Tíminn Sunnudagsblað - 28.01.1968, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 28.01.1968, Blaðsíða 5
Þjóðhátíðarmynd frá Vestmannaeyjum — tekin nú á síðustu árum. í brekkurótunum sátu í grasinu hvirfingar fólks, sem flest var ungt, við drykkju og skrípalæti. Nokkrir lágu á grúfu í grasinu, sumir augafullir. Þetta voru ekki allt eyjaskeggjar. Meðal þeirra voru aðkomumenn úr Reykjavík, sem komið höfðu til þess að sleppa fram af sér beizlinu um helgina. Einn hópurinn kallaðj fagnandi á mig og útnefndi mig Englend- ing. Brennivínsflösku og pappa- bolia var troðið í hendur mér af mikilli gestrisni. Undir eins og það vitnaðist, að ég var Ástralíumaður, tók ungur sjómaður í hópnum að stytta mér stundir með sögu af því, þegar hann strauk af skipi í Ástralíu og var settur í fangelsi, og ung stúlka með auf>un á floti bauð mér að koma með sér niður í tjald, þar sem dansað var. Mig grunaði þó, að hún væri tæplega dansfær, þvi að hún átti fullt í fangi með að standa á fótunum. Fjörlegur, roskinn maður með skipstjórahúfu vildi láta mynda sig. Hann fylgdi mér um svæðið, breiddi við og við úr sér fyrir framan myndavélina og kynntl mig öðrum gömlum sægarpi, sem bauð mér í nefið (íslendingar nota enn neftóbak), og fiskimanni, er hafði það sér til ágætis, að hann hafði verið á þeim bátnum, sem mest aflaði á síðustu vertíð. Þeir voru ellefu á þessum báti, og hann sagði, að þeir hefðu borið úr být- um hundrað þúsund krónur hver á fjórtán vikum. Það er meira en sextíu sterlingspund á viku. Ungi sjómaðurinn, sem mér heyrðist heita Hanki eða eitthvað þvíumlíkt, ráðlagði mér að fara ekki aftur til Reykjavíkur strax þetta kvöld — ég átti að vera kyrr, því að gleðin var aðeins að byrja. Stúlkan hans var þegar orðin of drukkin, en það voru þarna fleiri píur, og frá klukkan ellefu til eitt var skuggsýnt í dalnum, og þá gat borið við, að grasið yrði vitni að einu og öðru. Sjálfur þurfti hann þó ekki að vera úti í kuldanum, ,og hann hét því, að skjóta lí.ka skjólshúsi yfir mig, ef ég ýrði kyrr. í bók Audens, Bréf frá íslandi, er spurningu Kristófers Isher- woods um það, hvernig kynferðis- lffið sé, svarað á þessa leið „Hemjulaust. Það þykir lítil ávirð- ing að eiga barn í lausaleik11. Ég veit ekki, hve hemjulaust líf- erni íslendinga er, en því er enn Ástralíumaðurinn þekktist ekki það ráð, sem honum hafði verjð gefið: Hann fór með flugvél til Reykjavíkur snemma kvölds, áii þess að hafa nokk- urt dansspor stigið í Herjólfs- Stefán Einarsson í ferðaskrif- sfcofunni sagði við mig: „Það voru hér geimfarar frá eins farið og þegar Auden ferðað- ist um ísland, að það telst varla neinn blettur, þótt barn fæðist ut- an hjónabands. . . ★ Það er dæmi þess, hve íslending um er gjarnt til þess að fara sín- ar götur, að eyjarskeggjar halda þjóðhátíðina i ágústmánuði, en aðr ir landsmenn í júní. Þegar menn á meginlandinu skírðu nýju eyna, sem kom upp úr hafinu, Surtsey, þótti Vestmanneyingum skörin færast upp í bekkinn. Þetta var þeirra ey, sögðu þeir, og það var þeirra réttur að gefa henni nafn. Surtsey gaus enn sem ákafast, er nokkrír eyjarskeggjar stigu þar á land og reistu þar spjald með öðru nafni Vesturey. Glóðheitri ösku“ rigndi yfir þá, og sagan sagði, að' þeir hefðu með naumindum slopp- ið lífs úr þessum háska . . . dal. Þess vegna kunnum við ekki af því að segja, hvernig „Hanka“ farnaðist um miðnætt- ið. Og nú Iá leiðin norður í Öskju. Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þeir voru að búa sig undir tungl- för“. Ég drap tittlinga og spurði: T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 77;

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.