Morgunblaðið - 25.04.2004, Side 38
FRÉTTIR
38 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Vegna skipulagsbreytinga eigum
við eftirfarandi til ráðstöfunar í
þessu glæsilega húsi.
2. Hæð framhús. samtals 336 fm. Skrifstofur
í toppstandi, gott lyftuhús, glæslegt útsýni
yfir Laugardalinn.
Húsnæðið uppfyllir allar kröfur til nútíma
skrifstofureksturs.
Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt
sérhæft fasteignarfélag.
Sanngjörn og hagstæð leiga fyrir rétta aðila.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242.
Suðurlandsbraut - til leigu
Sýnum í dag sérlega glæsilega 108 fm
3ja herb. íbúð á 1. hæð ásamt stæði í
bílageymslu. Fallegt útsýni til suðurs.
Sérinngangur. Sérgarður til suðurs með
hellulagðri verönd. Jaddis steinskífa á
gólfum. Allar innréttingar eru úr ljósum
öli. Í eldhúsi eru mjög vönduð tæki, m.a.
gaseldavél og tvöfaldur amerískur
ísskápur með klakavél. Stór og björt
stofa, þvottahús og lítil geymsla innan
íbúðar, einnig sérgeymsla í kjallara.
Hiti í stéttum við inngang og malbikuð bílastæði. Sérlega vönduð eign í alla
staði. Áhvílandi húsbréf til 40 ára 9,1 millj. Verð 17,8 millj.
Opið hús - Gvendargeisli 84
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Við erum öflugir í atvinnuhúsnæði
www.husid.is
533 4300
Salómon Jónsson
- löggiltur fasteignasali
Dalbrekka Kóp. - 400 fm
Til sölu: Verslunar- og lagerrými
með skrifstofum, gólfflötur 235 fm,
milligólf 115 fm + 50 fm, eða sam-
tals 400 fm. Innkeyrsluhurð 6 m á
breidd og 5 m á hæð. Stæði upphit-
uð. V. aðeins 23,5 millj. (Björgvin)
Fiskislóð Rvík - 700 fm
Til sölu: Glæsilegt og vandað at-
vinnu- og þjónustuhúsnæði á 2
hæðum, samtals 700 fm. Auðveld
kaup, lítil útborgun! Hugsanleg skipti
koma einnig til greina. (Björgvin)
Hvaleyrarbraut Hf. - x4 bil -
1100 fm
Til sölu: Mjög vel staðsett inn-
keyrslu- og þjónustuhúsnæði, ná-
lægt höfninni í Hafnarfirði. Stálgrind
á steyptan kjallara. Hægt er að
skipta húsnæðinu í 4 sjálfstæðar
einingar, 270 fm hvor. Hagstætt verð
og kjör.
Hafnarstræti - Miðbærinn -
743 fm
Til sölu eða leigu: Frábærlega stað-
sett húsnæði. Samþykktar teikningar
fyrir veitingastað. Húsnæðið er kjall-
ari, 2 hæðir og rishæð, samtals
743,3 fm. Mjög mikið endurnýjað.
Húsið skilast tæplega tilbúið undir
tréverk. Hér er tækifæri fyrir athafna-
fólk. V. 59,0 millj. (Björgvin)
Skúlagata Rvík - 130 fm
Til leigu: Glæsilegt skrifstofu- og
þjónusturými á jarðhæð, um 130 fm
(brúttó), við sjóinn með glæsilegu út-
sýni til Esjunnar, 3 skrifstofur og op-
ið vinnurými. Hagstæð leiga, laust
nú þegar. (Björgvin)
Borgartún Rvík - 490 - 813 fm
Til sölu eða leigu: Mjög gott skrif-
stofuhúsnæði í nýlegu húsnæði.
Sterkur linoleum-dúkur, 3-4 skrif-
stofur, 2-3 fundarherb., eldhús, sal-
erni, kerfisloft, opið vinnurými. Auð-
velt að skipta í smærri einingar.
Laust. (Björgvin)
www.
husid.is
Atvinnuhúsnæðisdeildin veitir þér framúrskarandi þjónustu og
ráðgjöf, hvort sem þú ert að leigja, selja eða kaupa atvinnuhúsnæði.
Við erum reynslumiklir á okkar sviði og vinnum ávallt í fyllsta trúnaði.
Hafðu endilega samband, Björgvin, Bjarni og Óskar.
Opið hús
Hringbraut 57
90 fm, 3ja herb. íbúð í þríbýli
Til sýnis og sölu mjög falleg 90 fm, 3ja herbergja
íbúð á fyrstu hæð í þríbýlisparhúsi auk 22 fm bílskúrs
og fyrir framan hann er sérbílastæði. Íbúðin snýr að mestu
í suður. Verð 14,3 millj.
Guðrún verður með heitt á könnunni og tekur vel á móti
þér og þínum í dag, sunnudag, milli kl. 14.00 og 17.00.
Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar, sími 511 1555.
FÉLAGARNIR Einar Jónsson og
Róbert Hlynur Baldursson ákváðu
fyrr á árinu að víkka sjóndeildar-
hringinn með því að fara til útlanda
að vinna. Þeir fengu starf í gróður-
húsi í Hollandi í gegnum Eures eða
EES-vinnumiðlunina, en hún er
bandalag opinberra vinnumiðlana á
Evrópska efnahagssvæðinu. Einar
og Róbert segja að þegar út kom hafi
þeir gert sér grein fyrir því að það
sem þeim hafði verið sagt um vinnu-
aðstöðu hjá hollenska vinnuveitand-
anum stóðst ekki.
Róbert segir þá félaga, sem eru tví-
tugir Húsvíkingar, hafa farið utan 4.
mars og átt að byrja að vinna 8. mars.
Þeim hafi þó ekki litist á blikuna þeg-
ar út kom og snúið aftur heim til Ís-
lands 13. mars eftir nokkurra daga
ferðalag.
„Við rötuðum inn á þessa atvinnu-
miðlun sem bauð upp á þetta starf í
Hollandi. Starfslýsingin hljómaði
ágætlega. Við áttum að vera að rækta
pottaplöntur og sjá um þær í gróð-
urhúsum. En þegar við komum út þá
var þetta langt frá því að vera í sam-
ræmi við lýsingar. Þegar við mættum
á staðinn voru aðstæður hreint út
sagt hryllilegar,“ segir hann. Starfs-
fólki var gert að gista í gámum, sem á
voru gluggar og hurðir. Sex manns
deildu gámi en að sögn Róberts var
aðeins einn lykill sem allir urðu að
nota. Þá hafi hver lyklanna að gám-
unum gengið að hinum gámunum
líka. Skápapláss hafi verið lítið og að-
eins ólæstar geymslur fyrir farangur.
„Í gámnum var svo einn lítill raf-
magnsofn sem gerði lítið gagn og enn
minna þar sem hurðin að vistarver-
unum var óþétt. Við áttum svo að
gista í 3 kojum með illa förnum plast-
dýnum,“ segir Róbert.
Vinnutapið vegur þungt
Hann segir baðaðstöðuna sem
starfsfólki var boðin hafa verið útat-
aða skít og drullu. „Klósettið hafði
ekki verið þrifið í nokkur ár að því er
virtist og sturtan ekki heldur. Fyrir
ofan sturtuna var svo myndarleg
risamygla, fjör að sturta sig þar!“
segir Róbert. Hann segir eldhúsið
hafa verið síst skárra.
Að sögn Róberts leist þeim fé-
lögum ekkert á blikuna og ákváðu að
hætta við allt saman og koma sér
heim. Hann segir förina hafa verið
mikil vonbrigði og þótt þeir hafi ekki
varið miklu fé í ferðina sjálfa, í kring-
um 60–70 þúsund hvor, þá vegi vinnu-
tapið þyngra. Þeir útskrifuðust báðir
úr framhaldsskóla um síðustu áramót
og ætluðu þá strax að reyna að kom-
ast til útlanda í vinnu fram á vor. Ró-
bert segir að þeim hafi verið bent á að
tala við Eures, en Vinnumálastofnun
er tengill við evrópska netið fyrir Ís-
lands hönd. Erfitt hafi reynst að út-
vega þeim vinnu strax um áramót,
þar sem flestir vilji fá fólk í vinnu á
vorin. Þeir hafi því ákveðið að taka
starfinu í Hollandi sem byrjaði
snemma í mars. „Það vildi ekki eitt
einasta fyrirtæki sem við töluðum við
ráða mann í svo stuttan tíma,“ segir
Róbert um millitímabilið frá því þeir
útskrifuðust í desember og þar til
þeir komust til Hollands. Þrír mán-
uðir hefðu þannig verið launalausir.
Vilja í mál við vinnumiðlun
og vinnuveitanda
Róbert og Einar eru afar vonsvikn-
ir yfir því hvernig fór. „Nú er staðan
sú að við viljum að sjálfsögðu fara í
mál við bæði vinnumiðlunina og garð-
yrkjufyrirtækið. Það sem við viljum
fá er endurgreiðsla ferðakostnaðar
sem og skaðabætur fyrir alla þá
vinnu sem við frestuðum fyrir þetta,“
segir Róbert.
Jón S. Karlsson ráðgjafi hjá EES-
vinnumiðlun í Hafnarfirði segist ekki
vita til þess að aðrir hafi lent í því
sama og Róbert og Einar. „Þetta er
eina dæmið sem ég veit um. Það hef-
ur verið settur upp sameiginlegur
gæðastaðall þar sem sett eru fram
skilyrði um lágmarkslaun og aðbúnað
eins og þau eru í viðkomandi landi. Ef
grunur leikur á að óprúttnir vinnu-
veitendur séu að nýta sér þetta sam-
eiginlega vinnumiðlunarkerfi þá fá
þeir ekki lengur að auglýsa störf í
upplýsingakerfi Eures. Jón segir þó-
nokkra Íslendinga hafa starfað við
uppskeru- eða landbúnaðarstörf í
Danmörku, hliðstæð þeim sem bjóð-
ist í Hollandi, en þar hafi ekki komið
upp vandamál af þessari stærðar-
gráðu.
Fóru til Hollands á vegum Eures til að vinna við garðyrkju
Aðbúnaðurinn fyrir
neðan allar hellur
Sami lykill gekk að öllum gámum sem starfsfólkið bjó í. Vaskurinn í eldhúsinu sem Róbert og Einar notuðu.
Fréttir í tölvupósti