Tíminn Sunnudagsblað - 18.02.1968, Qupperneq 10
Þessar flíkur teiknaSi ensk amma handa sjálfri sér. Lengst til vinstri er köflótt dragt meS þægilegu
pilsi og mörgum vösum undir vasaklúta, karamellur eSa hvaS þaS nú er, sem ömmur þurfa aJ5 hafa ti!
reiSu. Næst er svört kápa utan yfir síSan hvítan kjól, sem er hár í hálsinn og ermalaus, on smálokkuS
hárkolla viS. Til hægri eru kjóll og kápa úr ullarefnum, rúm í mittiS, meS belti ofarlega til skrauts aSeins.
Því miSur verSur amman aS vera grönn tll aS geta fylgzt meS tizkunni. ÞaS er þaS sorglega í málinu.
forvitni smáhlutverk i kvikmynd-
inni „Maðurinn frá Istanbul“, að
fyrirsætur og sýningarstúlkur
þurfa að vera siðprúðar, reglu-
samar og iðnar til að halda velli
í samkeppninni, að hér á landi er
iþetta enn aðeins tómstundastarf, að
Pálína sjálf vinnur á skrifstofu
fheild'sölufyrir'tækis, og að hún er
nýgift.
Hún er há, dökkhærð, þveng-
mjó og pilsið hennar fimmtán
sentimetra ofan við bné. Hún not-
ar stærð tíu af fötum.
— Við tókum okkur saman,
tuttugu stúlkur og þrír piltar og
stofnuðum' Módelsamtökin sem
eins konar vísi að vinnumiðlunar-
sknifstofu. Meiningin er, að frarin
leiðendur og verzlunarmenn geti
snúið sér til samtakanna, þegar
þá vantar sýningarfólk eða ljós-
myndafyrirsætur. Erlendis eru
mörg slik fyrirtæki, en hér á landi
er enn takmarkaður skilningur á
auglýsingagildi lifandi fölks. Ég
held hann fari þó vaxandi.
Við skrifuðum mörgum fyrir-
tækjum bréf, þar sem við sögð-
um þeim frá stofnun samtakanna
og buðum þeim þátttöku í tízku-
sýningu, sem við héldum fyrir jól.
Undirtektir urðu góðar, og ég
held mér sé óhætt að segja, að
sýningin hafi heppnazt vel. En
sýningarstarfið er aukastarf hjá
okkur öllum. í náinni framtið
verður enginn möguleiki til að
hafa það að aðalstarfi hér á landi.
— Hver eru inntökuskilyrði í
samtök ykkar?
— Bara að hafa fengið þjálfun
í a.ð sýna föt. Til fatasýnánga út-
heiantaist viss vaxtarski'lyrði, kunn-
átta í að snyrta sig og æfing í að
láta flíkurnar njóta sin sem bezt.
— Enginn andlitsfríðleikur?
— Ef nef, kinnbein og munn-
ur eru sæmileg, þá bætir skyn-
samleg málning úr því, sem á
vantar.
— Hver eru æskileg mál sýn-
ingarstúlku?
— Það er svolítið mismunandi
eftir tízkunni. Upp á síðkastið
hafa þær Verið lágvaxnari en áð-
ur, frá 168 sentimetrum eða jafn-
vel enn lægri í stað þess að vera
allar yfir 170 sentimetrar eins og
áður var krafizt. Nú, mjaðmamál
á að vera 89—90, mittið gerir
minna til um núna, þegar allir
kjólair eru rúmir.
— En brjóstin? Þau eiga helzt
ekki að sjást lengur, er það?
— Yfirleitt er gert ráð fyrir, að
130
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ