barn sitt, í blessun þeirri, sem ævinlega fylgir því að drýgja einhverja dáð, og í von og trú allra þeirra, er láta sig dreyma um framhald lífsins. — Af öllu því, sem hér hefur verið sagt, má ljóst vera, að Henri Berg- son var bjartsýnismaður hinn mesti. Það er dálítið erfitt að gera allar kenningar hans vel skiljanlegar, með al annars vegna þess, að þær eru marg ar á mörkum hugsunar og innsæis, enda áminnti hann áheyrendur sína um að reyna að skilja nokkurn hluta kenninga sinna með aðstoð hugsunar innar, en hinn hlutann með hjart- anu. Eftir að Frakkland féll í hendur Þjóðverjum, 1940, smitaðist auðvitað hið andlega líf þess af hinu ógeðs- lega, þýzka Gyðingahatri, og öllum pró fessorunum, sem voru Gyðingar, var sagt upp starfi. Bergson var þá 81 árs og var honum boðið að halda embætti sínu. En hann hafnaði boð- inu. Hann vildi ekki verða neinnar náðar aðnjótandi af hálfu nazistanna, sem í hans augum voru villimenn. Hann kaus hið sameiginlega hlutskipti þjóðbræðra sinna. — Hann sagði af sér prófessorsembættinu við Collége de France. Hann mun hafa dáið 1941. Eins og fram kemur í því, sem sagt hefur verið um Bergson, trúði hann á framhald lífsins eftir líkamsdauð- ann. Neisti lífsins, sem í hverjum manni býr, er eilífur og ekkert getur á honum unnið. En Bergson taldi sig líka hafa fengið sannanir fyrir því, að maðurinn lifði líkamsdauðann, á vegum spíritismans. Það kom fyrir, að lík víxluðust þannig, að lík, sem átti að fara í kistu, sem vér getum kallað A, fór í kistu B, en hitt lik- ið, sem átti að fara í kistu B, fór í kistu A. Um þennan misgáning vissi enginn. — En hinir framliðnu gerðu vart við sig á miðilsfundi og vildu fá þetta leiðrétt. Málið var rannsak- að, og kom þá í ljós, að þessi mis- gáningur hafði átt sér stað. Ekki gat þarna verið um hugsanaflutning að ræða frá neinum lifandi manni, því að enginn hafði hugmynd um þetta. Ef þetta hefði ekki verið leiðrétt að handan, hefðu í þessum tveimur kist- um hvílt líkamsleifar manna undir röngum nöfnum. Eins og ég vona, að fram hafi kom ið i þessu erindi, lagði Henry Berg- soi. mikla áherzlu á innsæið, svo mikla að með nokkrum rétti mætti kenna heimspeki hans við það og kalla hana „heimspeki innsæisins." En hvað er þá „innsæi“? Þetta var erfið spurn- ing, sem má svara á ýmsa vegu. „lnn- sæið er, ef það er réttilega notað, réttmætur og göfugur eiginleiki vit- undarinnar, það er vissulega eina leið in til að finna hjarta hlutanna." Með hjarta hlutanna á Bergson auðvitað við hið innsta eðli þeirra og gildi, og greinilegt er, að hann telur inn- sæið fremur til tilfinninga, en hugs- unar, og er það í samræmi við kenn- ingar guðspekinnar um þetta efni. Vitur guðspekisinni einn íslenzkur kallaði innsæið „sannleiksþekk- ingu“. Átti hann þar við beina, milli- liðalausa þekkingu á sannleikanum, innra samband við hann, lifun („op- levelse" á dönsku). Þegar talað er um það, að innsæið tilheyri ríki til- finninganna, ber þess vel að gæta, að þar er átt við ræktaðar tilfinningar, göfugar, hreinar, ■ lausar við allt gróm síngirni og sjálfselsku, enda hafa sumir rithöfundar meðal guð- spekisinna talað um innsæið sem til finningu í æðra veldi („sublimated feeling“). Það er bam einingarheims, þss tilverusviðs, þar sem allt form er i raun og veru hætt að vera til, eða lífið hefur að minnsta kosti alger yfirráð yfir því. Vér gætum því sagt, að innsæið væri rödd lífsins — eðu rödd þagnarinnar, en það er eitt og hið sama. Bergson kallaði það líka hið skapandi vit, og það er vissulega réttnefni. Það á þátt í allri andagift, öllum innblástri, öllum raunveruíeg- um skáldskap. Það, sem gerir gæfu- muninn, þegar um hið síðastnefnda er að ræða, skáldskapinn, er ein- mitt það, hvort innsæi nokkurt hef ur verið þar að verki og framleitt lif- andi listaverk, eða ófrjó og lágfleyg hugsun. Frá innsæinu fær skáld- skapurinn „neistann" hvort sem um er að ræða ljóð eða sögu, eða aðeins ritgerð um eitthvert ákveðið efni. Ég stilli mig ekki um í þessum sam- bandi að segja sögu af enska skáld- ínu Byron, þegar hann var ungling- ur í skóla. — Skólastjórinn hafði fengið nemendum sínum i hendur verkefni, sem þeir áttu að skrifa um. Verkefnið var brúðkaupið í Kana. Þeim, sem skrifaði beztu ritgerð- ina, var heitið verðlaunum. Mig minn ir, að tíminn, sem hinir ungu nem- endur fengu til að Ijúka verkinu, hafi verið 2 klukkustundir. Það var setið yfir þeim, meðan þeir slcrifuðu. — Margir hömuðust við skriftirn- ar og allir voru iðnir — nema Byron ,einn. Hann sat og teiknaði skrípa- myndir á blað. Kennarinn veitti þessu auðvitað eftirtekt og þegar tím inn var nærri útrunninn, gekk hann að borði Byrons. Hann sá, að Byron hafði ekki gert annað en teikna skrípamyndir. „Hvað er þetta, herra Byron, æflið þér ekkert að skrifa?“ sagði hann við hinn síðarnefnda. By- ron gaf lítið út á það, en þegar tím inn var kominn, gekk hann saml að kennaraborðinu og lagði á það eitt lítið pappírsblað. Á blaðinu var að- 810 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.