Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Blaðsíða 11
í öllum löndum liðið sig býr
í Ijóssins tygi skær,
og æskufjör það áfram knýr,
svo ekkert tálmað fær,
Sem döggin tær mót himni hlær,
er heilsar morguncoðanc blær,
svo s1<ín hin prúða fylking fríð
af frjálsum æskulýð.
í lundum Kaplands Ijómar sveit
af Ijósi sólar dökk.
Frá Grænlandsjöklum heyrast heit,
er hjörtum gjöra klökk.
Frá Japan lengst í austurátt
hið unga lið sér fylkir kátt.
Við Ameríku vötnin víð
sig vígbýr sveitin fríð.
í öllum löndum sama söng
á sér hinn ungi her.
Um sama fána og fánastöng
þeir fylkja allir sér.
Og allir sjá hið sama lilið,
hin sama dýrð jseim blasir við.
í einni von, í ást og trú
þeir áfram stefna nú.
Og Jesús undan öllum fer,
þeir eru' hans heiðurssveit.
Tii konungs þeir hann kusu sér,
hann kærleiks þáði heit.
Svo vöxt og afl fær æsku þjóð
við alheims sólar mildu glóð,
í skugga krossins skjól og hlíf,
í skauti Jesú líf.
Þú æskuskari' á íslands strönd,
þú ert í flokki þeim,
er sækir fram í sólarlönd
með sigri' að komast heim.
Rís upp með fjöri, stíg á stokk
og streng þess heit að rjúfa' ei flokk,
unz sigri er náð og sagan skráð,
er sýnir Guðs þíns ráð.
Friðrik Friðriksson.
„Kristileg félög ungra manna
leitast við að safna saman ungum
mönnum, sem viðurkenna Jesúm
Krist Guð sinn og frelsara, sam-
kvæmt hcilagri ritningu, og vilja
vera lærisveinar hans í trú og líf-
erni og starfa í sameiningu að út-
breiðslu ríkis hans meðal ungra
manna“
Þess má geta, að félögin hér á
landi hyggja að sjálfsögðu einnig
á þessari grundvallarreglu, en jafn
framt er svo kveðið á í lögum ís-
lenzku félaganna, að þau starfi
innan lúthersku kirkjunnar, og hef
ur svo verið frá upphafi.
Þegar Lundúnafélagið varð
fimmtugt árið 1894, var að vonum
mikið um dýrðir 1 KFUM. Firnm
þúsund manns komu saman
í Lundúnum til fagnaðar. Það var
mikill fjöldi í þá daga. Georg Willi-
ams var þá enn á lífi, nokkuð rosk-
inn orðinn. Þegar hátíðin skyldi
hefjast, barst stofnandanum bréf
frá Viktoríu drottningu, þar sem
honum var tilkynnt, að hann hefði
verið aðlaður, „fyrir mikilvæg
störf í þágu mannkynsins,“ eins og
drottningin komst að orði. Það
kom á gamla manninn, því að hann
hafði aldrei sótzt eftir heiðri mann-
anna. Og hann lýsti því yfir, að
með þessu væri fyrst og fremst
verið að sýna hreyfingunni sóma,
en ekki honum sjálfum.
í 83 löndum.
Nú starfa um tólf þúsund Kristi-
leg félög ungra manna í áttatíu
og þrem löndum í öllum álfum
heims. Félagsmenn munu vera um
átta milljónir, ef unglingar og
drengir eru taldir með. KFUM er
ekki fyrst og fremst félag
drengja, heldur ungra manna.
Seytján ára gamlir verða þeir full-
gildir félagsmenn. — Auk þessa
hóps mun láta nærri, að um tíu
milljónir manna taki einhvern þátt
í hinum mörgu og margvis-
Iegu starfsgreinum félaganna.
Á íslandi starfar KFUM á Akra-
nesi, Akureyri, í Hafnarfirði,
Reykjavík og Vestmannaeyjum.
Reykjavíkurfélagið er elzt og var
stofnað árið 1899. Einna kunnast
mun KFUM vera hér á landi fyrir
sumarstarf sitt í Vatnaskógi, það
hófst árið 1923.
Þarfir ungra manna eru margvíp
legar. En eitt er nauðsynlegt. Þ
vill KFUM benda þeim á Krist. H]
honum fann Georg Williams kjö1
festu og nýtt líf. En ekki hann einiL
heldur og ótalmargir aðrir, fyrr t>§
síðar. Og „annan grundvöll getui
enginn lagt en þann, sem lagðui
er, sem er Jesús Kristur." KFUM
hefur því enn hlutverki að gegna
T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ
899