Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Page 18

Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Page 18
kom». Maðurinn fór og fann Kela, en þegar hann vissi eiindið, neit- aði hann að sinna tilmæiunum og kvaðst ekkert eiga við þetca: Hann væn hættur öllu sliku. Maðurinn fór og sagði sínar far- ir ekki sléttar, en Sigfús sagði manninum að fara í annað sinn og koma með karlinn, hvað sem taut- aði og raulaði. Maðurinn fór, en kom að vörmu spori aftur með þær fregnir, að karl væri hinn versti, hálfu verri en fyrr, og af- tæki með öllu að koma. Þegar Sigfús heyrði þetta, fór hann sjálfur. Enginn vissi, hvað þeim Þorkeli fór á milli, en eftir góða stund kom hann með karl við hlið sér, Þeir fóru inn í skrif- stofuna og karlinn rak alla út og læsti dyrunum. Eftir örskamma stund hafði hann opnað skápinn og öjóst til þess að fara heim En Sigfús stöðvaði hann og sagði, að verkið væri ekki nema hálfnað, því að í skápnum væri skúffa með vélalæsingu, og þá skúffu yiði hann að opna, því að þar væru peningarnir geymdir. Karlinn var í fyrstu tregur til frekari afskipta, en sá þó, að hann yrði að ljúka verkinu úr því hann byrjaði á því. Hann ætlaði að láta alla fara út sem fyri en kaupmaður kvaðst ekki geta það. því að skúffan væri full af peningum, og hann vissi ekki með neinni vissu, hvað þar væri mikið- Þess vegna yrði hann að vera kyrr inni. En Keii léí sig ekki. Um þetta þrefuðu þeir nokkra stund, þar til Keli féllst þó á, að hann mætti vera inni, ef hann færi út í horn og sneá baki að skápnum. Liti hann upn. hótaði hann að loka skápnum og opna hann aldrei framar. \ð þessum kostum gekk Sigfús og þorði ekki fyrir sitt líf út af að bregða, enda mtin Keli hafa litið eftir því, að engin brögð væru í tafli. En skúff- una opnaði hann, án þess að Sig- fús heyrði nokkurt skark eða þrusk. Árin 1909 og 1910 fékkst ég nokkuð við útgerð í Neskaupstað, ásamt Ueiri mönnum, og höfðum við viðlegu í skúrum skammt þar frá, er Þorkeli bjó. Kynntist ég honum þá, eins og að framan seg- ir, og ræddi oft um list hans og innti hann eftir því, hvort sannar væru sögurnar, sem gengu manna á milli í plássinu um lásagaldnr hans, og kvað haun svo vera. Ég spurði hann ldka, hvernlg hann hefði komizt yfir þennan vísdónr,. Hann svaraði því, að járnsmiður í Færeyjum hefði kennt sér þetta ungum, sem og tveim mönnum öðrum, sem nú væru báðir dánir. Sagðist hann ekki vita af neinum, að sér undanskildum, sem kynni aðferðina. Ég spurði hann því næst, hvort hann hefði 1 hyggju að láta þessa kunnáttu deyja út með sér eða hann ætlaði að kenna þetta einhverjum. Þorkell svarar: „Ég hef boðið honum Óla í Hóls- húsi að kenna honum þetta, en hún móðir hans má ekki heyra það nefnt, swo allar líkur benda til, að það deyi út með mér. Því engum öðrum kenni ég það, hvað sem í boði er“. Sagði Ólafur í Hólshúsi mér seinna, að allt væri þetta rétt, sem karlinn hafði sagt mér, og endur- tók, að hann vildi ekki gera gam- alli móður sinni það á móti skapi að hnýsast í þetta. Eins og að Ikum lætur, voru þeir mestu mátar, Þorkell og Ólaf- ur, og af því að ég var vel kunn- ugur Ólafi, hélt til í húsi hans i tvö sumur, spurði ég hann. hvort hann óraði ekki fyrir því, hvernig Þorkell færi að því að opna lasa. Sagðist hann ekki hafa hugmynd um það, og þótt hann hefði oft verið ekki fjarri, þegar karlinn var að þessu, hefði hann aldrel orðið var eða séð líkindi til, að hann hefði nokkurt verkfæri með sér. Var hann vanalega þannig klædd- ur, að það hefði átt að sjást, ef svo hefðj verið, og gaf Ólafur bað fyllilega í skyn, þó hann gæti ekki leitt nein líkleg rök að því, að karlinn gerði þetta án nokkra verkfæra eða áhalda. Einu sinni sagði ég við Þorkel: „Þú hefðir átt að vera á sýn- ingunni í Reykjavík og opna skrá, sem þar yar með vélalæsingu. Hana gat enginn opnað“. Þá svaraði Þorkell, og var al- vöruþungj í röddinni: „Ég hef alla mína ævi forðast að segja ósatt, því að ég hef þá trú, að það komi manni í koll síðar. En ég get sett sálu mina að veði, þegar ég nú segi þér, að það það hefur ekki ennþá verið smið- uð sú læsing í heiminum, sem ég ekki gæti opnað. Og verður aldrei smíðuð“ Einu sinnj urðum við samskipa til Seyðisfjarðar, og var þá karl hreifur af víni, og lá vel á hon- um. Hugðist ég þá gera tllraua tfi að toga eitthvað upp úr honum, Þegar hann var kenndur lék hanri á als oddi, talaði mikið og sagðl frá mörgu. En tilraun mín baí engan árangur, hvaða brögðum sem ég beitti. Og til þess að taka alveg af skarið, sagði hann: „Það er ekki á nokkurs manns færi undir neinum kringumstæðum að fá nokkra vitneskju um þetta, sem þú ert að leita eftir. Það hefur margur reynt, en engum tekizt, Eini maðurinn, sem getur fengið að vita allt og læra, er hann Oli, en úr því það getur ekki orðið, þá fer það með mór í gröfina. Og er þar bezt geymt“. „Er þá enginn maður hér annar, sem þú vildir kenna það?“ spurði ég. „Nei, sagði hann. „Ég trúi eng- um fyrir því, nema honum“. „Þú ert farinn að verða tregur til að gera fólki greiða af þessu tagi — hvemig stendur á því“» spurði ég. Þá svaraði hann: „Ég er alveg hættur, og ég geri þetta ekki framar fyrir nokkurn mann. Ég geri það ekki“, endur- tók hann, og var þá svo argur að það var engu líkara en honum hefði verið bornar á brýn einhverj- ar misgerðir. Ég gekk þess ekki dulinn, að þetta snerti eitthvað ónotalega hans innri mann, þótt ég bæri ekki skyn á, hvernig því var varið En víst er það, að hann hætti alveg að opna lása, og rann í skap við þá, er báðu hann þess, og þverneit- aði kvabbi þeirra. Nú er Þorkell dáinn og hvíltr í gröf sinni og leyndarmálið með honum. á——i wrini n Þeir, sem hugsa sér að halda Sunnudags- blaðinu saman, ættu að athuga hið fyrsta, hvort eitthvað vantar í hjá þeim og ráða bót á því. MaMMMHHMMnl 906 T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.