Tíminn Sunnudagsblað - 28.01.1968, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 28.01.1968, Blaðsíða 6
„Hvers vegna komu þeir hing- að?“ „Jarðfræðingarnir þarna fyrir vestan bjuggust ekki við að sjá þá aftur. Þeir sögðu, að á tunglinu væru furðulegustu klettar, og það yrði að kenna þeim ögn í jarð- fræði, svo að þeir kynnu fremur fótum sínum forráð. Jarðfræðing- arnir veltu nú vöngum yfir því, hvar á jörðinni landslag væri einna áþekkast því, sem þeir héldu, að væri á tunglinu, og þá kom þeim ísland í hug.“ „Og hvað var gert við þessa geimfara hér?“ „Þeir voru sendir í Öskju“. Hann stafaði fyrir mig nafnið, Askja. Og svo sagði hann mér, hvað þetta nafn þýddi. Ég mælti: „í þessa Tungl-Öskju vil ég komast“. „Þér eruð líka að leggja af stað þangað. Askja er langt uppi á öræfum, suður af Mývatnssveit, sem þér ætlið að skoða“. Við Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugfélagsins, röbbuðum saman yfir glasi, þegar ég sagði honum, að ég vildi komast í Öskju. „Ég kom þangað árið 1961, þeg- ar hún gaus“, sagði Sveinn. „Fjór- ir eldstólpar stóðu fimm hundruð metra upp í loftið, bráðin hraun- kvika kraumaði í fjórum gríðar stórum gígum. Jörðin var snævi þakin — nema þar, sem hraun- elfurnar bræddu fönnina, svartir straumar og glitti í rauða glóð- ina. Við vorum í flugvél. Fyrst sáum við reykjarstrókinn um það bil, er sólin var að hníga. Þá sló saman öllum litum — rauðum, bláum og gullnum lit, sem ég get varla lýst, einna helzt appelsínu- gulum. Við flugum þarna yfir, eins nærri og við þorðurn, urn tíuleytið. Tunglið var komið upp og varpaði fölri birtu á drifhvít- ar fjallahlíðarnar. Það var eins og himneskur friður hvíldi yfir öllu, þegar horft var út um flugvélar- gluggana öðru megin. En þegar litið var út hinu megin, blasti við ægilegt eldgosið: Gígarnir fjórir, sem spúðu eldinum himinhátt. Þeirri sjón gleymi ég aldrei á með- an ég lifi. Þetta jörmunafl, og svo fegurðin — þvílíkum atburðum verður ekki lýst. Það var varla, að við gætum horft á þetta.“ Sveinn bætti því við, að enn ryki úr jörðu í Öskju. Hann sagð- ist vona, að ég gæti komizt þ;mgað. En fari svo, að þér komizt ekki þangað, þá munið þér að minnsta kosti ekki sjá eftir þvi að hafa komið að Mývatni. Þér getið feng- ið flugfar til Akureyrar á morg- un“. Ég rýndi út um gluggana á leið- inni til Akureyrar. íshjálmur Langjökuls, sem ég hafði séð teygja tungu niður að Hvítárvatni, var fyrir neðan okkur. En við flugum nálega klukksutund í gegn um skýjakaf, og öllu lengri var flugferðin ekki. Við komum út úr muggunni yfir grænum dag milli hárra fannafjalla, og síðan tók við ann- ar dalur i kreppu nakinna, mó- brúnna hlíða. Þar sáust merki mannabyggðar. Á rann um blóm- legt gróðurlendi og ræktarlönd út í fjarðarbotn. Þarna var næst- stærsta borgin á íslandi, Akur- eyri: Borg með trjágróðri. ... Morguninn eftir komu Stefán Einarsson og þýzk stúlka, sem vann í ferðaskrifstofunni, Erd- muthe Glage, í flugvél frá Reykja- vík til þess að fara með mér upp í Mývatnssveit í langferðabíl, er beið á flugvellinum. í bílnum voru líka bandanísk hjón, Henry D. Reck og kona hans — hann sögu- prófessor, en hún læknir. Þau liafa líklega verið um sextugt. Mér gazt undir eins vel að þeim, og þeim átti ég eftir að kynnast betur. Nú var ekið um sveitir, sundur- skornar af háum fjöllum, og þeg- ar við nálguðumst Ljósavatn, sagði Stefán Einarsson: „Þér sjáið þarna sveitabæ. Þar hefur ætt mín búið í þúsund ár. Ættingjar mínir eiga þessa jörð enn“. Úr þessu byggðarlagi var lög- sögumaðurinn á alþingi árið 1000 — sá, sem lá undir uxahúð (hér ruglar höfundur ef til. vill lítið eitt saman Njáli í brennunni á Bergþórshvoli og Þorgeiri Ljós- vetningagoða við kristnitökuna) og íhugaði, hversu mætti miðla svo málum, að heiðnir menn fengju áfram stundað heiðinn dóm, þótt landið yrði kristnað og þeir skírð- ir, sem það kusu. Hann hét Þor- geir goði, sagði Stefán, og lét sjálf- ur skírast. Þegar hann kom aftur heim að Ljósavatni, tók hann goða- líkneskin af stöllum sínum og varp aði þeim 1 Goðafoss, einn hinna fögru fossa á íslandi. Hinn mikil- úðlegi Dettifoss er ekki langt und- an heldur, og líklega hefði það orðið úr, að ég hefði farið að skoða hann, ef ég hefði ekki farið að tala við Reck prófessor og spyrja hann, hvað hann ætlaðist fyrir í Mývatnssveit. „Við gerum okkur vonir um að komast í Öskju“, svaraði hann. Það var bíll með drifi á öllum hjólum, sem fór inn í Öskju á miðvikudögum og laugardögum, ef nægjanlega margir farþegar fengust. Nú var fimmtudagur. Ég stakk upp á því, að við fengjum okkur strax jeppa, sem Stefán hélt, að reynast myndi kleift, og Reck samþykkti uppástunguna. Á leiðinni að Mývatni fórum við fram hjá afarlöngu fjalli, nöktu eins og mauraþúfu. Stefán sagði, að þarna væri einhver mesti gíg- ur í veröldinni, í kringum þúsund metrar í þvermál, myndaður við eina sprengingu á forsögulegum tíma. Við komum nú auga á vatnið og sáum endur á sundi. Það er sagt, að á Mývatni sé meira af öndum en á nokkrum stað öðr- um í heiminum. Það vona ég, að sé satt, því að í Mývatnssveit er stranglega bannað að skjóta endur. íslendingar segja, að það væri niorð. Sú þjóð, sem stóð í látlaus- um hefndarvígum á dögum vík- inganna, ér nú meðal siðmenntuð- ustu þjóða. Sú ákvörðun mín, að komast í Öskju, olli því, að við urðum að hafast við innan dyra í gistihúsi næstu klukkustundirnar. Ég var við og við að hringja á sveitabæ, þar sem ég ætlaði að fá jeppa til fararinnar, en bóndinn svaraði ekki, því að hann var úti við að hirða hey sitt og koma því í hlöðu, áður en rigndi. Þegar skúrin gekk yfir sveitina, svaraði hann og kvaðst skyldi leggja af stað með okkur morguninn eftir. Hann sagð ist verða um tólf klukkutíma báð- ar leiðir. Þegar þetta hafði orðið að samn- ingum, gátum við farið út. Þarna voru tvær húsahvirfingar, sem líkt ust þorpum — Reynihlíð og Reykjaihlíð, þar sem við vorum. Gistihússtýran, Guðrún Jónsdóttir, hefði ekki getað verið árvakrari. Maður hennar, Jón Jónsson — stórvaxinn, hlédrægur bóndi, sem lítið gat bjargað sér í ensku — átti líka jeppa, sem hann notaði í ferðir um nágrennið, og nú ók hann með okkur á jarðhitasvæði, 78 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.