Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Page 3
Orð er gert á kænsku rauðrefsins. í nágrannalöndum okkar hefur honum öðrum dýrum betur tekizt a3 semja sig a3 nýjum siSum, er strjálbýli breyttist í þétt- býii. Honum bregður jafnvel fyrir í útjörðum stór- borganna. Á tunglskinsbjörtum febrúarnóttum reikar skolli um í leit að refkeilu. Stundum fljúgast biðlarnir á. Á gang- þófum keilunnar eru þefkirtlar, sem vísa þeim veginn. Litlu má muna: Hún er einungis frjó einn dag eða tvo. I júní fara yrðlingarnir að bregða sér spölkorn með móður sinni, grenlægjunni. Frakkar segja, að hún fari með þá kynnisför að næstu hænsnabúum, áður en hún yfirgefur þá alveg. Slægur sem refur, er sagt. Getl tófa ekki smogið girðingu, krafsar hún sig yfir hana. Hænsnin eru í hættu. En hins er líka að geta, að rauðrefurinn þrífur til, þar sem hann heldur sig. Heyrnin er afbragðsgóð — tófa heyr. ir músartíst í fimmtíu skrefa fjar- lægð. Lifir rauðrefurinn mjög á músum og öðrum nagdýrum, sem oft gera usla á ökrum og i skóg- lendi. vetrum verður refurinn að leita bráðar undir fönninni. Annars er hann algpta, og í maga hans finnast leifar fugla og dýra, ber, skordýr, fiskar, froskar. Hann forsmáir ekki heldur sorp og hræ. Tófan gerir sér greni í moldarbrekkum og urðum, stundum jafnvel í hlöðu- gólfum. Á Gotlandi er dæmi um það, að tófa hafi lagt í smugu i gamalli eik um tvo metra frá jörðu. Þegar smásilungur gengur á rið- stöðvar, þar sem vatn er grunnt, kemur refurinn og fiskar. Silung- ana ber hann að greni sínu og legg- ur þá i fallega röð úti fyrir einhverj um munnanum. TÍMINN — SUNNUDAGSBLAfc 459

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.