Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Síða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Síða 4
í HU08JÓN 06 STERKUR- VI Ul XII í marzmánuði 1907 sagði Emme- lína Pankhurst af sér embætti skráningarstjóra í Manchester. Iíún hafði löngum verið víðs fjarri síðustu misseri, og héðan af ætl- aði hún að heiga sig algerlega því málefni, sem henni var hugleiknast alls. En nálega samtimis þvi, að hún lét af starfi sínu, tók að brydda á sundurþykkju í liði henn- ar. Ung kennslukona frá Manchest- er, Teresa Grieg, hafði um skeið stjórnað skipulagningu í Lundún- um, en Kristabel bolaði henni burt og sendi hana út á land. Hún taidi sig ofríki beitta, og nú var á kreiki sá orðrómur, að Teresa hefði myndað um sig flokk í því skyni að stjaka þeim Kristabel og Emme l'ínu Pethick-Lawrence til hliðar. Sylvía Pankhurst, sem ekki var jafnherská systur sinni, reyndi að miðla málum, en fékk engu áork- að. Þegar hér var komið, lýsti Emmelína Pankhurst yfir þvt, að Fjórði þáttur hún tæki sér alræðisvald í sam- tökunum. Allar þær konur, sem ekki vildu játast undir þetta, urðu að víkja. Þetta olli verulegri riðl- un, en þó fór svo, að meirihlut- inn hélt tryggð við hana. Hinar, sem burtu hrökkluðust, mynudðu enn ein samtök ári síðar. Þessu fylgdi afarstrangur agi. Allar urðu konurnar að hlýða for- ingjum sÍTium skiiyrðislaust. Jafn- framt var bann lagt við því að leggja nokkrum stjórnmála- flokki lið. Sú ákvörðun hefur þó sennilega ekki verið Emmelínu sársaukalaust. Keir Hardie hafði ailt frá dauða manns hennar ver- ið hennar hollasti og einlægasti vinur og jafnan boðinn og búinn til þess að rétta henni hjálparhönd. En Kristabel, sem hafði um skeið verið verkamannaflokknum mjög fjandisamleg, var ánægð. Hana gerði hún nú að stjórnmálaráð- gjafa sínum. Andstæðingar súffragettanna hafa sennilega gert sér vonir um, aÍ5 mátt myndi draga úr þeim, er lið þeirra liafði klofnað í tvo hópa. En þær vonir brugðust. Nú var jafnvel náðizt í útgáfu blaðs, sem EmmeMna Pathick-Lawrence stýrði með aðstoð manns síns, gamals ritstjóra. Hún fór jafnframt með fjárreiður allar. Hvílíkur orðstír EmmeMna Pethick-Lawrence stýrði kom bezt í ljós, er hún efndi til blysfarar meðal verksmiðjufólks í Leeds og safnaði um sig hundrað þúsund manns á útifundi. Þegar Bretaþing kom saman í febrúar 1908, héldu súffragetturn- ar að venju kvennaþing. Líkt og áður ætluðu konurnar að ganga til þinghússins, en voru stöðvaðar og margar teknar höndum. Að þessu sinni var Emmelína sjálf í hópi fanganna, en var þó látin laus eftir tiltölulega stuttan tíma. Um páskana þetta ár urðu þau tíðindi, að Henry Campbell-Bann- erman sagði af sér vegna heilsu- bress, en Herbert Asquith, einn versti fjandmaður súffragettanna, varð forsætisráðherra í hans stað. Þeim þótti mikið við liggja að sýna honum í tvo heimana. Tækifærið gafst fljótt. Það voru lög, að nýir ráðherrar urðu að víkja úr þinginu og leita endrr- kosningar. Súffragetturnar ákváð að beita sér einkum gegn Winston 460 TtDINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.