Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 34

Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ                   ! " !   #      $  !% ! &'(    ) (  !!  !   ) &  !!( )     )   '  & !  '  ' ** '  !% +         ! $   & ' ! ! ,! )! - ' !  .  /% )!       " "#"  #  $ 0' % $        & ' ! ! Netfang: kjoreign@kjoreign.is Heimasíða: www.kjoreign.is Sími 533 4040 • Fax 533 4041 Opið í dag frá kl. 12.00-14.00 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA Ármúla 21 • Reykjavík jöreign ehf Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali Hákon R. Jónsson, sölumaður Ólafur Guðmundsson sölustjóri, 2JA HERB. ÁRKVÖRN - ÁRTÚNSHOLT Góð 2ja herb. íbúð með sérinngangi í þessu vinsæla hverfi. Stutt í skóla. Rólegt hverfi. Tengt f. þvottavél í íbúð. Parket á gólfum. Fallegt útsýni. Verð 12,9 millj. Nr. 2326 3JA HERB. GRETTISGATA Góð og líflega innréttuð íbúð í góðu húsi. Stutt í miðbæinn. Gott skipulag í íbúðinni. Rúmgóð herbergi. Svalir. Frábær staðsetning. Stærð 88,2 fm. Verð 14,0 millj. 4RA HERB SPORHAMRAR - M/BÍLSKÚR Rúmgóð og falleg 3ja til 4ra herb. íbúð á 3. hæð efstu í litlu fjölbýli. Íbúðinni fylgir góður bílskúr. Suðursvalir. Flott útsýni. Áhvílandi 6,0 millj. byggingarsjóður, 4,9% vextir. Verð 17,5 millj. HAMRAVÍK Rúmgóð og fallega innréttuð endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérgarði í suður. Stærð íbúðar 122,5 fm. Stór svefnherbergi. Sérþvottahús. Frábær staðsetning. Áhv. húsbr. 9,2 millj. Verð 17,800 þús. Nr. 3909 5 TIL 7 HERB FLÚÐASEL - M/BÍLSKÝLI Falleg og rúmgóð 5 herbergja endaíbúð á 2. hæð. Suðaustur svalir. Fjögur svefnherbergi. Parket. Mjög gott skápapláss. Bílskýli. Laus strax. Áhv. húsbr. 8,0 millj. Verð 14,2 millj. Nr. 3892 SÉRHÆÐIR HÁABERG - HF. Hæð í nýlegu húsi sem vantar lokafrágang. Tvöfaldur stór skúr innbyggður. 4 svefnherbergi og 2 stofur. Glæsilegt útsýni og góð staðsetning. Eignin er vel skipulögð að innan. Verð 25,0 millj. SUMARBÚSTAÐIR RUNNABYGGÐ - HVÍTÁRSÍÐA Vorum að fá í einkasölu 60 fm sumarhús á þessum vinsæla stað. Bústaðurinn er fokheldur að innan en tilbúinn að utan. Afhending strax. Upplýsingar veitir Ólafur. Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Til leigu ca 625 fm á jarðhæð Einstaklega glæsileg og vel staðsett skrifstofu- bygging við Laugardal. Séraðkoma inn á hæðina utan frá, beint frá bílastæðum, einnig er aðkoma að hinum umrædda eignahluta í gegnum glæsi- lega og mjög snyrtilega sameign sem er með lyftuhúsi. Sameiginlegt glæsilegt mötuneyti. Rýmið skiptist í móttöku, opin rými en einnig er búið að stúka af skrifstofur og fundarherbergi. Gólfefni eru parket og dúkur. Tölvulagnir eru í öllu rýminu með aðgengi að sérstaklega útbúnu tölvuherbergi í kjallara. Verð tilboð. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. Til leigu - Laust nú þegar Ingvar Freyr og Hulda Björk hafa opið hús í dag, sunnudaginn 25. apríl, frá kl. 14.00 til 17.00 og bjóða alla velkomna. Húsið þeirra er parhús á tveimur hæðum sem stendur á stórkostlegum útsýnisstað og blasir Esjan við. Stór garður er fyrir aftan húsið og er útgengt í hann frá sjón- varpsholinu á neðri hæðinni. 3 svefnherbergi eru á neðri hæð, en vel má nýta plássið sem þar er til að bæta við því fjórða og jafnvel því 5. Stofan og eldhúsið eru á efri hæð. Viðarklætt loft, parket á gólfum. Stórt baðherbergi sem býður uppá marga möguleika. KOMIÐ OG SKOÐIÐ - SJÓN ER SÖGU RÍKARI! Opið hús Hlíðarás 7 - Mosfellssveit Á UNDANFÖRNUM árum hefur stöku sinnum skotið upp kollinum umræða um leigubifreiðaakstur og fyrirkomulag hans hér á landi. Í Morgunblaðinu 19.2. s.l. birtist grein þar sem fram kemur gagn- rýni á skipulag þessa málaflokks á Íslandi undir fyrirsögninni: „Leigubílstjóri rík- isins?“ Opinber afskipti hafa verið talin nauð- synleg hér á landi, líkt og í nágrannalöndum okkar, fyrst og fremst til að tryggja öryggi og hag almennings. Það er talið varða almanna- heill að notendur þessarar þjónustu geti fyrirfram treyst því, að þjón- ustan sé örugg, að sá sem sest inn í leigubifreið geti ekki átt von á að verða misþyrmt, verið rændur eða lent í svindli eða okri, en reynsla af slíku er því miður til staðar víðast hvar þar sem viðlíka reglur eru ekki í gildi. Það er alveg víst, að leigubíll- inn getur orðið gott skálkaskjól fyrir misindis- og glæpamenn, ef strangur agi og reglur eru ekki fyrir hendi. Á Íslandi geta allir sest uppí leigu- bifreið í fullkomnu trausti þess að alls öryggis sé gætt og fyrirfram hægt að gera sér grein fyrir hvað þjónustan muni kosta, enda þarf ekki að þrúkka um verð í hvert sinn né sæta því að ferð sé verðlögð um- fram eðlileg mörk, sem oft gerist þar sem ekki er hámarkstaxti, undir op- inberu eftirliti. Það þarf ekki að setja upp auglýsingar í flugstöðvum hér til að vara við leigubílstjórum, eins og gerst hefur í Prag, og gerðist einnig í Svíþjóð, þegar þessi þjón- usta var gefin frjáls þar. Hér þurfa leigubifreiðastöðvar ekki að auglýsa til að vekja sérstaka athygli á því að ungar konur eða börn séu örugg í bílum frá þeim eins og gerðist í Sví- þjóð. Það er vilji Alþingis og rík- isstjórnar að á Íslandi sé til stétt manna, sem vill starfa við þessa at- vinnugrein af fagmennsku og þekk- ingu og hafi til þess fjárhagslegan grundvöll, en þetta yrði ekki til stað- ar ef aðgangstakmörkun og há- markstaxti yrðu afnumin. Alls stað- ar þar sem reynt hefur verið að afnema þetta hefur það misheppn- ast. Árið 1985 var það gert í 22 borg- um í Bandaríkjunum, t.d. San Diego og Seattle. Það reyndist mjög illa, vandræði urðu í þjónustu, verð hækkaði, okur kom til sögunnar o.fl. Nokkrum árum síðar var á ný sett takmörkun í 18 af þessum borgum bæði með aðgangshindrunum og verðstýringu. Afnám takmörkunar leiðir alltaf til verðhækkunar og annarra vanda- mála. Skipulag og þjónusta á þessu sviði er til mikils sóma á Íslandi, því hér er þess gætt af hálfu hins op- inbera, að slíkar reglur séu í heiðri hafðar. Undirritaður átti stutt samtal við ungan mann fyrir nokkru, sem kvað þjónustu leigubifreiðastjóra á Ís- landi svo hagkvæma, að hann og hans frú hefðu ákveðið að selja ann- an bíl heimilisins, en nota þess í stað leigubíla eftir þörfum. Hann kvaðst nota slíka þjónustu fyrir um 17.000 kr. á mánuði og sparaði umtalsvert, enda rekstur einkabíls mjög dýr hér eða milli 600.000 og 700.000 kr. á ári að lágmarki (sjá uppl. frá FÍB). Hann sagðist vel geta gert sér grein fyrir þessu því hann væri hagfræð- ingur að mennt. Varðandi taxta leigu- bíla er rétt að benda á að hann er í aðal- atriðum byggður upp á meðalverði þeirra bif- reiðategunda, sem not- aðar eru og öllum kostn- aðarliðum við rekstur bílsins eins og þeir eru á hverjum tíma; afföllum, sem er hár kostnaðarliður þar sem þessum bílum er ekið mjög mikið, og ákveðinni launaviðmiðun. Þessir lið- ir taka síðan breytingum eftir vísi- tölu og breytingum, undir eftirliti Samkeppnisstofnunar, á meðalverði bílanna, verði trygginga, eldsneytis, vísitölu launa o.s.frv. Verð þessarar þjónustu tekur því samsvarandi breytingum og annað verðlag í land- inu. Þess má geta, að trygging- ariðgjald leigubíla er um þrisvar sinnum hærra en einkabíls, þunga- skattur er með 25% álagi og að auki þarf hver bílstjóri að greiða til sinn- ar stöðvar um 50.000 kr. á mánuði fyrir þá þjónustu, sem stöðin veitir s.s. símaþjónustu, innheimtu o.fl. Það er ekki mikið svigrúm til hag- ræðingar í rekstri hvers bíls, nema þá á launaliðnum, en slík „hagræð- ing“, með lækkun launa, er áreið- anlega ekki æskileg. Það er staðreynd, að til að standa undir rekstri leigubíls og hafa sæmi- lega afkomu, þarf mikla viðveru, en afkoman er oft í engu samræmi við það. Einnig er staðreynd að alls staðar, þar sem hámarktaxti hefur verið afnuminn, hefur taxtinn hækk- að um 20-25%, en það var t.d. gert í Noregi nýlega á svæðum þar sem reknar eru fleiri en ein stöð, svo það er eins og frjálshyggju- og markaðs- lögmálin gildi ekki alveg í þessari starfsgrein. Það eru athyglisverð ummæli í Mbl. 8.10. 1991, sem höfð eru eftir breskum sérfræðingi og íhalds- manni, Douglas Smith að nafni, um þáverandi samgönguráðherra Breta, Nicholas Ridley, sem var helzti stuðningsmaður Margaret Thatc- her: „Ridley fékk þá flugu í höfuðið að leigubílstjórar í London ættu ekki að vera háðir töxtum heldur ætti að vera hægt að semja við þá í hvert sinn. Þeir ættu því ekki að vera með mæli í bílnum. Reyndu að ímynda þér að þú værir með tengdamóður þína og fimm krakka í eftirdragi, það væri ausandi rigning og þú þyrftir að komast nokkurra kílómetra leið. Bílstjórinn myndi stinga upp á 50 pundum (5.000 ÍSK) og þú mundir ekki eiga margra kosta völ. Á sólbjörtum degi fengjuð þið að vísu að fljóta með fyrir fimm pund. Þegar hugmynd Ridleys spurðist gerði fólk uppreisn, þetta var einum of vitlaust en hugmyndin sýnir hvað menn voru komnir út á hálan ís.“ Á öðrum stað í viðtalinu talar Smith um að sumt hefði ekki átt og eigi ekki að einkavæða: „Ástæðan er sú að mikilvægt markmið, raunveruleg og frjáls samkeppni, næst ekki og getur varla náðst á öllum sviðum, verðlag og þjónusta mótast þá ekki af markaðslögmálum.“ Um svæðaskiptingu er rétt að taka fram að ef hún yrði t.d. afnumin milli Reykjavíkur og Suðurnesja myndi verða sterk tilhneiging hjá mörgum bifreiðasstjórum af Suður- nesjum til að sækja til Reykjavíkur um helgar til að vinna þar sem mest er að gera, en um leið skilja sitt heimasvæði eftir þjónustulaust. Þetta myndi auðvitað skapa ófremd- arástand þar. Það er ákveðin festa og öryggi í framkvæmd þessa málaflokks hér á landi og er það fyrst og fremst til að tryggja hagsmuni almennings og viðskiptavina ásamt því að jafnan sé nægjanlegt framboð leigubifreiða. Á árunum 1991-92 var gerð breyt- ing á utanbæjartaxta þannig að fundið var meðalverð dag- og næt- urtaxta, en við það hækkaði gjaldið á dagtaxta, sem gildir frá 08.00 til 17.00 virka daga, en lækkaði veru- lega á næturtaxta, sem gildir frá 17.00 til 08.00 virka daga og um helg- ar, en langflestar utanbæjarferðir, t.d. á Keflavíkurflugvöll, falla til á þeim tíma, en þá hækkar utanbæj- argjaldið pr. km úr kr. 126,49 í 194,59 eða 54% til að mæta kostnaði við akstur til baka. Það er líka rétt að benda á að bifreiðastöðvarnar bjóða upp á sérstakt tilboðsverð á ferðum í Flugstöðina, sem er nú kr. 7.500 fyrir fjögurra farþega bíl. Á Stór-Reykjavíkursvæðinu eru mun fleiri leigubifreiðar miðað við íbúafjölda en er í flestum samsvar- andi borgum í nágrannalöndum okk- ar eða u.þ.b. 350 íbúar um hvern leigubíl hér, en samsvarandi tölur voru árið 2000 um 1060 í Osló, 525 í Stavanger, 626 í Björgvin svo dæmi séu tekin. Ástæðan fyrir meiri fjölda bíla hér er það álag, sem myndast um helgarnætur, sérstaklega aðfaranætur sunnudaga í ca. 4 – 5 klukkustundir. Vinnan á öðrum tím- um vikunnar réttlætir sjaldan svona mikinn fjölda leigubifreiða. Rétt er að benda áhugasömum á BS-ritgerð Sigfúsar Bjarnasonar, „Fyrirkomulag leiguaksturs á Ís- landi í alþjóðlegu samhengi“ nr.VD- BSc-2001-039 frá Háskólanum í Reykjavík, en þar er gerð mjög góð úttekt á þessum málum. Skipulag leigu- bifreiðaaksturs Eftir Guðmund Bogason ’ Opinber afskipti hafaverið talin nauðsynleg hér á landi, líkt og í ná- grannalöndum okkar, fyrst og fremst til að tryggja öryggi og hag almennings. ‘ Höfundur er leigubifreiðastjóri og stjórnarmaður í Frama og B.Í.L.S. Guðmundur Bogason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.