Tíminn Sunnudagsblað - 30.04.1972, Blaðsíða 17
Björk Ben:
Borgin mín
Nú er borgin
aö vakna af blundi,
gömlu húsin
i miöbænum
geispa letilega.
En Hallgrimsturninn
hljóölátur og viröulegur
horfir yfir borgina
þvi hann
vakir
um eilifð.
Tvö ungmenni
tölta niður Laugaveginn,
hátiðlega ástfangin,
og reyna af
öllum mætti,
að mjakast
inn i hvort annað,
þau trúa á,
að þannig geti þau,
áreiöanlega, tekið við
trufluðum heimi
og takmarkað
vonzku hans.
Astfangin. blóm,
við malbikaöan vegkantinn
opna krónur sinar,
hrista af sér
döggina og breiða
út blöð sin,
til að laða
að sér feitu,
iéttfleygu
fiskiflugurnar,
þegar þeim þóknast
að vakna.
Farartækin pústa
geðvond,
þegar geispandi
eigendur
skipa þeim
af stað.
En starrinn
er i fullu fjöri
i þakrennunni
eða i götuvitanum
að vefja sér
hreiður.
Astarlifið á tjörninni
er i töfra-skrúða,
þar geta
allir synt
sundfatalausir
allan liðlangan
daginn,
án verulegrar
hneykslunar,
meira að segja
látiö færa sér
lint brauð i
munninn.
Nú er allt
skyndilega vaknað,
og allir hefja
störf sin,
með gifurlegum
hraða og gný,
allir hlaupa lafmóðir
um strætin eöa
aka á ólöglegum
hraða.
En ungbarnið,
sem hvilir
i móðurkviði,
hefur enga hugmynd
um öll þessi læti
og veit ekkert
hvað biður þess
frekar en kakan
i ofninum,
sem biður eftir
fullkominni bökun
og hefur enga hugmynd um,
aö það á auðvitað
að borða hana
upp til agna.
Og ef hún fellur,
fær hún
áreiðanlega
að mygla og harðna
i skáp hjá
upppússaðri
rauðsokka-
frú.
€
VID GLUGGANN
R A N N S ÓK N Á
HEGÐUNHÆNSNA
A vegum landbúnaðarhá-
skólans sænska fer nú fram
rannsókn á háttum og hljóðum
hænsna og markmiðið með
þessum rannsóknum er að finna
nothæfan mælikvarða á liöan
þeirra og þrif. Hænsni, sem vel
fer um, og hafa allt, er til þess
þarf, að þau þrifist, haga sér
sem sé öðru visi og klaka á
annan hátt, en þau, sem illa fer
um.
Það er ung stúlka Inger
Bystedt, sem annast þessar
rannsóknir, og hún telur sig
þegar geta greint á milli sextán
hljóð — og hátternistilbrigða hjá
hænsnum. Markmiðið er að geta
i framtiöinni farið i hænsnabúin
og gert þar athuganir af þessu
tagi og dregiö af niðurstöðum
þeirra viðhlitandi ályktanir um,
hvort svo er að hænsnunum búið
sem skyldi og hagkvæmast er.
Þessu likum aðferðum er
talið, að beita megi á fleiri
sViðum: Kanna liðan bú-
fénaðar og hvers konar alifugla
með athugunum á hegðun
þeirra og leiða þannig i ljós,
hvort fóðrun þeirra eða að-
búnaði er ábótavant.
Þessar rannsóknir eru svo til
nýjar af nálinni, og beindist at-
hyglin sérstaklega að hænsnum
vegna þess, að þar er auð-
veldast um þvilikar athuganir.
Annars hafa áður verið gerðir
básar og jötur eftir athugunum,
sem farið hefur fram á hátterni
nautgripa.
Sunnudagsblaö Tímans
353