Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1973, Síða 5
var þetta risaletidýr. Hann ritaði
nokkrar greinar um þennan fund,
nafnlausar, en þegar visindamenn
lásu þær nokkru siðar og fóru að gefa
þessu gaum, hafði dr. Koch oröið upp-
vis af fölsunum sinum, og þegar hann
lýsti yfir, að hann væri finnandinn og
höfundur greinanna, var umsvifalaust
slegið striki yfir þetta, enda talið af
sama toga. Enginn vildi taka mark á
þessu lengur.
Albert Koch hefði getað orðið kunn-
ur og viðurkenndur visindamaður i
ameriskri fornleifa- og dýrafræði. En i
þess stað er hans aðeins minnzt sem
falsarans mikla, sem iðkaði blekking-
ar i blóra við visindin til þess eins að
auðga sjálfan sig á trúgirni almenn-
ings og lét sig staðreyndir og sannleika
litlu skipta.
AK endursagði, aö mestu eftir
grein Robert Silverberg.
Saumaskapur lífsins og
Framhald af siðu 375
— Vannst þú ekki meira hjá kvenfélagasamböndum, eða
lagðist sú starfsemi niður?
— Mér hefði fundizt þessi starfsemi mega verða langlif-
ari, kvenfélögin i dreifbýlinu hefðu þurft að laga þau að
breyttum aðstæðum svo að þau þjónuðu sinum tilgangi. Það
hafa að visu verið haldin alls konar námskeið úti á landi, en
mér hafa þótt þau um of tilviljanakennd og háð tizkufyrir-
brigðum, og þess vegna glatað raunhæfu gildi sinu. Það
þyrfti að koma betra skipulagi á þessi má, og almennt tel ég
brýna þörf á, að verkmenningunni sé meiri sómi sýndur en
verið hefur um árabil.
— Er ekki verkleg kennsla orðin að skyldu?
— Jú það hefur verið um árabil, en það er sú stefna eða
stefnuleysi i handavinnukennslu skyldunámsins, sem ég tel
aö eigi nokkra sök á andúð og virðingarleysi fyrir handa-
vinnu. Fyrr má nú vera skortur á imyndunarafli, þegar
dætur eru farnar að búa til sömu hlutina og mæður þeirra
gerðu. Það væri nú skaðlaust að gera smá útlitsbreytingar.
Eða þegar mörg'hundruð stúlkur eru látnar sauma ná-
kvæmlega eins blú$sur úr sama efni, manni dettur i hug
betrunarhús. Ég veit að telpur 12—16 ára hafa margar
hverjar mikinn áhuga á að sauma á sig föt. Þá skiptir miklu
máli, að þær fái að ráða, hvernig flikin er, og að verkið
gangi fljótt fyrir sigsvo þærgeti notað hana strax. Margar
ungar konur hafa skapað sér heimavinnu við að prjóna
lopapeysur og fleiri eftirsóttar flikur úr islenzkri ull. Ot-
flutningurinn nýtur góðs af þeirri framleiðslu, og fleiri
dæmi mætti nefna um gildi verklegrar kennslu og verk-
menningar yfirleitt, en hér læt ég staðar numið um þetta
mál.
— Og aðlokum Elin, hvaða munur er á þvi að búa i strjál-
býli og þéttbýli?
— Hvort fólki liður betur i bæ eða sveit fer eingöngu eftir
þvi, hvaða lifsform það velur sér, einn kýs þetta annar hitt.
Aðalatriðið er að allar stéttir þjóðfélagsins sýni samhug og
skilning ásamt gagnkvæmri virðingu. Þannig er öryggi
þegnanna bezt tryggt.
K.G.
Sunnudagsblað Tímans
365