Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Page 7

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Page 7
Emmelfa og Kristabel i fangabúnlngl. örvarnar á þessum fatnaðl urðu elnkennismerkl súffragettanna. essl tiJihliðrun fengizt fyrlr at- eina Seotts, ritstjóra Mandhester Guairdians, en til hans hafði Sylvía Pankhurst leitað og beðizt liðsinn- Is. Mæðgunum var mjög fagnað af súffragettum, er þær voru látnar lausar, og Emmelána notaði tækl- færið tdl þess að leggja þeim iífs- - reglurnar um það, hvernig þær ættu frarnvegis að haga sér í fangelsi. Og enn hófust tíðar göng- ur að þinghúsinu og bústað for- sætisráðherrans. Konurnar fengu þó ekki áheyrn fnemur en áður og oftast voru eínhverjar handte'knar. Einn daginn komst stúlka inn í þinghúsið og skrifaði þar á gaml- an steinvegg setningar úr ævagam- alli tilskipun, sem heimilaði fá- mennum hópum að koma þangað og bera upp mál við konunginn. Tiltæki hennar var óvenjulegt, og það vakti meiri athygli en skær- ur þær, sem orðnar voru nálega daglegir viðburðir. Litlu fyrr, í októbermánuði 1908, hafði það gerzt, að súffra- gettur, sem komust inn í kvenna- stúkuna á áheyrendapöllum fuil- trúadeildarinnar, hlekkjuðu sig við járngrindurnar fyrir framan hana, þar sem þær hrópuðu í sífellu: „Kosningarétt handa konum.“ Tókst ekki að losa af þeim hlekk- ina í skyndi og varð að rífa nið- ur hluta af grindunum, til þess að unnt væri að koma konunum út. Eftir þetta vaæ kvennastúkan lokuð í sex mánuði. Sendinefnd kvennaþings, sem haldið var í júní 1909, ætlaði að fara til þinghássins í krafti hinn- arar gömlu tilskipunar. Lögreglu- sveit stöðvaði þær. Emmelína hafði meðferðis skjal, sem hún lét nú falla á jörðina, steig á það og mælti: „Ég stend á rétti mínum sem þegn konungsins, sem hefur mál að reifa við forsætisráðherrann, og mun standa hér, har til ósk mín verður uppfyllt.“ En þegar henni fór að leiðast þófið, sló Jiún lögregluforingjann, sem stóð andspænis henni, með lófanum á kinnina. Hann lét sem ekkert væri. „Þarf ég að gera þetta aftur?“ spurði Emmelína. „Já“, svaraði lögregluforinginn. Hún sló hann aftur í andlitið. Þetta nægði: Hún var tekin höndum. Um kvöldið urðu miklar róstur og á annað hundrað kon- ur voru teknar höndum. En að þessu sinni voru þær ekki sakfelld ar fyrir óspektir, heldur var þeim gert að sanna, að stjórnarvöld landsins hefðu brotið á þeim lög, er forsætisráðherrann neitaði að tala við sendinefndirnar. Róbert Oecil, sonur Sal'esburys lávarðar, flutti mál þeirra, en laut í lægra haldl. xin. Kona sú, sem krotaði á vegg- inn í þinghúsinu, Marion Dunlop, var ekki látin laus eins og hinn fjölmenni hópur, sem handtekinn var nokkru síðar. Það varð ör- lagaríkt, að henni skyldi ekki vera sleppt líka. Marion fylgdi dyggilega hinum nýju fyrirmælum og neitaði að hlýða fangelsisreglunum. Að ráði fangelsisstjórans, sem ekki vildi slaka til upp á sitt eindæmi, skaut hún máli sínu, til innanríkisráðu- neytisins. Sennilega hefur það ekki hvarflað að embættismönnur.um þar, hvaða atburðarás þeir voru að hrinda af stað, er þeir neituðu tilmælum slúlkunnar. Viðbrögð hennar urðu þau, að hún neitaði að matast. Fangelsis- yfirvöldin létu bera til hennar flest það, sem gómsætast varð fundið, í stað hins hvimleiða fangelsisfæð- is, og góðgætið var látið standa hjá henni dag og nótt. En hún snerti ekki við neinu. Gæzlukon- urnar, fangalæknarnir og fangels- isstjórinn ógnuðu og báðu, en fengu engu áorkað. Heil vika leið, og þess sáust engin merki, að Mari- on ætlaði að gugna. Hún var orðin mjög máttfarin, og læknarnir ótt- uðust, að hún kynni að deyja þá og þegar. Boðin gengu á milli fangels- isins og innanríkisráðunevtisins, og menn vissu ekki, hvað til bragðs skyldi taka. Loks var stúlkan flutt heim til sín eitt kvöldið, gersam- lega lémagr.a, en þó sigri hrósandi. Þennan sama dag höfðu verið fangelsaðar fjórtán konur, sem Framhald á 478. síðu. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 463

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.