Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Blaðsíða 19

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Blaðsíða 19
Ingólfur Jónsson Dunar þér enn f eyrum ógnþrunginn fossaniSur, þar sem á grjóti gráu gullin mót sólu hlógu aldrei blómin blíðu? — frá Prestsbakka: spyr ég, en andsvar ekkert. Óma frá strengjum þínum fjarlægðir farinna ára fela sem bezt þær geta. 99 árum Veit ég þó, vængjaður hugur vissi hvert átti að leita, eftir dauða þegar þrekið varð lítið, þurftirðu skjól og næði. Brosti þér byggðin við fjörðinn. Kristjáns Hvert ævintýr álfaborga, andsvarans hvísl við stráin, varð þér að vökudraumsins Fjallaskálds vonarfylling í kyrrum. Sést glöggt í söngvum þínum sólþrá í Stöku og Tári. \ Aldrei gat andann bugað örbirgð né heilsuleysi. Ljóseyjar lágu það nærri. Því er mér til efs, að þú eigir ekki, sé nógu vel leitað tóna í björgum og brekkum, brot þinnar hörpu í öldum. ið, þar sem sön-gvarinn mun senn koma fram. Ég fæ sæti við hlið mannsins, sem umvafði jafnt ung- ar meyjar og aldraðar konur á götum Akureyrar, er við héldum suður. Hér inni eru bannaðar reyk- ingar, og nú tekur hann hraust- lega í nefið út gríðarstóru, silfur- búnu tóbakshorni. Söngvarinn geng ur fram á sviðið, ásamt undirleik- ara. Þessi ágæti píanóleikari hafði einnig skroppið heim og leikið á Akureyri undanfarin kvöld, en bæjarbúar vildu ekki hlusta á lög án orða og varð hann því að leilka fyrir nær tómu húsi. En hér er húsfyllir og hvert sæti skipað og húsið að auki fullt út úr dyrum. Söngvarinn er hvatur í spori, létt- ur og hreyfilegur í fasi og likist ekki að yfirbragði neinni lifandi múmíu á sviðinu, heldur ber hann síns heimalands mót að hætti góðra gesta. Undirleikarinn er látlaus og hlé- drægur, sem er einkunn og aðall sannmenutaðra listamanna. Hann sezt rólegur við flygilinn eins og þeir gera, sem þjóna andanum meira e-n efninu, og slær byrjun- artón ítalskrar aríu. Ágætur hljóm burður hússins og voldugur, blæ- fag-ur söngur skagfirzka dalapilts- ins fyllir húsið svo algerlega, að þegar hljómbylgjan skall á eyrum hlustenda, titraði hljóðhimnan eins og sæstrengur í hafróti. Fögnuð- ur áheyrenda var gífurlegur og söngdómarinn við hlið mér, lét svo um mælt, að ný hornahlaup hefðu bætzt á söngvarann síðan 1932, en þá kom hann heim í vetrarleyfi og söng á Akureyri. Að loknum söng voru listamönn- unum færðir blómvendir. Undir- leikarinn greip sinn vönd snöggv- ast, en það var eins og hann hefði brennt si-g um leið. Hann sneri við og lagði vöndinn á flygilinn, sem hann hafði þjónað af trú og lotn- ingu frá barnsaldri. Að því búnu gekk hann til bakdyranna. En þá brá söngvarinn við hart, náði í aðra hendi hans, greip blómvönd- inn af slaghörpunni og stakk hon- u-m í hina. Síðan leiddi hann með- leikara sinn fram á sviðið og lét hann taka við sínum hluta hróss- ins frá hlustendum. Þá mælti sessunautur minn: „Þetta var fallegt hjá Stefáni." Ágætri sk-emmtan var lok- ið. Menn risu úr sætum og fóru að tínast út. Kyrrð júlínæturinn- ar andaði svala á heitt hörund og hrifnar taugar hlustenda. Fólk safnaðist í smá hópa úti fyrir hús- inu og ræddi saman í hrifningu. Fremstur i þeim flokki var tón- skáld bæjarins, söngstjórinn Björg vin Guðmundsson. Ég ætlaði að fara beinustu leið í háttinn, en sá þá hvar beint framundan stóðu þrjár ungar stúlkur, er ég hafði þekkt sem smámeyjar á skólaárunum „fyrir norðan.“ Þær lit-u braaindi í átt- Framhald 4 478.) s!8u. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 475

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.