Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 02.02.1969, Qupperneq 20

Tíminn Sunnudagsblað - 02.02.1969, Qupperneq 20
MAGNÚS HÓLM: Hrakninguri hrossaleit Veturinn 1910-11 var ég vetrar- maður á Þórmóðsstöðum í Sölva- ðal hjá Guðmundi bónda Jónas- syni og Jónu Jónsdóttur, konu hans. Gamlir menn muna kannski að sá vetur var mjög illvigur, sett- ist snemma að, og viðraði seint. A föstudaginn langa kom dálítill hlákubloti. en stóð ekki lengi. Fönn va'r yfir allt, þar til fimm vikur voru af sumri. Eitthvað voru m°nn þó farnir að beita fé fyrr, en á Þonnóðsstöðum voru aðeins komnir svolitlir hnjótar um það leyti Átta vikur af sumri var mannhæðarhá hengja fyrir sunn- an bæjarvegginn þar. Frá jólum til föstudagsins langa var hríðar- veður fiesta daga og off linnulaus- ar stórhríðar dögum saman. Ég hafði bann starfa þennan vetur. að hirða sauðfé og gekk á beitar- hús að Þ.irmóðsstaðaseli. Sú jörð var þá nýlega komin í eyði, en hús uppistandandi, og voru þau notuð frá Þormóðsstöðum. Guð- mundur var stórbóndi, hafði oft utri tvö hundrúð fjár, að mig minn- ir, sex kvr i fjósi, og fimm hross átti hann. fjóra eflingsklára og eina hryssu. Hrossin voru vanalega látin bjarga sér sjálf fram á miðjan vetur. Voru þau þá látin ganga niður í Æsustaðatungum. Gengu þau þar iðulega fram í Hraunár- tungur og yfir um á. á Sölvadal- inn. Rétt eftir jólin þennan vetur var þeirra vit.iað. voru þau þá bomin yfir um Sölvadalsána og skammt norður fyrir svonefndan Geldingagilshöfða. Þá var þar nægi leg jörð. en mjög ískyggileet að hafa þau þar. vegna þess að snjó- lífið að leysa, sagði harin. við Al- gaut. Ég get reykt samt. Algauti duidist ekki. hvers vegna fólk gat alit í einu þegið handa- verkin hans. Koma Kalla hafði spurxt um allar trissur, 02 það kitlaði forvitni marsra. er haft var eftir kaupmanninum við járnbraut arstöðina. Hann hgfðí s'-*m sé látið flóð höfðu oft hlaupið þarna. Ekki féll Guðmundi vel að hafa hesta sína þarna. Ilann var mikill hestavinur og fór vel með hross sín. En það var ekki gott i efni, heimilið fáliðað. mikil verk heima fyrir og stórhríðar hvern dag, Dróst þannig. að hestanna væri vitjað. Eitt kvöld i lok janúar, tók Guð- mundur mig tali og spurði, hvort ég vildi ekki leggja í leiðangur með sér fram á afrétti og leita hrossanna. Tók ég þessu mætavel. Ég var á bezta skeiði tii átaka, 26 ára að aldri, og hafði saman af öllum ævintýrum. Én Guðmund ur var roskinn maður, búinn að vinna mi'kið og hafði oft farið illa með sig, ofþreytt sig í smala- mennskum vetur og vor. Þormóðs- staðir eru .fremsti bær í Sölva- dalnum að vestan, stóðu því fjórír afréttir opnir fyrir kindum Guð- mundar, og ef snapir komu, voru þær flognar fram um alla dali, enda átti hann tápmikið fé. Ferðin var nú ráðin daginn eftsir. í nokkra daga hafði kyngt niður feiknafönn af norðaustri. En ekkj hafði verið mjög hvasst, og þar af leiðandi var snjórinn illa þjappaður saman. — í Æsu- staðatungum voru beitarhús frá Þormóðsstöðum, en þau höfðu ekkj verið notuð tvö siðast liðin ár. Stakk ég upp á þvi við Guð- mund. að við færum með einn tunnupoka af góðu heyi, til þess að geta gefið hrossunum tuggu, ef við kæmum þeim hehu að beit- arhúsum, en ekki var búizt við neinum högum þar í kring. Rauðst ég til þess að bera pokann. sér það um munn fara. að vasar Kalla hefðu verið svo fullir af seðlum. að skrjáfað hefði í honum eins og pappírskörfú, þegar hann hrevfi =ig. Þess vegna þurftu nú allir að láta sóla skó, festa hæla og bæta skóhlifar, því að um leið gafst tækifæri til þess að góna á þennan heimkomna S\da, sem allir töluðu um. Ákveðið var, að við færum að afloknum morgunverkum. Átti Hjalti, sonur Guðmundar, sem þá var sextán ára, en tápmikill og vanur volkinu, að gera seinni verk- in. Klukkan var því orðin tíu, þegar við gátum lagt af stað. — Þau hjónin áttu fjórar dætur, og voru þrjár þeirra heima. Var dá- lítill galsi í ungdómnum, á með- an við vorum að búa okkur af stað. Þormóðsstaðaá, sem aðskilur Þormóðsstaðadal og Núpufellsdal, rennur rétt fyrir neðan túnið á Þormóðssföðum í þröngu og djúpu gili, en fyirir neðan seiið liggja að henni grasbakkar. Hún frýs seint í gilinu og margan veturinn aldrei, það gerir straumkastið í þrengsl- unum. Nú komumst við hvergi yfir ána fyrr en neðan við Þor- móðsstaðasel. Tafði það okkur um klukkutíma, því að færið reyndist okkur erfiðara en við bjuggumst við. Fyrirhyggjan var fremur af skornum skammti, þegar við lögð- um af stað, og gerðum við ekki ráð fyrir neinum alvarlegum töf- um. Við vorum báðir klukkulaus- ir og matarlausir, og ætluðum að vera komnir heim um fjóstíma, gerðum ráð fyrir að vera tíu tíma í ferðinni. En við borðuðum undir- stöðugóðan mat, áður en við lögð- um af stað. því að nóg var ti! í búrinu hjá Jónu. Ferðin gekk slysalaust yfir ána, en samt seint. Mjöllinni hafði aulað saman í all- ar lægðir. Voru því hálfgerð kaf- hlaup, þegar við komum út á Núpufellshálsinn, sem aðgreinir Núpufellsdal og Æsustaðatungur. Liggur langur 02 hár' melur af hálsinum niður í tungurnar, skammt fyrir norðan beitarhúsin. Rifið hafði af melnum, svo að hann var auður að kalla. Þegar við komum ið húsunum, voru þau algjörlega í kafi, nema hvað aust- urstafninn stóð fet upp úr snjón- um. Dyraumbúnaður var í kafi, og einnig hafði norðurhliðin fallið inn á parti. Var húsið þvi fulljt af snjó upp undir rafta. Innst í syðri krónni voru þó tvö stafgólf hér um bil auð Við sátim strax, að hér var ó- mögulegt tó hýsa hesta, þótt okk- ur yrði pað happ að koma þeim alla leið heim að beitarhúsinu. Gróf ég mig í gegn um snjóinn, og kom pokanum inn á þennan auða blett. Siðan lögðum við af stað. 92 T f i I N ti — SUNNUÐAGSBI.AÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.