Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 23

Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 23 adzic telur sig hafa staðið við sinn hluta samkomulagsins og hefur þess- um skilaboðum verið rækilega komið á framfæri af konu hans. Og það rennir óneitanlega stoðum undir þessa kenningu að aðspurður hefur Holbrooke ekki fengist beinlínis til að hrekja hana. Ekki fer milli mála að flestir Bosníakar sem máttu þola mestu þjáningarnar í stríðinu telja mjög trúverðugt að slíkt griðasam- komulag hafi verið gert. Frammistaða SFOR og del Ponte Þegar herir Atlantshafsbandalags- ins tóku sér stöðu í Bosníu til að tryggja að friðurinn samkvæmt Dayton/París yrði festur í sessi máttu þeir glíma við afar viðkvæma stöðu. Allar þrjár meginfylkingar í stríðinu töldu sig hafa borið minna úr býtum en þeim bar. Þannig syrgðu Bosníu- Serbar að Sarajevó hefði í raun fallið Bosníökum í skaut með því að senda vopnaða öfgamenn inn í serbnesk hverfi borgarinnar og hrekja þá yfir til Republika Srpska. Algengt var að til minni háttar skotbardaga kæmi yf- ir fyrrum átakalínu og öryggi her- manna og borgara var lítið. Kannski þarf ekki að undra að herliðið hafi ekki sett það á oddinn þá að hand- sama eftirlýsta stríðsglæpamenn. Fáir hafa verið jafn yfirlýsinga- glaðir í þessum efnum og Carla del Ponte, yfirsaksóknari stríðsglæpa- dómstólsins i Haag (ICTY). Hún hef- ur óspart gagnrýnt Atlantshafs- bandalagið, einkum Bandaríkja- menn, Breta og Frakka, og sakað um linkind. Aðrir telja að del Ponte sé full yfirlýsingaglöð og ekki sé til inni- stæða fyrir öllum hennar staðhæfing- um. Hún lýsir reglulega yfir hvar Ka- radzic og Mladic sé að finna og einnig hvar þeim hafi sést bregða fyrir. Svo rammt hefur að þessu kveðið að sleg- ið hefur í brýnu milli ICTY og SFOR bakvið tjöldin vegna þessa. Undirritaður hefur til að mynda sjaldan séð hinn annars skapgóða og hægláta Robertson lávarð jafn ergi- legan og á blaðamannafundi hér í Sarajevó þegar hann var inntur eftir ummælum del Ponte. Robertson var þá að kveðja sem framkvæmdastjóri NATO og var spurður hvort honum þætti eðlilegt að Karadzic hefði ekki enn verið handsamaður. Þá hafa yf- irlýsingar bandarískra embættis- manna og vakið athygli nýskeð en það er ljóst að þeir eru orðnir þreyttir á gagnrýninni frá del Ponte. RS og alþjóðlegar skuldbindingar Fulltrúar alþjóðasamfélagsins hér í Bosníu hafa enn í mörgu að snúast þótt liðinn sé tæpur áratugur frá því að stríðinu lauk. Hyggja þarf að efl- ingu réttarríkisins og þar skiptir lög- regluaðgerð ESB (EUPM) miklu. Framundan er sú vinna að stórefla getu lögreglu til að takast á við skipu- lagða glæpastarfsemi og mansal, svo dæmi séu nefnd. Enn er verið að hreinsa til í gerspilltu dómskerfi. Með einhverjum hætti verður að freista þess að koma efnahagskerfinu í gang, en þrátt fyrir að andvirði liðlega 10 milljarða evra hafi runnið hingað eftir stríð er verg þjóðarframleiðsla ennþá lægri en fyrir stríð. Og í haust eru svo enn einar kosningarnar. Fulltrúar NATO/SFOR og æðsti yfirmaður alþjóðasamfélagsins hér í Bosníu og Hersegóvínu, Ashdown lá- varður (fyrrum leiðtogi frjálslyndra í Bretlandi), hafa bent á að stjórnvöld í Republika Srpska hafi gengist undir kvaðir sem leggi ábyrgðina á að góma Karadzic á þeirra herðar. Lögregla í Republika Srpska hefur hins vegar lítið látið að sér kveða í þessum efn- um. Þó má segja að hún hafi í fyrsta sinn sýnt einhverja getu og vilja til að fást við eftirlýsta stríðsglæpamenn um miðjan apríl þegar einn maður lá í valnum eftir aðgerð í Visegrad þar sem reynt var að handsama tvo ætt- ingja hans. Talsmenn alþjóðasam- félagsins telja hins vegar að takist ekki að koma Karadzic á bak við lás og slá muni Bosnía aldrei eiga sam- leið með öðrum frjálsum ríkjum í Evrópusambandinu og Atlantshafs- bandalaginu. Vandinn við þessa að- ferðafræði er hins vegar sá að svo virðist sem leiðtogar þjóðernissinn- aðra Bosníu-Serba muni fyrr standa einangraðir frammi fyrir alþjóðasam- félaginu en að koma upp um leynistað Karadzic. Í þeirra huga er það póli- tískt sjálfsmorð að taka þátt í því að framselja þennan eftirlýstasta stríðs- glæpamann Balkanskaga. Þeir horfa til Serbíu þar sem samstarf við ICTY leiddi til ósigurs umbótaafla í síðustu kosningum. Og í haust eru kosningar í Bosníu. SDS mun vísast hyggjast nýta sér frekari aðgerðir til að hand- sama Karadzic sér til framdráttar heldur en hitt. Við þessar aðstæður verður fróðlegt að fylgjast með fram- göngu SFOR á þessu síðasta ári her- liðsins í Bosníu, en um næstu áramót er stefnt að því að Evrópusambandið taki við hlutverki SFOR og að alþjóð- legur herafli verði þá um sex þúsund manns, eða einn tíundi af því sem var eftir að stríðinu lauk. Höfundur er forstöðumaður kynning- armála og prótokolls hjá lögreglu- aðgerð ESB í Bosníu og Hersegóvínu, EUPM (European Union Police Miss- ion). Hann starfar þar á vegum Íslensku friðargæslunnar. Þær skoðanir sem fram kunna að koma í þessari grein eru höfundar. Samkeppni um nafn á hóteli í Eimskipafélagshúsinu Heimsferðir auglýsa eftir tillögum um nafn á hóteli í húsi Eimskipafélagsins í Pósthússtræti 2. Húsinu verð- ur breytt í glæsilegt 4 stjörnu hótel og óskað er eftir tillögum um nafn sem hæfir slíku hóteli um leið og það þarf að vera auðvelt til notkunar til kynningar á erlendum mörkuðum. Vinsamlegast sendið tillögur til Heimsferða, merktar: Nafnasamkeppni - hótel Heimsferðir Skógarhlíð 18 105 Reykjavík eða á tölvupóstfang: hotel@heimsferdir.is Vinningshafi vinnur ferð í leiguflugi Heimsferða að upphæð kr. 100.000. Ef margir eru með tillögu að því nafni sem valið er, er dregið úr nöfnum þátttakenda. Vinsamlegast skilið tillögum fyrir 5. maí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.