Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Síða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Síða 2
>útur í skjönum Engum er vítalaust að hafa skóviðgerðir að atvinnu nema hann hafi lokið námi og prót'i, er tryggja skal, að hann sé hæf ur til starfans. Sömu reg ur gilda um hárgreiðslu, veggfóðr- un, brauðgerð, Ijósmyndagerð og ótal margt annað, þar á meðal þær starfsgreinar, er lúta að prentiðn. Fasteignasai- ar verða að fá löggildingu, kaup menn verzlunarleyfi og for- stöðumenn safnaða samþvkki stjórnarráðsins, ef þeir eru ekki prestar að vígslu. Þetta er gott, svo langt sem það nær, og ánægjulegt að gera nokkurn veginn treyst þvi, að skórnir verða laglega sólaðir og þokkalega gengið frá vegg- fóðrinu á þilinu. En sé vikið að þeim, sem hafa það að at- vinnu að koma daglega m»ð málfar sitt fram fyrir alþjóð í blöðum, útvarpi og sjónvarpi, verður annað upp á teningnum. Þar þarf hvorki nám né próf, sem miðað sé við starfið. Þeir, sem slíkt takast á hendur, þurfa ekki að sanna hæfni sina fyrir neinum tilkvöddum dóm- ara eins og til dæmis prentar- inn og bókbindarinn né standast neina þá þolraun, er geri senni legt, að þeir valdi verkefninu. Oft mun í upphafi nálega rennt blint í sjóinn um móðurmáls- kunnáttu þeirra og al- menna þekkingu á þjóðarhög- um og þjóðarsögu. Ekki er til í landinu neinn skóli eða skóla- deild, þar sem þetta fólk getur lært það, sem því er nauðsyn- legt að kunna, og engum aðila befur þótt ómaksvert að reyna að finna einhverja mæli- stiku, sem nothæf væri til þess " að greina að einhverju leyti á milli þeirra, sem færir geta tal- izt tit slíkra starfa, og hinna, er en,gan veginn' eru þeim vaxnir. Daglega sést á síðum blað anna og tjaldi sjónvarpsms, hvernig þetta gefst. Þó að vissutega sé þar allmargt 'ag- lega af hendi leyst, jafnvel sumt stórvel, eru ískyggilega mikil brögð að hinu, sem til smánar er. Iðulega vaða par uppi flestar tegundir mállýta og málfátæktar: Brengluð orð- tök, rangar orðmyndir, röng notkun forsetninga, hugtaka- ruglingur, barnaleg orðskrípi og útlendar slettur, svo að ekki sé talað um margs konar lág- kúru og önnur þess konar dæmi um vanmátt höfundanna til þess að koma orðum að því, er þeir viijy sagt hafa. Þetta er alkunna og raunar óþarft að færa til dæmi. Það er talað um „niðurskurð á seiðum“ í klakstöðvum við Elliðaár, að „strekkja hnakk- inn á hestinn", „þorskveiðamar blómstra á Akureyrarpolli," nautkindur eru „fylfullar“ og á Seltjarnarnesi skýtur upp ein hverju, sem nefnt er „heim- kind“, hvaða árans ókind sem það er nú. Eitt dagblaðið kemst svo að crði um eiturlyf janeyzlu, að nú megi „vænta þess, að þetta böl komist í tízku hér á landi,“ annað birti mynd af stjórnmálamanni „í hóp með konu sinni“, og sjónvarpið kynn ir leikfimi, sem er „eingöngu miðuð fyrir kvenfólk “ Eitt kvöldið var margendurtekið, að Austur-Þjóðverjar gengju ,til kosn'inga,“ þegar í landi þeirra fór fram atvkæðagreiðsla um nýja stjómarskrá. Fæstir hlutir eru lengur með lit eða einfald- lega Ijósir eða Ijósleitir, brúnir og dökkir, heldur eru þeir „í ijósum lit“ eða einhverjum öðr um. ,,Djobb“ og „interessa“ haldast í hendur, jafnvel í máli fastráðinna starfsmanna fjöl- miðlunartækja, og það er „stungið af,“ þegar menn flýja eða íara 1 felur, „slappað af,“ þegar menn hvílast, og „hopp- að af,“ þegar menn segja skil ið við fyrri félagsbræður. Sýknt og heilagt eru menn að „bíða sigur,“ „bera lægri hlut,“ „gizka upp á“, „hafa þann sið á“ og setja út undan.“ „Meðlimirnir“ í þessum fé- lagsskap, án alls efa nýtasta fólk á marga grein, hafa lent í skakkri hillu, þegar þeir réð- ust til verka, þar sem þeir verða að hafa málfar sitt til sýn- is. Sú aísökun, að mikill vinnu hraði eigi sök á mistökum af þessu tagi, fær varla staðizt, því að ekki er fljótlegra að hafa það, sem rangt er, ef fólk að- eins veit og kann hið rétta. Tungan er eitt af því, sem veitir okkur rétt til þess að nefna okkur þjóð, og fagurt tungutak hefur jafnan verið tal- ið aðalsmerki, ekki einungis okkar á meðal, heldur hvar i heimi, sem fólk hefur hafizt til menningar. íslenzk tunga er ekki lakar til þess fallin að túlka mannlega hugsun en önn- ur þroskuð mál, og þar á ofan er hún það, sem kalla má gagn- særra Juál en flestar þjóðtung- ur aðrar Á hverju einasta ári er leit- azt við að kenna þúsundum ung- rnenna að þekkja eðli og lög- mál tungunnar, tala hana og skrifa sem bezt má verða. Fjöldi manna hefur slika kennslu að ævistarfi eða meira eða minna leyti, og þjóðfélagið telur skylt og sjálfsagt að verja ærnu fé til þess að starf þeirra megi bera ávöxt. En samtímis er frammistaða manna í blöð- um og fjölmiðlunartækjum oft með þeim hætti, að stórspilla hlýtur þessari viðleitni. Jafnvel sú ríkisstofnun, sem að stað aldri lætur hina færustu og glöggskyggnustu menn leið- beina um ott málfar, þver- brýtur sjálf siðaboðin. Hljóð varp og sjónvarp eru að vísu ekki fullkomlega eitt hið sama, og þó harla nátengdar stofnan- ir. En þegar Tryggvi Gíslason hefur til dæmis fordæmt fárán- lega notkun sagnanna að elska og hata, vinnur sjónvarpig gegn því, að sú ádrepa beri ár- angur með því að birta eftir sem áður Luxauglýsinguna („ég elska Lux“) óleiðrétta. Vafalaust rekur að því, að meiri kröfur verði gerðar um kunnáttu og leikni þeirra manna, sem starfa hjá blöðum og fjölmiðlunartækjum. En Framhald á 478. siSu. 458 T 1 M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.