Tíminn Sunnudagsblað - 30.04.1972, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 30.04.1972, Blaðsíða 5
hafi það verið skemmtilegt, og var ekki langt um liðið frá hjónavigslunni, er orðhvatir Stokkseyringar fóru að hafa það i flimtingum, að kerla leyfði ekki bónda sinum, ungum og fjörmikl- um, að koma i rekkju til sin. Þetta gat tæpast blessazt til langframa, enda gekk bóndinn að heiman eftir eitt ár eða svo. Eftir það mun Þuriöur ekki hafa lagt lag sitt við karlmenn, enda hafði hún þá reynt til fullnustu, að bágt var við þá tæta innan stokks, þótt lagið kynni á þeim á fljótandi fjöl. Arið 1854 kom hingað til lands þýzk kona, Ida Pfeiffer, og lá þeirri konu ekki nein loftunga i munni. Hún tók land i Hafnarfirði og hélt þaðan ótrauð til Reykjavikur, þótt vöruð hefði hún verið við hrauninu, trúlitil á það, að i þessu landi væru vegir verri en i Sýr- landi, þar sem hún hafði einnig verið. Til fylgdar var henni þó fengin kona allroskin, og var það raunar engin önnur en Þuriður formaður, sem þar dvaldist nokkur misseri. Ida Pfeiffer segir svo frá:,,Steig ég á bak á farar- skjótann og hélt af stað hin ókviðnust með fylgdarkonu minni, sem reyndist vera einhver hinn merkilegasti forn- gripur, og er hún vel þess verð, að ég fari um hana nokkrum orðum. Hún var komin yfir sjötugt (reyndar var hún sjötiu og sjö ára), þótt hún liti varla út fyrir að vera fimmtug. Hár hennar var ljósjarpt og mikið og enn hrokkið ofan á höfðinu. Hún var i karl- mannsfötum og tókst á hendur hin erfiðustu verk — stýrði bátum af ekki minni dugnaði og leikni en færustu sjó- menn, stjórnaði öllu betur en nokkur karlmaður og var miklu áreiðanlegri, þvi að hún hafði aldrei tamið sér það staka dálæti á brennivinspyttlunni, sem er svo altitt meðal samlanda hennar. Hún þrammaði á undan me'r og var svo skrefadrjúg, að ég varð að gera svo vel að herða á hesti minum”. Þessi aldna kempa var ekki heldur neitt blávatn, þótt vafalaust hafi hún verið farin að fella talsvert af. Það var ekki aðeins, að hún væri skrefadrjúg. þegar hún skrapp bæjarleið. Hugurinn harði var samur við sig. Haustið áður en hún fylgdi þýzku ferðakonunni til Reykjavikur hafði hún verið i réttum fyrir austan, og þá hafði gamall granni hennar og sveitungi, er aldrei haföi getað fellt sig við búning hennar, brugðið henni um það i margra áheyrn, að hún væri tvikynja. Nú má ætla, að Þuriður formaður hafi svaraö fyrir sig þvi að munninn hafði hún fyr- ir neðan nefið, hvað sem leyndist inn- an klæða. En hún lét ekki orðin nægja, heldur stefndi manninum____fyrir ilÞ mælgi, og það var aðeins fyrir bæna^ stáð prófastsins, aö hún lét sér nægja áuðmjúka fyrirgefningarbón. Mál höfðaði hún einnig á gamalsaldri gegn sveitaryfirvöldúm eystra vegna tregðu þeirra ájið leggja konu, henm nákominni, lið, er henni iá á. Hún bar hærri hlut i þeim viöskiptum, og var hún þó ekki skrifandi sjálf —_gat að- eins klórað nafnið sitt: Þuriður Ein- arsdóttir. Þessi óvenjulega kona varð meira en hálfniræð, og eftir sinn óvenjulega æviferil hlaut hún sjálf þiggja sveitar- styrk siðustu árin. En sú var bót i máli, að hún hafði fulla einurð á að ganga eftir honum, þótt margir kveinkuðu sér við sliku á þeirri tið og þætti læging að.Og nú þegar fólkið i byggðarlögunum við Faxaflóa fer að aka austur i sveitir i finu bilunum sin- um i vorbliöunni, bregður vafalaust margur sér niður á Stokkseyri, meðal annars til þess að lita inn i verbúðina, sem kennd er við Þuriði gömlu. Þar væri svo sem ekki vistlegt fyrir palisanderfólk og hætt við, að við- kvæmustu stofublóm hitaveitualdar felldu þar fljótt blöðin. öllu kaldar blés lika um þá úti á miðun um, brimstrandarmennina, sem áttu drjúgan hluta ævi sinnar i þessari ver- búð og öðrum viðlika, heldur en gerist i kontórum viöskiptahallanna við Suðurlandsbrautina, og öldungis óvist, að vélritunarstúlkunum þar tækist að meðhöndla réttilega horn Þuriðar i haugasjó i Eyrarbakkabug. En sýnist þetta hálfnöturlegt, þá er þess samt að minnast, aö Þuriður náði þeim aldri.sem enn þykir full manns- ævi við beztu heilsugæzlu á Hrafnistu eða i Skjaldarvik, og allmargir háset- ar hennar munu einnig hafa enzt prýðilega. Við vildum að visu ekki eiga að fara i fötin þessa fólks. En samt er það svo: Ef lifið krefðist þess af okkur, er ég sannfærður um, að i býsna mörgum býr langerft þrek, sem gerði þeim kleift að standast slika raun. Það er svo margt, sem maðurinn getur, þegar i harðbakkann slær. Jafn- vel eitthvað af blómjurtunum úr hita- veitustofunum kynni að stælast svo, aö þær þyldu sjórok og seltu. Sjósókn er oröin með öörum hætti en fyrrum, en hátterni mávanna hefur litiö breytzt. Ljósmyndir: Timinn—Gunnar. Sunnudagsblaö Tímans 341

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.