Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 4

Morgunblaðið - 25.04.2004, Síða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ M arg fald a›u punktana flína Punkta›u fla› hjá flér! Vanda›ar flísvörur frá Catmandoo Ver› mi›a› vi› 1000 punkta: 2.000 kr. Smásöluver›: 4.990 kr. Ver›gildi punkta: x3 H ám ark 1000 punktar á hvert tilbo› MÍKRÓFLÍSGALLI F í t o n / S Í A F I 0 0 9 1 7 2 ÞINGMENN suðurkjördæmis mættu á fund vegamálastjóra á mið- vikudag og ræddu nýja skýrslu Línuhönnunar og breskra sérfræð- inga um jarðgangagerð til Vest- mannaeyja. Á fundinn mættu þing- mennirnir Guðjón Hjörleifsson og Drífa Hjartardóttir Sjálfstæðis- flokki, Guðni Ágústsson, Framsókn- arflokki, Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokki og Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingu. Fyrir hönd Vegagerðarinnar mættu Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri, Gunnar Gunnarsson aðstoðarvega- málastjóri og Hreinn Haraldsson sérfræðingur Vegagerðarinnar í jarðgangamálum sem kynnti skýrsl- una. „Hreinn [Haraldsson] taldi að næsta skref væri að setja af stað vinnuhóp þar sem málið verði skoð- að frá upphafi til enda,“ sagði Guð- jón í samtali við Morgunblaðið, og sagðist vonast til að samgönguráð- herra myndi skipa slíkan hóp fljót- lega. Fara þyrfti yfir ýmis atriði í þeim hópi, t.d. hvað varðar öryggis- mál og aðkomu ríkis að kostnaði við göngin, ef af yrði. Guðjón sem er áhugamaður um gerð ganganna, segir að ekki þyrfti að koma til breytinga á samgönguáætlun vegna þeirra, eins og félag áhugamanna um göngin hefur bent á. Til greina kemur að rekstrarfélag, svipað og Spölur sem rekur Hvalfjarðargöng- in, reki göngin. „Við erum að tala um að fá sömu tölu inn í hugsanlegt rekstrarfélag ganganna og ríkið er að borga í dag í rekstur Herjólfs.“ Guðjón segir að skýrslan sem far- ið var yfir á fundinum með forsvars- mönnum Vegagerðarinnar sýni að göng til Vestmannaeyja séu tækni- lega framkvæmanleg. „Það væri mjög gott að setja af stað vinnuhóp til að fara í gegnum þetta,“ segir Guðjón. „Það er búið að skila góðum niðurstöðum um annað sem kemur til greina í samgöngumálum Vest- mannaeyinga. Nú þarf að fara af stað vinna til að kanna hvort að þetta sé raunhæft. Það er lykilatriði að þetta sé inni í umræðunni og langbest að vinna þetta tímanlega og faglega.“ Vilja vinnu- hóp um gangagerð til Eyja „VIÐ mældum þykkt húðfellinga sem er oft betri mælikvarði á hversu feit börnin eru. Við klípu- mælum börnin á fjórum stöðum á líkamanum á nákvæmlega sama hátt og hin löndin hafa gert. Þá fáum við þykkt húðfellinganna eða fitulagi í millimetrum og við fund- um að íslensku krakkarnir eru ein- faldlega 25% feitari. Það er mikið. Við teljum okkur alveg hafa sann- anir fyrir því núna eftir þessa stóru rannsókn að íslensk börn eru meðal þyngstu barna í Evrópu. Það er engin spurning og þetta gæti orðið geigvænlegt heilbrigð- isvandamál í framtíðinni,“ segir Erlingur Jóhannsson, dósent og verkefnisstjóri rannsóknarinnar „Lífstíll 9 og 15 ára Íslendinga“ sem kynnt var á íþróttaþingi ÍSÍ í gær. Erlinur segir kyrrsetuþætti taka æ meira af tíma krakka og t.d. sýni rannsóknin að 38,4% drengja í 10. bekk séu fjóra tíma eða meira í tölvuleikjum á hverjum degi og nærri 26% stúlkna í 10. bekk horfi á sjónvarp í meira en fjórar klukkustundir á dag. Erlingur segir að til þess að sporna við því heilbrigðisvanda- máli sem ofþyngd er þurfi að breyta lífstíl fólks sem snýr að mörgum þáttum í lífi fólks og til að sporna gegn þessari þróun þarf að breyta hreyfi- mynstri fólks og breyta lífstílnum í gegnum hreyfingu. Það þarf að taka á þessu vandamáli á öll- um sviðum þjóð- félagsins.“ Íslensk börn hafa meira þrek „Menn hafa haft áhyggjur af offitu og hreyfingarleysi þjóð- arinnar almennt og við hér á Íþróttafræðisetri Kenn- araháskólans, kynntum okkur mjög stóra alþjóðlega rannsókn sem hefur verið gerð víðs vegar í Evrópu. Þar hafa verið fram- kvæmdar mjög margar mælingar á þessu sviði og við aðlöguðum þá rannsókn okkar hugmyndum. Þarna erum við komin með mjög góða þverfaglega rannsókn þar sem við getum tengt saman holda- far, líkamlegt ástand, hreyfingu, félagslega þætti, matarvenjur og blóðbreytur og fjölda annarra þátta sem ekki hefur verið mögu- leiki á að gera áður.“ Erlingur segir að þrátt fyrir allt hafi ís- lensku börnin reynst í betra líkamlegu ástandi að því er varð- ar þrek. „Einn munur á okkar úrtaki miðað við hin löndin er að við erum með sveit- irnar en þau eru ein- göngu með stórborg- irnar. Við teljum að börnin úti á landi hafi meira þrek.“ Erlingur bendir á að það sé hættuleg þróun að íslensk börn séu að þyngjast því rannsóknir hafi sýnt 70–80% af þeim börnum sem séu of feit eða of þung við 15 ára aldur séu það líka við þrítugs-, fertugs- og sextugsaldurinn. Þann- ig að það virðist eins og það verði ekki aftur snúið. Hann segir að fullyrðingin einu sinni feitur alltaf feitur sé því miður því sem næst sönn miðað við langtímarannsóknir í löndunum í kringum okkur. Erlingur segir á hinn bóginn at- hyglisvert að mataræði barnanna virðist vera að lagast og sé nær ráðleggingum Lýðheilsustöðvar. „Það eru hollari eða betri kaloríur sem börnin eru að borða. Ávaxta- og grænmetisneysla hefur greini- lega aukist hjá níu ára börnum miðað við það sem var fyrir tíu ár- um og það hefur einnig dregið verulega úr neyslu feit- og sæt- metis hjá níu og 15 ára börnum.“ Vægi kyrrsetu verður sífellt meira Spurður hver sé skýringin á því að þrátt fyrir betra mataræði og aukna þátttöku í íþróttum séu börnin að þyngjast segir Erlingur að þar komi kyrrsetuþættirnir inn í myndina. „Rannsóknin sýnir að nærri 26% stúlkna í 10. bekk horfa á sjónvarp, myndbönd eða DVD í meira en fjórar klukkustundir á dag. Það er mjög hátt hlutfall. Fimmtán ára strákar eru meira í tölvuleikjum og 38,4% drengja í 10. bekk eru fjóra tíma eða meira í tölvuleikjum á hverjum degi. Þetta er svakalega hátt hlutfall. Þannig að vægi kyrrsetunnar í lífi þessara krakka er alltaf að verða meira og meira. Tölvuleikir, sjónvarp, myndbönd, DVD er greinilega að taka mikið af tíma krakkanna sem hér áður hefði kannski farið í hreyfingu,“ segir Erlingur. „Gæti orðið geigvænlegt heilbrigðisvandamál“ Erlingur Jóhannsson Fjórði hver drengur í 10. bekk er fjóra tíma eða meira í tölvuleikjum á dag Ingvar sagði að verkið hefði geng- ið mjög vel og væri töluvert á und- an áætlun. Uppsetning ketilsins mikið afrek Þegar farið var að rífa niður verksmiðjuna kom í ljós gamall gufuketill. Hringrásarmenn fengu áhuga á að komast að sögu ketils- ins þegar þeir sáu hvað hann var gamall. Í ljós kom að hann var fenginn úr breskum togara sem strandaði við Arnarnes í norðanverðum Dýrafirði 23. janúar 1934. Togar- inn hét Cape Sable og var frá Hull. Það voru starfsmenn fiskimjöls- verksmiðjunnar á Patreksfirði sem fóru norður í Dýrafjörð til að losa ketilinn úr togaranum og koma honum heim. Ketillinn var þéttur í þeim tilgangi að hann flyti, þannig að hægt yrði að draga hann til Patreksfjarðar. Það var bátur frá Vatneyrarútgerðinni sem dró ket- ilinn. En ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið, því að nú þurfti að koma honum á sinn stað. Festingar með kraftblokkum voru grafnar niður á eyrinni og síðan var þræddur togvír í blokk- irnar frá bátnum í ketilinn, þar sem hann flaut við bryggju, og svo var báturinn látinn draga ketilinn á sinn stað. „Þetta hefur verið ofsalegt afrek sem mennirnir hafa unnið þarna. Þetta er stærðarinnar stykki og vegur 60 tonn. Það er 5 metrar á hæð og 5 metra breitt. Þetta er allt hnoðað og boltað saman. Ef ætti að gera þetta í dag þá yrði trúlega að fá mjög öflugan krana úr Reykjavík,“ sagði Ingvar kraft- lyftingamaður, og kallar hann nú ekki allt ömmu sína. Með færanlega brotajárnspressu Hringrás ehf. er endurvinnslu- fyrirtæki sem unnið hefur úr brotajárni og selt á erlendan markað í yfir fimm áratugi. Það má segja að þetta sé fær- anleg endurvinnslustöð og eru tvö lið í gangi sem eru að vinna að ýmsum verkefnum víðsvegar um landið. En starfið felst í því að búta niður brotajárn sem til hefur fallið síðustu áratugi. Aðalega er farið út á land að sumrinu, og er þá oftast verið að vinna hreins- unarátök fyrir sveitarfélög. „Við erum með færanlega brota- járnspressu á staðnum sem gerir það að verkum að það er hægt að senda brotajárnið beint í verk- smiðju á spáni og er það þá tilbúið beint í ofnana,“ sagði Ingvar. Ýmislegt fleira er á döfinni hjá þeim félögum. „Við vorum í fyrra á Hornafirði, Djúpavogi og Ólafsvík, og í fyrrahaust á Húsavík, Keldu- kerfi og Kópasker,“ sagði Þór Hauksson en Þór hefur starfað hjá fyrirtækinu í mörg ár, hann á reyndar 35 ára starfsafmæli í júní í sumar. „Við erum sex í fyrirtækinu sem erum fastir í að fara út á land en svo koma fleiri starfsmenn að í styttri tíma, þetta er uppgripatími fyrir okkur og hann byrjaði reynd- ar mjög snemma í ár og við erum við mjög sáttir með það. Það er mikil vinna á bakvið þetta allt. Það sem bíður okkar þegar þessu verk- efni lýkur er að taka skip sem er búið að landa upp á Akranesi, það er að vísu bara smádallur 150-200 tonn, við klippum hann niður og skerum. Það er búið að taka hann upp og er verið að olíuhreinsa hann. Vonandi fer líka að bresta á að rífa niður 8 olíutanka sem eru inni í Hvalfirði og búið er að leggja. Svo er annar flokkur sem fer á Austurland, Reyðarfjörð, Nes- kaupstað og Eskifjörð,“ sagði Ingvar að lokum. Vel hefur gengið að rífa gamla mjölverksmiðju og loðnutanka á Patreksfirði Fundu gufu- ketil úr strönd- uðum togara Morgunblaðið/Birna Mjöll Ingvar Ingvarsson, starfsmaður Hringrásar, segir að uppsetning gufuket- ilsins á sínum tíma hafi verið mikið afrek, en hann vegur um 60 tonn. STARFSMENN Hringrásar, sem undanfarnar fjórar vikur hafa verið að rífa niður gamla mjölverksmiðju og loðnutanka á Patreksfirði sem henni fylgdu, telja að gufuketill sem var í verksmiðjunni sé merkilegur og að uppsetning hans á sínum tíma hafi verið mikið afrek. Að sögn Ingvars Ingvarssonar, hjá Hringrás, er niðurrif tankanna og verksmiðjunnar eitt af stærstu verkum þeirra Hringrásarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.