Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Síða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Síða 14
ar. Verið var í óðaönn að búast til siglingar og þar þótti mér kná- ilegir menn, hásetamir, ganga vasklega til verka. Þarna vorn hin- ir sönnu Suðurnesjamenn eða þá arftakar þeirra, og þernan á Lax- fossi gaf ekki hásetunum eftir í óvíxluðu göngulagi og harðlegum svip. Ég settist upp á búlka og hugsaði um Eggert Ólafsson, er ýtti frá kaldri Skor. Þarna uppi var ágæt útsýn yfir Flóann og un- um að sjá aðra vinna fyrir neð- an mig. En sumir kóngar hafa oltið óvænt úr sessi, og svo fór hér. Þegar kom út á Flóann, gerði norðangjóst og nokkra ylgju. Ég byrjaði að kenna ógleði uppi í há- sætinu. Ég reyndi að sporna við ógæfunni í lengstu lög og tileinka mér hreysti hinnar vasklegu skips- hafnar, en allt kom fyrir ekki. Máttlaus af sjóveiki lyppaðist ég ofan úr hásætinu og féll á þilfar- ið að fótum þernunnar í hálfgerðu yfirliði. Hún sá aumur á -mér og kastaði yfir mig brekáni, og þar undir kúrði ég, unz skipið létt’ för sinni á Akranesi Staulaðist ég þar á land og hafði nú aftur fasta jörð undir fótum. Farkost’r Steindórs stóðu altygj- aðir og biðu farþeganna sem streymdu að úr öllum áttum. Brátt var fólkið komið í bílana og síðan haldið af stað Ekki sá ég að sinni framan i þá. sem vori.i í öðrum bílnum, en í okkar bíl var fólkið af vmsum stéttum. En þess skal getið. að enginn af förunaut- um mínum suður var i þesssrj för. Þrír útiendingar voru þarna á ferð. tveir karlmenn og ein stúlka. Allt var fóik þetta tékkneskt Ann- ar karlmannanna var heljarme.nni á vöxt. Breiðar axlir námu nær við dvrastafi, þar sem hann gekk inn fyrir þröskuid. Stúlkan v.tr ung og blíðleg menntakona f svip hennar bió einhver hálfduiin tregi. Var sem henni byði í grun þær ógnir. sem voru framundan í h«r- námi Tékkóslóvakíu. í fyigd með henni var túikur, ungur skagfirzk- ur háskólanemi. Hún greip hönd hans og la< þar lófalestur. Spurði pilturinn hana, hvaða framtíð hún sæi þar. „Góða giftingu og ágæta fram- tíðaratvinnu,“ svaraði stúlkan. „En hvað mörg börn?“ spurði pilturinn. „Tvö börn með stuttu millibili, og,“ bætti hún við, „þið eignizt það þriðja nokkrum árum síðar.“ Þess skal getið, að þessi spá hef- ur rætzt nákvæmlega. Þessi skag- firðingur er nú þekktur maður í velmetnu starfi. Einnig voru í bílnum ung, skag firzk hjón. Konan var dóttir eius þekktasta manns í seinni tíma hér- aðssögu Skagfirðinga. Kona þessi var mjög söngvin, en afar bíl- veik og sat því við opinn glugga. En ekki hafði hún fyrr lokið upp- sölunni en hún greip lagið á lofti Þá voru og með nokkrir hún- vetnskir og skagfirzkir bænd- ur, flestir nær miðaldra menn með þúsund ára sögu íslands rista í andiitsdrættina. Þá er að nefna ungan bónda og kennara, sem kvaðst hafa flosnað upp frá bú- skapnum á miðju þessu vori 1938 Ðúx var hann frá Eiðaskóla, sem og synir hans. Maður þessi varð síðar ágætur skólamaður. í Ferjukoti var stanzað og keypt ar veitingar. En er staðið var upp frá borðum og lagt skyldi af stað, vantaði ’ékknesku stúlkuna. Var ég sendur að svipast eftir henni, og fannst hún niðri á túni á tali við hund einn, vænan og virðuleg- an. Hafði hundurinn lagt báðar framlappimar á brjóst hennar. Horfðust þau í augu, og talaði stúlkan í lágum trúnaðarrómi við þennan ómálga íslenzka vin. Þegar kom norður á miðja Holta vörðuheiði mætti okkur sami norð- austankuldajaglandinn, sem fylgdi okkur áður í suðurförinni — kannski hefði hann beðið eftir mér sem var búsettur á „tortunni" á landinu, en svo kallaði Guðmund- ur Björnsson landlæknir Norðaust- urland. Þeirri tékknesku byrjaði fljótt að kólna við íshafsnæðing- inn. Buðu þá norðlenaku bænd- urnir henni úlpur sínar til skjóls, sem hún þá með þökkum. . Það var sem einhver ósýnileg- ur þungi hvíldi á herðum þessa erlenda fólks. Hafði kannski skuggi komandi heimsstyrjaldar lagzt yfir sálir þess og grúfði bar sem martröð, er það fékk ekki hirist áf sér? Kannski var þessi unga, tékkneska stúlka, hún Míl- ada, sem starfaði kvenna bezt und- ir hernámsokinu í andspyrnuhreyf ingu Tékka gegn Þjóðverjum? Ó- gæfa hennar varð sú, að þýzki landstjórinn var friðlaus, eftir að hann leit fegurð hennar, en komst ekki yfir hana fyrr en í yfirliði eftir hetjulega vörn hennar fyrir hreimleika sínum. Og hinn risa- vaxni Tékki, var hann ef til vil Breda, aðstoðarmaður Mílödu, son- ur alþýðunnar, sem lét lífið eftir ógurlegar pyndingar, án þess að mæla æðruorð, og kaus þetta allt fremur en segja til félaga sinna? Tíminn líður við söng og tal £ Steindórsbílnum. Við erum komi.n á Blönduós, þar sem við ætlum áS matast. Hótel Blönduós er reisu- legt timburhús í gamla sMlnum. Þar söfnumist við öll saman til sam eiginlegrar máltíðar úr báðum bíl- unum. Þarna gefst tækifæri ti'l að sjá fahþegana úr hinum bílnum. Ekki veit ég, hvenær steikin, sem á borð var borin, byrjaði að sjóða, en vægast sagt, var hún illæt. En í þessari ótyggjandi máltíð birtist persónueinkenni þess fól'ks, sem sat þarna til borðs. Margs konar gestaþraut hefur tíðkazt á fslandi frá ómunatíð. Gegnt mér sitja tveir menn að snæðingi. Annar er aldinn að árum, lágur vexti og gildur og orðinn tannslæmur. Hann velti hverjum munnbita uppi í sér góða stund, en vinnur ekki á gömlu kusu, heldur sýgur úr kjötinu safann. Síðan ælir hann gestaþrautinni öðrum meg- in á disk sinn, og er þarna á diskinn xomin heljarmikil hrúga af sinum, sem gamli maðurinn skil ar aftur. Félagi gamla rithöfund- arins situr þögull við hlið hans og virðir ýmist fyrir sér hrúguna eða viðbrógð annarra. Hann er ung ur að aldri, en þegar orðinn lands- kunnur höfundur, og átti síðar eft- ir að bera hróður síns heimalands um heimsbyggð alla. Við hlið þeirra tveggja situr norðlenzkur prófastur. Hann glímir við þraut- ina af slíkum krafti, að svitalæk- irnir streyma ofan eldrauða vang- ana, en niður skal hún samt. Við hlið prófasts er ung frænka hans, enn barn að aldri. Klerkur bein- ir til hennar ýmsum spurningum, og Sigga gefur greið svör við ötlu og horfir síðan spyrjandi ungmeyj- araugum meðfram borðinu. Því má skjóta hér inn, að þessa Siggu sá ég fullþroska í veitingahúsi á Akureyri átta árum síðar. Var hún hin fríðasta mær. Á hægri hönd skáldunum situr gervileg kona, sem gegnir emb- ætti í rekstri Reykjavíkur. Einnig hún hefði getað orðið ágætur rit- höfundur, ef iðkað hefði hún meira kúnstina. Þessi kona er blessunarlega hispurslaus, sem háttur er margra, sem setja and- 470 T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.