Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Side 15

Tíminn Sunnudagsblað - 16.06.1968, Side 15
 Séð vestur yfir Blönduós — áin klýfur þorpið í tvennt. ann ofar efninu. Að lokinni mál- tíð brá hún vísifingri rólega í góm sér og hreinsaði brott þær kjöt- tægjur, sem safnazt höfðu í tenn- ur henni meðan á orrahríðinni ■stóð. Að lokinni máltíð söfnuðust all- ir til bíla sinna. Við héldum áfram veginn inn Langadalinn. Á Geita- skarði slóst ungur maður í förina, ásamt miðaldra bónda. Þeir voru báðir mimnilegir menn. Sá yngri benti mér á félaga sinn, sem hann sagði vera sterkasta mann á ís- landi. Hefði hann í votta viðurvist lyft 700 kílóa þunga, enda hefði han-n um of slitið orku sinni á aflraunum þessum. Nú þegar þetta er skrifað er Hannes sterki á Auð- ólfsstöðum máski allur. Að minnsta kosti var hann orðinn hálf gert skar fyrir nokkrum árum. En þessi stóri, hægláti, holdgranni bóndi, sem ég átti samleið með hálfa klukku-stund sumarið 1938, verður aldrei orpinn sandi á fjör- um minninganna. Leiðin eftir Langadal liggur senn að baki, og Skagafjörður blas ir við á ný. Komið er heim 1 Varmaihiíð. Húsmóðirin og veitinga konan stendur sjálf í dyrum úti, sköruleg og þjóðleg í senn. Hér verða ferðalok margra þeirra, sem voru í bílunum. Skagfirðingarn- ir halda heim, en við, sem ætl- um áfram til Akureyrar, drekkum kaffi. Ung og lagleg stúlka, skag- firzk, gengur um beina. Hún hafði verið á dansleik nóttina áður og stynur lágt annað slagið, en hvort þau andvörp komu af sælu eða sorg eftir nóttina á undan, verður ekki séð á andliti þeirrar ljós- hærðu meyjar. En ungmærin, sem kom með ytrabyrði prestsins í veg fyrir okkur heiman frá Varmahlíð í suðurleiðinni, sést nú hvergi. Varla hefur þó okkar ágæti bíl- stjóri étið hana í bakaleiðinni, þótt sætur væri ilmurinn af hári henn- ar, sem íauk í munn honum á suðurleiðinni. En austur var hann einn á ferð, og jafnan segir fátt af einum til orða og athafna. Degi er tekið að halla er haldið er brott frá Varmahlíð. Við girð- ingu þá, sem skilur lönd Skagfirð- inga og Eyfirðinga, er fjöldi hrossa á beit. Svo margt stóð hef ég ekki séð í einum hópi, og eru áhöld um fjölda hrossanna og vegamann- anna á Holtavörðuheiði. Polaldsmerar, flókatryppi og illa vanaðir klárar mæna yfir girðing- una í átt til Eyjafjarðar. Enda sér bíistjórinn í okkar bíl, hann Nonni hjá Steindcri, aumur á hrossunum og skilur hliðið eftir opið, þegar hann er kominn í gegn um bað. Ungur maður frá Engimýri í Öxna- dal snarast þá út og lokar hlið- inu, og brátt er heiðin að baki og við ökum út Öxnadalinn. Kvöki- kyrrðin er sigin á, og fuglar bún- ir að taka á sig værðir. Þokuiæða fer um miðjar hlíðar hinna stór- skornu fjalla beggja vegna dals- ins. Og senn birtist Akureyri — bær við bláan fjörð, sumargleði margra ferðamanna, íslenzkra sem útlendra. Klukkan er bvrjuð að halla í tólf, þegar staðnæmzt er við gistihúsin í miðbænum. Við erum tveir, sem ætlum að hafa samflot um gistingu. Þessi ferðafé- lagi minn er ungur, reykvískur loftskeytamaður. Hingað til Akur- eyrar hefur hann ekki komið fyrr, en aftur á móti í hafnir fjölda Evrópuborga. En vegna ferða- mannastraums, sem liggur uir. Ak- ureyri á sumrum, er oft óhægt um vik að fá þar gistingu, að minnsta kosti á sólmánuði, jafnvel þótt þ?ý væri enga sól að sjá þetta lá^ skýjaða júlákvöld. Við kvöddum dyra á Hótel Gullfossi, en þar voru öll rúm upptekin eins og í T I 1» 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ 471

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.