Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Qupperneq 4

Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Qupperneq 4
 Minnisvarði á leiði séra Þorgríms Arnórssonar i kirkjugarðinum i Þingmúla í' Skriðdal. Ljósmyndir: Gunnar. Við leiði gamla sóknarprestsins í Þingmúlagarði ★ Árið 1868 var senn úti. Jólahá- tíðin var um garð gengin með !of- gerðarsálma, kerti og hangikiöt, annar dagur jóla að kvöldi kom- inn. Presturinn í Þingmúla i Skrið dal, séra Þorgrímur Arnórsson, bauð fólkinu í baðstofunni góða nótt, gekk til svefnhúss síns og tók á sig náðir. Þetta varð síðasta nótt ævi hans. Hann lagðist til svefns heilbrigð- ur, en vaknaði í dögun með óþol- andi verk í höfði. Heimafólkið leitaði í fáti þeirra ráða, sem þvl datt í hug til þess að lina þján- ingar hans. En allt kom fyrir ekki. Þannig ieið um það bil hálf klukku stund. Þá missti prestur mál og rænu og hneig í hægan svefn. Nokkru síðar var hann nár. Séra Þorgrímur var sextugur, er hann andaðist. Hann var prests- sonur frá Bergsstöðum í Svartár- dal í Húnaþingi og var fyrst að- stoðarprestur á ýmsum stöðum f Húnavatnssýslu og Skagafirði. Sið an var honum veitt Húsavík, rúm- lega þntugum manni, og þaðan fluttist hann að Hofteigi á Jökul- dal árið 1848, þegar frelsisöldurn ar _ risu hvað hæst í Norðurálfu. í Hofteigi gerðist séra Þorgrím- ur* einn mestur bóndi á landinu, og var einkum orð á því gert, hve fjármargur hann var. Fylgdi það að sjálfsögðu þessum stórbúskap, að hann var maður mjög vel efn- aður, svo að hófsamlega sé til orða tekið. Hofteigsprestakall var nokkuð erfitt. Möðrudalur var útkirkja frá Hofteigi í tíð séra Þorgríms og ærið löng leið fram að Brú á Eíra- dal, þar sem þá var guðsihús. Þeg- ar séra Þorgrímur tók að reskj- ast, hafði hann brauðaskipti við ungan prest í Þingmúla, séra Þor- vald Ásgeirsson, er síðar átti dótt- ur hans að konu. Þessi brauða- skipti urðu árið 1864. Séra Þorgrími er svo lýst, að hann hafi ekki verið sérlegur kennimaður, en þar á móti var hann skörungur í athöfnum, rösk- 892 T 1 M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.