Tíminn Sunnudagsblað - 11.08.1968, Page 17

Tíminn Sunnudagsblað - 11.08.1968, Page 17
FerBafólk fer yfir Laxá vestan vi8 Miðfell á leiS út i LeirársVeit. Skarðshelði í baksýn. Ljósmynd: Páll Jónsson. Leiðarlysing Þor- valds Steinasonar II Við tæptum í siðasta blaði á s'kiptum Hallgrfms Péturssonar við tröll og óvætti. Sú saga er sögð, að í fyrndinni hafi þurs einn eða jötunn búið í fjaliinu Ölvi. Óvætturin hét Ölvir, og bax fjallið nafn hans. Þegar kristin trú festi rætur á íslandi, hætti Ölvir karl að koma út úr fjallinu, því að hann var hund- heiðinn og undi illa nærveru krist- inna -manna. Segir nú ekkert af Ölvi í rúmlega sex aldir sem hann dvaldi í kiettabæli sínu í fjallinu Þá var Hallgrímur Pétursson kominn að Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd. Séra Hallgrímur Pétursson var af samtíð sinni kunnari sem kraftaskáld, jafnvel níðskáld, en guðlegt trúarskáld. Það var ekki fyrr en þjóðsagan var búin að gera hákgrrt flagð úr hinni mikilhæfu konu Hallgríms, Guðríði Símonar- dóttur, að landar hans viður- kenndu hann sem innblásið sálma- skáld. Þá var það eitthvert sinn, að Hallgrímur var á ferð frá Höfn heim til sin. Hann fór Katlagöt- ur, sem voru á þeim tíma og lengi síðan fjölfarin leið. Hallgrímur hafði sér fylgdarmann, sem þó er ekki nafngreindur, enda skiptir nafn hans engu máli. Þegar þeir eru staddir þar á leið sinni, er gat- an lá upp úr bugunum, hafði fylgd armaður Hallgríms orð á því, að gaman gæti verið að líta Ölvi karl augum rétt í svip. Hallgrímur taldi unnt að ná Ölvi í augsýn en sagði jafnframt, að ekki væri víst, að það yrði neinum til yndisauka að sjá hann. Fylgdarmaður lét svo ummælt, að Hallgrímur væri n'k- lega eigi sá maður, að hann gæti náð Ölvi úr bæli sínu, og hafði þar um mörg hæðileg frýjuorð. Bkki eru orðaskipti þeirra kuan en svo fó.r að loikum, að Hallgrím- ur stóðst ekki eggjunarorð fylgd- armanns, en sagðist skyldu sýna honum Ölvi. Tók nú Hallgrímur að þylja fræði sín og særingar Tregt gekk að fá Ölvi til að risa upp af svefni sínum, en að lokum var hann þó korninn að mitti upp úr berginu. Ekki er með vissu kunnugt, nve margar vísur Hall- grimur þuldi, áður en Ölvir birt- ist, og ekki hefur nema ein visa geymzt í minni fólks. Hún er svona: Bölvi hlaðinn bröltu fram úr bæli þínu, kynjadraugur kvalinn pínu kvæðuspjalli undir mínu; Bkki var Ölvir beint frýnilegur ásýndum, bar sem hann stóð í klettinum upp til mittijs og blim- sk-akkaði sínu ferlejfa glirnum framan í þá félaga Fó; þá að fara TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 593

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.