Tíminn Sunnudagsblað - 30.04.1972, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 30.04.1972, Blaðsíða 6
Oddný Guðmundsdóttir: Kaffihlé Starfslið Heimilsgleðinnar varpaði ábyrgð og brauðstriti af herðum sér og rann á kaffiilminn, þar sem Snúlli vinur stóð við hraðasuðuketilinn, með vélrituð blöö i annarri hendi og sagði: „Plis”! TJaTTsettust öll. „SnúHi vinur, niður með þig i kjafta- stólinn og byrjaðu lesturinn, „sagði Gagga plötusnuður, veiðileg og mjó- róma. Gæi glaumgosi varð sjálfur að sækja sér teskeið og sagði: „Vá”! „Vá”! svaraði tik Sigurgeirs ritstjóra frammi i dyrum. Eigandinn skutlaði henni inn á salernið og áminnti hana um þrifnað. Sigurgeir ritstjóri var kallaður skirnarnafni sinu á vinnustað. Enda var hann nýkominn aö blaðinu. Hin nefndust, sin á milli, þeim dulnefnum, sem þau notuðu i blaðinu. Snúlli vinur sá um þáttinn Ráð undir rifi hverju. Gagga plötusnúður réð drauma. Gæi glaumgosi hafði skop- þáttinn Brosandi land. Og nú snaraðist ritstjóri glæpasögunnar, Blóð-Mariu, inn úr dyrunum. Hún hét upphaflega Ásdis Karlsdóttir, gekk undir nafninu Deisi meðal kunningja, en nefndist hér gervinafninu, sem ritað var á glæpasiðu blaðsins. „Snúlli vinur, byrjaðu nú lesturinn!” sagði Blóð-Maria og settist. Snúlli vinur hrærði i bollanum sinum með annarri hendi en fletti blöðum með hinni: „Aldrei á ævi minni hef ég vitað þá geggjaðri, blessaða táningana,!’ sagði hann. „Hér skrifar Ein sorgbitin”: 'TRæri Snúlíi vinur. Ég er 14 ára ög er skotin i A, sem er 18 ára. Hann er stundum eins og honum þyki vænt um mig, en stundum striðir hann mér •svo andstyggilega, eins og hann haidi, að ég sé einhver skjáta. En þaö er ég ekki. Ég græt á nóttunni. Hvað á ég að gera, Snúlli vinur?”. Gérvinafnafólkið skemmti sér svo vel, aö þvi svélgdist á kaffinu. EndaTcunni Snúlli vinur að tjá og túlka tilfinningar bréfritarans meö allavega radd- breytingum og látbragði. Ritstjórinn hló ekki. „Aumingjar eru þetta, sem láta sér detta i huga að fara með annað eins i blöðin. Nær væri að tala við einhverja vinstúlkuna”. „En vinstúlkan gæti ekki gefið heil- ræði eins og Snúlli vinur,” greip Blóð- Maria fram i „Og hvaö sagöir þú viö þessu, Snúlli vinur?” „Ég svaraði svona: Kæra, Ein sorgbitin! Vertu ekki að fornemast, þó að hann striði þér. Hann er bara að skerpa kærleikann meðþvi. Láttu hann skilja, að þú sért skotin i honum. Þó ekki of fröm fyrst, en færðu þig upp á skaftiö með hægð. Ég þori að veðja nýja stæl- bindinu minu upp á það, að þið eigið eftir að koma ykkur saman. Snúlli vinur.” „Þú ert met,” sagði Blóð-Maria. „En láttu okkur nú heyra draumana, Gagga plötusnúður.” Gagga plötusnúður var auðvitað enginn plötusnúður. Hún var innrituð i lögfræði, hringmerkt efnilegum fasteignasala og nýkomin úr Mallorkaferð. Hún las: „Kæra Gagga plötusnúður! Ég er voða spennt fyrir drauma- ráðningunum þinum. Ég þekki krakka i Menntó, sem segja, aö ráðningarnar þinar rætist eins og skot. Mig dreymdi voða skrýtinn draum, mig dreymdi aö gæi, sem ég þekki, gæfi mér gleraugu. Svo tók hann þau aftur og gaf þau annarri stelpu og svo annarri. Hvað merkir þetta? Hvernig er skriftin? Snúlli vinur”. Draumaskvisa. Ég svara svona: Kæra Draumaskvisa. Gleraugu merkja sjónhverfingar. Þú skalt ekki taka alvarlega það, sem þessi strákur segir. Þin Gagga plötu- snúður” „En sniðugt!” æpti Blóð-Maria. „En kannski afstýrir þú trúlofun”. „Alltaf nóg af trúlofunum," anzaði plötusnúðurinn. Gæi glaumgosi stúd. fil. með kven- legt lokkasafn, tók að ræskja sig og fletta blöðum. Hann þótti efnilegasti skopiðjumaður stútfýlunnar og helgaði sig nú list sinni eingöngu. Hann hóf lesturinn: „íþróttafréttir eru þó nokkuð krassandi nú til dags, mundi ég segja. Ameriski hnefaleikameistarinn Lyndon O. Key lék á móti Asiu- meistaranum Sei-Sei-Nei. Og 0. Key danglaði svo rækilega i mótstöðumann sinn, að hann geispaði golunni ^ar á stundinni. Jarðarförin fór fram meö pomp og pragt, og skvisur margar vötnuðu mdsum. Alkunnugt er, að Sei- Sei-Nei hafði sexapíl, þó smávaxinn væri.” 342 Sunnudagsblaö Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.