Tíminn Sunnudagsblað - 10.11.1968, Page 17
Á beltilandinu á MyllugarSi viS Konungskeldu: Skozk Hálandanaut og skjöldóttur, józk-
ur tarfur, jakuxar frá Tíbet og dráttaruxl af rómversku kyni.
ið allskeinuhættur skógviði, er ekki
var vaxinn í þá hæð, að vernd
væri að.
Auk vilitra dýra, sem þarna hafa
verið vistuð, eru svo í Myllugarði
gamlir. Kaupmannahafnarhestar,
eins konar eftirlaunahestar, sem
komnir eru á hvíldaraldur. Þeir
höfðu gengið steinlögð stræti alla
ævi sína, og góðir menn, sem töldu
þá hafa unnið fyrir því að stíga á
gróna jörð, beittu sér fyrir því, að
einnig þeir rnættu njóta þessa stað-
ar. Það er undravert, hve slíkir
hestar lifna og hýrgast og fjörg-
ast á ellilaununum. Svo mikla gleði
hefur það veitt Svend Andersen að
sjá þessa slitnu og stirðu hesta
ganga þannig í endurnýjun lífdag-
anna, að hann hefur látið þau boð
út ganga, að nokkrir hestar skuli
enn teknir á þetta sælubú dýra-
garðsins, þótt vitaskuld séu því
takmörk sett, hve margir geta ver-
ið þar, án þess að það verði ann-
arri starfsemi til hnekkis.
í bígerð er að breyta allri land-
areign Myllugarðs í mörk og haga
við hæfi þeirra dýra, sem þangað
er komið. Um heim allan eru nú
dýrategundir, sem hanga á hor-
riminni, að því komnar að farast,
og er þviiíka sögu að segja um
hinar ólíkustu skepnur — afríska
naslhyrninga, antilópua'fbrigði ýms
og Prewalski-hesta, svo að nokk-
uð sé nefnt af handahófi. Prew-
alski-hestarnir eru smávaxnir villi-
hesta,r frá Asíu, og var þeim bjarg-
að frá algerri tortímingu á sínum
tíma með því að koma þeim í dýra-
garðinn í Hamborg. Nú eru alls til
sextíu til sjötíu slíkir hestar —
fjórir þeirra í Kaupmannahöfn.
Útlendingar hafa fram að þessu
verið nokkuð vantrúaðir á þá hug-
mynd að flytja fágæt dýr til Dan-
merkur í því skyni að stofna þar
uppeldisstöð. Veldur þar mestu ó-
trú á, að loftslag og landshættir
henti tegundum úr öðrum löndum
og heimshlutum. Úr því verður þó
reynslan að skera, og er sennileg-
ast, að sumar tilraunir muni mis-
takast, en aðrar lánast.
Forstöðumenn dýragarðsins j
Kaupmannahöfn eru brautryðjend-
ur á þessu sviði. Þvílík tilraun hef-
ur hvergi annars staðar verið gerð
í heiminum. Auk þess hafa hinir
framtakssömu og hugmyndariku
forráðamenn þessa dýragarðs gert
tilraun að öðru tagi: Flutt dýr
landa á milli og reynt að fá þau
til þess að tímgast úti í náttúrunni
Einn gömlu eftlrlaunabestanna frá
Kaupmannahöfn.
T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
90*