Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 35
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 35
Heimili fyrir þig - þinn hagur er okkar metnaður
sími
530 6500
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
FLÚÐASEL 92 - STÓRGLÆSILEG 4RA
Opið hús í dag
Sérlega vel skipulögð 4ra herb.
íbúð á 3. hæð. Vandaðar sérsmíð-
aðar innréttingar og fallegt eikar-
parket á gólfum. Þrjú rúmgóð her-
bergi og stórar bjartar stofur.
Íbúðin var nýlega sýnd í Innlit -
útlit og er laus fljótlega.
Verð 13,4 millj.
Opið hús í dag frá kl. 16.00-18.00.
Sólveig og Hilmir taka
vel á móti fólki.
SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998
FÉLAG FASTEIGNASALA
MARKLAND 6 - OPIÐ HÚS Í DAG
Góð 85,8 fm 3ja-4ra herbergja
íbúð með fallegu útsýni. Björt og
vel skipulög íbúð á þessum vin-
sæla stað. Góðar svalir í suð-
vestur.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ 14-16.
Telma, sölumaður Eignavals,
tekur vel á móti ykkur. Bjallan er
merkt: Opið hús. Áhvíl. 2,8 millj.
Verð 13,5 millj. (3836)
WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fastsali
FURUGRUND 30 - OPIÐ HÚS Í DAG
Góð 61,7 fm 2ja herb. íbúð í
Furugrund á 1. hæð m/rúmgóð-
um suð-vestur svölum. Eldhúsið
er snyrtilegt með ljósri innrétt-
ingu og flísum á gólfi. Baðher-
bergið er flísalagt í hólf og gólf
með sturtuklefa, nýlega endur-
nýjað. Hús og sameign eru í
góðu ástandi. Stutt er í skóla,
leikskóla og alla þjónustu. Góð
eign á þessu vinsæla stað. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-18.
Telma, sölumaður Eignavals, tekur vel á móti ykkur. Bjallan er
merkt: Opið hús. Verð 10,4 millj. (3844)
Sólvallagata
Nýkomið í sölu 227 fm ein-
býlishús sem er kjallari og
tvær hæðir auk 35 fm bíl-
skúrs. Á aðalhæð er forstofa,
hol, samliggjandi parketlagðar
stofur og eldhús með falleg-
um lökkuðum hvítum innrétt-
ingum og góðri borðaðstöðu.
Uppi eru 3 svefnherbergi, hol
og baðherbergi með hornbaðkari og í kjallara eru forstofa, tvö
herbergi, salerni og þvottaherbergi með sturtu og gufubaði.
Ræktuð lóð með timburverönd og heitum potti. Hiti í stétt og
innkeyrslu. Verð 36,0 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
SKÚTUVOGUR 2 - RVK - TIL LEIGU
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Glæsilegt og vandað nýtt lyftuhús (2. hæð) og
3. hæð (útsýnisturn). Tilvalin eign fyrir t.d.
lögfræðing, verkfr., stofnanir, læknastofur o.fl.
o.fl. Góð aðkoma og næg bílastæði. Einstök
staðsetning og auglýsingagildi. Afh. strax. Ath.
að 1. hæðin, jarðhæð, er öll leigð (Expert og
Europris).
Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali, Bæjarhrauni 10, Hafnarfirði
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
NJÁLSGATA 86 - 3JA HÆÐ
- LAUS FLJÓTLEGA
Góð 2ja herb. íbúð á 3ju hæð.
Íbúðin skiptist í stofu, svefn-
herbergi, eldhús og salerni. Nýtt
pergo-parket er á íbúðinni og
rafmagn yfirfarið. Góð íbúð í hjarta
Reykjavíkur. Áhv. eru 4,9 millj. Verð
9,4 millj.
Stella tekur á móti ykkur í dag
á milli kl. 15.00 og 17.00
Ósannindi eða fleipur
Í viðtali við Bjarna F. Einarsson í
Morgunblaðinu 30. mars sl., þar
sem hann ræðir ma. um dómnefnd
sem fjallaði um umsækjendur um
starf í fornleifafræði við Háskóla
Íslands, ásakar hann mig, sem átti
sæti í dómnefndinni, um að hafa
farið með rangt mál fyrir héraðs-
dómi og annaðhvort
sagt ósatt eða ályktað
um mál án þess að
hafa kynnt mér þau.
Morgunblaðið tekur
þessar ásakanir upp
undir fyrirsögninni:
„Fór með rangt mál
fyrir dómi“. Ég get
ekki látið hjá líða að
svara þessum alvar-
legu ásökunum.
Í viðtalinu segir
ma.: „Bjarni segir
Helga Þorláksson
prófessor í sagnfræði
og einn dómnefndarmanna hafa
haldið því fram fyrir dómi að
Bjarni hafi ekki aldursgreint hið
meinta blóthús og þar af leiðandi
geti hann ekki tengt það við til-
tekið kuml. Hann segir að hér hafi
Helgi farið með rangt mál og að í
gögnum sem hann lagði fram komi
fram að sýni voru geislakolsald-
ursgreind í tvígang. Annaðhvort
hafi Helgi ekki kynnt sér nið-
urstöðurnar eða sagt ósatt fyrir
dómi“.
Kuml og jarðhýsi
Fyrir dómi sagði ég ekkert um það
að Bjarni hefði ekki aldursgreint
umrætt blóthús sem hann þykist
hafa fundið á Hólmi. Ég var beð-
inn um að gera grein fyrir því sem
við dómnefndarmenn teldum að-
finnsluvert við ályktanir hans um
jarðhýsi eða „gróphús“ sem hann
gróf upp á Hólmi og tengdi sér-
staklega við kuml á staðnum. Kuml
er sem kunnugt er heiðinn leg-
staður. Bjarni fann merki um að
menn hefðu farið með eld og skilið
eftir bein í jarðhýsinu og setti það
í samband við kumlið og sá fyrir
sér átveislur eða blótveislur. Ætluð
tengsl við kumlið virðast hafa vald-
ið þessum ályktunum hans um
blót. Þess vegna voru möguleg
tengsl kumls og jarðhýsis afar
mikilvæg fyrir allar ályktanir hans.
Ég lagði út af því sem segir í dóm-
nefndarálitinu um þetta en það er
svona:
Úrskurður um afstöðu jarðhýs-
isins í tíma til kumlsins gæti varp-
að ljósi á þessar minjar. Er það
samtíma, eldra, yngra? Þetta kem-
ur hvergi fram. Þá er galli að af-
staða kumls og jarðhýsis til bæj-
arstæðis er hvergi sýnd á korti.
Ég er ekki fornleifafræðingur en
geri mér far um að færa mér í nyt
niðurstöður fornleifafræðinga að
hætti miðaldasagnfræðinga. Ég
styðst við ályktanir fornleifafræð-
inganna í nefndinni um það að í
þessu sambandi ráði ekki úrslitum
þótt Bjarni hafi látið tímasetja sýni
úr jarðhýsinu með geislakolsgrein-
ingu (C 14). Þau segja að geisla-
kolsgreining sem hann lét gera
segi ekki meira um aldur en það
sem almennt er vitað, að jarðhýsi
eins og Bjarni fann eru frá elstu
tíð Íslandsbyggðar. Greiningin
nægir Bjarna ekki til að álykta
neitt um afstæðan aldur kumls og
jarðhýsis. Það sem Bjarni þurfti á
að halda var aldursgreining sem
sýndi að jarðhýsið hefði verið sam-
tíma hinu heiðna kumli. Fyrir
ályktanir hans skiptir td. miklu að
jarðhýsið hafi ekki verið eldra en
kumlið og verið fallið úr notkun
þegar kumlið var gert. Bjarni sýn-
ir ekki afstöðu kumlsins til jarð-
hýsisins, né þeirra beggja til bæj-
arins á staðnum, hvorki á korti né
út frá jarðlögum, en slík afstaða
hefði getað varpað ljósi á tengsl
minjanna. Undirstöður Bjarna eru
því ótraustar eftir þeim gögnum að
dæma sem hann lagði fram. Hann
hefur ekki nein blóthús á Norð-
urlöndum til samanburðar, ekkert
samanburðarefni og er vant að sjá
á hverju ályktanir hans um blóthús
geta byggst. Fundur jarðhýsisins
gefur ekki tilefni til að álykta ann-
að en að þarna hafi verið íveruhús
fólks sem neytti matar, skildi eftir
bein og fór með eld.
Ásakanir
Ásaknir Bjarna eru
alvarlegar, eins og
kemur fram að ofan.
Fyrir dómi vék ég
fyrst að hinu heiðna
kumli en síðan er haft
eftir mér í beinu
framhaldi: „Hann
[Bjarni] veit hins veg-
ar ekki frá hvaða tíma
jarðhýsið er eða gróp-
hýsið, þannig að það
kann að vera eldra og
það kann að vera
yngra, … og kannski var búið að
leggja það af þegar kumlið var
gert …“. Eins og fram kemur að
ofan nægir geislakolsgreiningin
Bjarna ekki til að skera úr um af-
stæðan aldur kumls og jarðhýsis
og ásakanir hans standast því ekki.
En þótt staðfesta mætti að kumlið
hefði verið til þegar jarðhýsið var í
notkun, er alveg óljóst hvernig það
á að sýna að jarðhýsið hafi verið
blóthús.
Bjarni segir ennfremur um mig:
„Fyrir utan það þá gerir hann afar
lítið úr þeirri þekkingu fornleifa-
fræðinga að aldursgreina út frá
gripum og horfir fram hjá því að
ég get aldursgreint húsið með
jarðlögunum sem er algeng vinnu-
aðferð á Íslandi“. Um þetta sagði
ég ekki neitt fyrir héraðsdómnum
en í dómnefndarálitinu kemur fram
að Bjarni sýnir ekki nein tengsl
jarðlaga á teikningum.
Um fólk úr
enskumælandi háskólum
Bjarni víkur að öðru atriði í viðtal-
inu, hann segir að við dómnefnd-
armenn höfum öll hlotið menntun
okkar „í enskumælandi háskólum
þó svo að þrír af fjórum umsækj-
endum hafi hlotið menntun á
Norðurlöndum“, eins og það er
orðað í viðtalinu. Ég hef aldrei lok-
ið neinu námi við háskóla meðal
enskumælandi þjóða en vann að
doktorsritgerð í Noregi um nokk-
urra ára skeið. John Hines dóm-
nefndarmaður hlaut þjálfun sína í
fornleifafræði í Noregi, tók mörg
sumur þátt í uppgrefti þar sem
ungur maður og talar norsku
ágætlega. Hann fylgist vel með í
norrænni fornleifafræði og hefur
birt greinar um þau efni í norræn-
um fræðitímaritum. Þess má geta
að hann er prófessor í forn-
leifafræði við háskólann í Cardiff,
ritstjóri tímaritsins Mediaeval
Archaeology og er forseti Víkinga-
félagsins svonefnda. Gögn liggja
fyrir um það að reynt var að fá
fræðimann frá Svíþjóð til setu í
dómnefndinni en niðurstaðan var
sú að ekki fyndist neinn hæfur
fræðimaður þarlendur sem jafn-
framt gæti lesið nútímaíslensku
sér að gagni. John Hines gerir það
hins vegar.
Um vinfengi
Þá segir Bjarni í viðtalinu að tvö
okkar dómnefndarmanna hafi auk
þess verið í vinfengi við þann sem
fékk starfið. Um ætlaða vináttu við
hann má nefna að John Hines hef-
ur lýst því að sér vitanlega hafi
hann aðeins hitt hann einu sinni,
áður en kom til dómnefndarstarfa,
og þá talað mjög stuttlega við
hann. Bjarna hefði hann hins vegar
kannast við frá þingi um forn-
leifafræði í Noregi. Sjálfur fullyrði
ég að ég þekkti Bjarna betur en
þann sem hlaut starfið, við áttum
td. allnáið samstarf þegar ég sat í
þjóðminjaráði og Bjarni var ráðinn
til starfa á Þjóðminjasafni. Ég er
sammála Bjarna um að dómnefndir
skulu meta menn á faglegum
grunni, út frá fræðilegum for-
sendum en ekki á grunni kunn-
ingsskapar eða vináttu.
Athugasemd vegna viðtals
við Bjarna F. Einarsson
Eftir Helga Þorláksson ’Ég get ekki látið hjálíða að svara þessum
alvarlegu ásökunum.‘
Helgi Þorláksson
Höfundur er sagnfræðingur og
prófessor við Háskóla Íslands.