Tíminn Sunnudagsblað - 30.06.1973, Síða 13
Þess vegna á ég það líka til að mála eitt i þenna tima og
annað i hinn, og tel að þannig finni ég sjálfa mig bezt. Ég
mála ávallt eins og mér(þóknast og. dettur i hug hverju
sinni, innan þeirra takmarka auðvitað, sem ég er háð i list-
smekk og getu. Hversu æskilegtifnun verajað starfa i þess-
um dúr skal ég ekkert um segja, tel aðeins, að listamaður
þurfi að starfa frjáls og óhábur og velja sér sjálfur verk-
svið eftir þvi.
Fólk er stundum að segja við mig, að ég muni sameina
þetta og hitt i einni mynd og auðvitað getur vel verið, að eitt
og annað úr tveim tiltölulega ólikum verkum, geti'komið
fram i þvi þriðja, eivég hugsa ekki sérlega mikið um það.
Mig myndi heldur aldrei geta dreymt sama drauminn
tvisvar, hvað þá heldur alla ævina, eða framhald eins.
Þetta verðuralltaðráðast af sjálfu sér, eða þvi valdi, sem
á bak við mig býr. Ef einhver segði mér að mála allar
myndir i framhaldi af minni beztu eða færa mig nær ein-
hverju uppáhaldstizkufyrirbæri á myndlistarsviði, myndi
ég aldrei geta farið eftir slikri fyrirsögn, þvi að þá hætti ég
að vera frjáls að eigin mati og væntanlega annarra, sem
sagt þræll tizkunnar, en á þeim vettvangi virðist mér nógu
margir hafa starfað.
— Hvert er viðhorf þitt til listar og listamanna?
— Viðgetum sagt, að listin sé hugsjón, tjáð i hugmynd, hún
byggist á mannlegri tilfinningu, og þess vegna skiptir ekki
megin máli, hvaða aðferð listamaður notar i túlkun sinni,
svo framarlega sem hann er trúr sinni köllun. Meira máli
skiptir það, að hann hafi þá aðferð, sem hann þarfnast til að
koma á framfæri þvi sem i brósti hans býr.
Sumir málarar hafa hrifið mig mjög með verkum sinum,
þeir hafa hlaðið þau slíkri andagift, að það er eins og maður
magnist töfraafli við að skoða þau. Ég á hér við t.d. sum
verk meistara Kjarvals, Gunnlaugs Schevings, Finns
Jónssonar og Jóns Stefánssonar, svo einhverjir séu
nefndir. Þá langar mig til að geta þess, að verk nokkurra
þeirra listamanna, sem sýndu fyrst á septembersýning-
unni 1947 hafa hrifið mig mjög.
— Hvað finnst þéí um störf listafélaga?
— Það er um félög listafólks að segja, að mér finnst þau
hafa verið of mörg og hvert þeirra bera of mikinn svip
lokaðra bóka. Það eru bara örfáir útvaldir, sem vita hvað
þar er að gerast, eða hvort þau eru til nokkurs gagns. Það
á heldur enginn listamaður að vera forgangsmaður félags-
lega fyrir það eitt að hann er félagi. Allt heiðarlegt listafólk
á lika að fá tækifæri til félagslegrar kynningar. Sýningar-
nefnd Félags islenzkra myndlistarmanna hefur nokkrum
sinnum verið svo'vinsamlegt, að velja eina og eina mynd
eftirmigá samsýningar, félagsins hér i fteykjavik, það er
allt og sumt og mér hefur aldrei staðið til boða innganga i
félagið, eða neins konar fyrirgreiðsla. Mér hefur reyndar
veriðtjao, að vinsamlegir listamenn hal'i Lorið mig þar upp,
til inngöngu einu sinni eða tvisvar, en ég ekki hlotið náð
meirihlutans.
— Hvenær má vænta næstu einkasýningar?
— Ég ætla mér að halda sýningu i haust, ef ég fæ einhvers
staðar inni.
— Hefurðu áhuga á að koma upp einkasýningu erlendis?
— Mér hafá boðizt ýmis boðerlendis frá og ýms tækifæri
eru i athugun, t.d. hefur mér boðizt vinnuaðstaða i London.
En meðan landhelgisdeildan stendur og harðnar, fer ég
ekki þangað.Hins vegar hyggst ég fara til Norðurlanda i
vor i forvitnisferð. Ég hef selt myndir til Danmerkur og
Sviþjóðar og það er verið ab leggja að mér að koma þangað
með sýningar. Mig langar aðkanna þabmál.
— Hvaða timi dagsins reynist þér beztur til listsköpunar?
— Með þvi móti að skipuleggja daginn get ég ætlað
heimilisstörfunum vissan tima, og málað þann hluta
Frú Matthea Jónsdóttir, listmálari (Ljósmyndirnar með
viðtalinu tók Guðjón Einarsson)
Eitt mályerka Mattheu —skip. Þau minna á pappirsskipin
sem börnin brutu áður fyrr.
dagsins sem mér finnst æskilegastur, en það er um miðjan
daginn, frá klukkan 13.00 til 17.00 og ætia mér yfirleitt þann
tima, enda get ég þá starfað ótrufiuð, þar sem móðir mín
býr hjá okkur og hefur ofan af fyrir börnunum. Auk þess
tima falla ýmsar stundir til og kannski er ekki alltaf spurt
að þvi, hvort eitthvaö varðandi heimilisstörfin sé ógert, sér-
staklega ef ég er langt komin með mynd og timinn hverfur
frá manni fyrir áhuga á að ljúka verkinu.
Sunnudagsblað Tímans
541