Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.04.2004, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR Dúa, Sörlaskjóli 60, sem lést á Landspítalanum Fossvogi laugar- daginn 17. apríl, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 26. apríl kl. 15.00. Guðbjörn Guðjónsson, Margrét Valdimarsdóttir, Sigurjón Yngvason, Steinunn Valdimarsdóttir, Steingrímur Dagbjartsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson, Unnur Valdimarsdóttir, Eyþór Benediktsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, ERLENDAR Ó. JÓNSSONAR skipstjóra, Austurströnd 8. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunarþjónustu Karitasar og starfsfólki líknardeildar Landakotsspítala fyrir einstaka alúð og góða umönnun. Ásta M. Jensdóttir, Edda Erlendsdóttir, Ólína Erlendsdóttir, Guðmundur Örn Ragnarsson, Erlendur Jón Einarsson, Steingrímur Óli Einarsson, Birna Dís Björnsdóttir, Margrét Ásta Guðmundsdóttir, Grétar Magnús Grétarsson, Ragnar Örn Guðmundsson, Styrmir Örn Guðmundsson og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, RAGNARS BJÖRNSSONAR húsgagnabólstrara, Ölduslóð 26, Hafnarfirði. Ólafía Helgadóttir, Helga Þóra Ragnarsdóttir, Magnús Pálsson, Birna Katrín Ragnarsdóttir, Björn I. Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og sonur, EINAR ARNALDS rithöfundur, Bugðulæk 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 27. apríl kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag Íslands og Slysavarnafélagið Landsbjörg. Sigrún Jóhannsdóttir Dagný E. Arnalds, Ólöf Helga Arnalds, Klara Jóhanna Arnalds, Ásdís Arnalds. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR JENSDÓTTUR, Víðilundi 24, Akureyri. Einnig sérstakar þakkir til starfsfólks lyflæknis- deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Kristján Stefánsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Antonío Orpínell, Kristján Kristjánsson, Sigrún Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Jón Frímanns-son fæddist í Reykjavík 21. maí 1940. Hann lést á heimili sínu 8. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðríður Hreins- dóttir húsmóðir, f. 22.12. 1902 í Kvíar- holti í Rangárvalla- sýslu, d. 4.4. 1995, og Frímann Jónsson verkamaður, f. 14.7. 1903 á Bakka í Svarfaðardal, d. 4.9. 1993. Bróðir Jóns er Hreinn Frímannsson, kvæntur Birgit Helland og eiga þau fjög- ur uppkomin börn og fjögur barnabörn. Hinn 13. júlí 1963 kvæntist Jón eftirlifandi eiginkonu sinni, Aðalheiði Jónsdóttur, f. 28.7. 1944. Foreldrar hennar voru Jón Bjarnason bifvélavirki og Aðalheiður Eggertsdóttir hús- móðir. Börn Jóns og Aðalheiðar eru: 1) Þóra, f. 18.1. 1964. Börn hennar eru Jón Frímann, Að- alheiður Ásdís, Guðrún Ósk og Jóhanna Sigurrós. 2) Ásdís, f. 10.3. 1967, gift Halldóri Ármanns- syni. Börn þeirra eru Guðríður Eva, Ármann Ævar og Íris Ósk. Jón ólst upp í for- eldrahúsum. Hann stundaði vélvirkja- nám í vélsmiðju Jóns Sigurðssonar í Reykjavík á árun- um 1959–63 og lauk sveinsprófi við Iðn- skólann í Reykjavík árið 1963. Hann fluttist ásamt eigin- konu sinni til Sandgerðis árið 1965 og sinnti þar ýmsum trún- aðarstörfum fyrir sveitarfélag- ið. Þá vann hann við viðgerðir hjá fiskvinnslustöðvum og í bát- um, lengst af hjá Útgerðarstöð Guðmundar Jónassonar. Jón hóf störf hjá Varnarliðinu 1976 og gegndi þar m.a aðstoðarverk- stjórastöðu til æviloka. Árið 1991 fluttust Jón og Alla til Keflavíkur og hafa búið þar síð- an. Útför Jóns fór fram frá Kefla- víkurkirkju 20. apríl. Elsku pabbi minn, hetjan mín sem varðst að láta undan þessum illvíga sjúkdómi en það var ekki baráttulaust, því hugsunin var svo sterk að halda áfram enda varstu að vinna fram á síðasta dag. Allt líkamlegt þrek var nýtt þótt lítið væri eftir, því aðgerðarleysi var ekki til í þínum huga. Elsku pabbi minn, mikið á ég eftir að sakna þín að geta ekki leit- að til þín, til hlýju þinnar og styrks, fengið ráðleggingar um hvað sem var eða hjálp, því alltaf hafðir þú svör á reiðum höndum, enda varstu víðlesinn og kunnir til svo margra verka. Stundirnar sem við áttum saman eru mér ómetanlegar og gleymast ei. Ég veit þú varst ekkert að hreykja sjálfum þér en þú átt svo sannarlega hrós skilið. Afabörnin eiga eftir að sakna þín því alltaf þótti þér vænt um þau og tókst vel á móti þeim með glettni þinni og hlýju. Ég vona samt elsku pabbi að þér líði vel núna hjá afa og ömmu og þínum áskæru vinum. Guð blessi þig og gefi mömmu styrk í sorg- inni. Þú hraða tíð, er flýgur fljótt og fyrr en varir hverfur skjótt, en kemur eitt sinn aftur, oss kenn, hve ótt að ævin þver, en eilíft líf í skauti ber Guðs sterki kærleikskraftur. (V. Briem.) Þín dóttir Ásdís Erla. Elsku pabbi. Það er ótrúlegt að þú sért búinn að kveðja þennan heim, þín verður sárt saknað. Ég held að ég megi vera stolt af því að eiga þig sem föður og afa því börn- in, Jón Frímann, Aðalheiður, Guð- rún Ósk og Jóhanna Sigurrós sakna þín sárt, að þurfa að horfa á eftir besta afa í heimi. Ég fékk gott uppeldi og ég held að ég sé að endurspegla það í mínu uppeldi á börnunum. Þú varst ótrúlega þol- inmóður maður, það skemmtu sér allir vel í kringum þig, þú varst oft hrókur alls fagnaðar, þú varst allra handa smiður, það var alveg sama hvað þú tókst þér fyrir hendur, þú gerðir allt vel enda oft beðinn um hjálp hvort sem það var bílavið- gerðir, smíði, pípulögn eða hvað sem var, þú gast allt. Einnig víð- lesinn mjög, það var alveg sama hvað þú varst spurður um, þú viss- ir hvað það hét eða var. Þið ferðuðust mikið í gegnum tíðina alveg frá því ég man eftir mér, alltaf var farið í ferðalög um hverja helgi eða við hvert tækifæri og börnin mín fengu að kynnast því. Þau ferðuðust mikið með afa og ömmu bæði hérlendis og er- lendis. Enda lifir í minningunum hvað það var þeim ómetanlegt, þau eiga eftir að sakna þín sárt ásamt mér. Þau geta ekki til þess hugsað að þú sért farinn. Þau leituðu til þín eftir hjálp við hverju sem er. Ég sagði þeim að hringja í afa og spyrja hann ef þau vantaði að vita eitthvað og alltaf varstu með svar. Það var afskaplega fátt sem þú vissir ekki eða gast ekki. Oft fékk ég leiðbeiningar frá þér sem ég sótti eftir en fór því miður ekki alltaf eftir þeim enda hafðir þú líka alltaf rétt fyrir þér. Þú bjóst yfir ótrúlegum styrk. Meðan á veikind- unum stóð þurftir þú oft á spítala en alltaf reist þú upp, fórst til vinnu, smíðaðir heima, varst alltaf að gera eitthvað, það var aðeins þrem vikum fyrir andlátið þitt að þú reistir upp vegg og smíðaðir fársjúkur. Þegar þú varst orðinn alveg rúmliggjandi óskaði maður sér að þú myndir rísa upp aftur. Jón Frímann sagði rétt áður en þú kvaddir þennan heim: „Nú missi ég mömmu, pabba og afa,“ og það var satt, þú varst honum allt enda saknar hann þín sárt eins og við hin. Þú hafðir gaman af því að ferðast jafnt hérlendis sem erlend- is, þú og mamma ferðuðust tals- vert þá erlendis með vinafólki enda treysti fólk þér vel bæði að keyra erlendis og tala erlend tungumál. Þú varst vel að þér í nokkrum tungumálum, fólk lagði allt traust á þig og var öruggt með þig sem ferðafélaga enda tek ég undir það ég var aldrei hrædd þeg- ar þú varst nálægt. Eins og hjarta mitt var lítið þá tókst þér að róa það niður. Elsku mamma, megi guð styrkja þig í þessari miklu sorg. Þú ert bú- in að standa þig eins og hetja við hliðina á honum. Elsku pabbi, ég er stolt af því að hafa átt þig sem föður og þakka þér fyrir allt. Ég á eftir að sakna þín sárt, þetta er eiginlega ótrú- legt. Það verður mjög tómlegt án þín. En ég hugsa til þín á hverjum degi og bið fyrir þér og mömmu. Maður huggar sig við það að þú þarft ekki að líða þessa kvalir meir og það hefur verið tekið vel á móti þér, og ég hugga mig við minning- arnar. Kveðja frá afabörnunum Jóni Frímanni, Aðalheiði Ásdísi, Guð- rúnu Ósk og Jóhönnu Sigurrós. Þín dóttir Þóra. Það er orðið langt síðan ég sá Jón fyrst. Það er öll mín ævi, því hann var minn trausti stóri bróðir. JÓN FRÍMANNSSON ✝ Ásbjörn Pálssonfæddist á bænum Hærukollsnesi í Geit- hellnahreppi í Suður- Múlasýslu 7. janúar 1914. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 11. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sigríður Ing- veldur Ásmundsdótt- ir frá Flugustöðum í Álftafirði í S-Múl., f. 14. janúar l886, d. 1. febrúar 1929, og Páll Þorsteinsson frá Geithellum, f. 14. apríl 1891, d. 2. maí 1977. Systkini Ásbjarnar eru: 1) Kristín, f. 10. nóvember 1912. 2) Þorbjörg, f. 24. ágúst 1915. 3) Þórir, f. 7. nóvem- ber 1916, d. 20. maí 1953. 4) Aðal- björg, f. 24. maí 1914. 5) Dagný, f. 18. maí 1920, d. 22. desember 1936. 6) Ragnheiður, f. 6. nóvem- ber 1922. 7) Haukur, f. 9. janúar 1928. Ásbjörn kvæntist hinn 31. des- ember 1951 Hallfríði Önnu Tóm- asdóttur frá Hofsósi, f. 19. janúar 1919, d. 16. desember 1999. Hjá þeim hjónum ólust upp: 1) Sigur- lína Ásta Antonsdóttir, f. 1. sept- ember 1948, maki Arnar Daðason, f. 7. febrúar 1948. Börn þeirra: a) Ásbjörn, í sambúð með Erlu Birg- isdóttur. Þau eiga dótturina Hrund. b) Daði, í sambúð með Sól- eyju Guðgeirsdóttur. Þau eiga soninn Arnar Dag. c) Hallur Freyr. Hann á soninn Aron Svein. 2) Ottó Sveinn Hreinsson, f. 17. apríl 1959, maki Jóhanna Ploder, f. 28. febrúar 1966. Börn þeirra: a) Aldís b) Dagmar. c) Franz. d) Egill. Fyrir átti Ásbjörn dótturina Sigfríði Védísi, f. 28. apríl 1950, maki Kristinn Jónsson, f. 21. janúar 1953, d. 26. október 1995. Börn þeirra: a) Jón Gunnar, í sambúð með Bryndísi Jóns- dóttur. Þau eiga son- inn Kristin. b) Svav- ar Knútur, í sambúð með Pálínu Snorra- dóttur. Þau eiga dótturina Dag- björtu Lilju. c) Vilmundur Torfi. Ásbjörn ólst upp á bænum Star- mýri í Álftafirði, hjá hjónunum Kristínu Jónsdóttur og Guðmundi Einarssyni. Hann fór til náms í Reykholt í Borgarfirði og síðar í Iðnskólann í Reykjavík og útskrif- aðist þaðan 1949. Meistararéttindi í húsasmíðum hlaut hann 1953 og starfaði lengst af sem húsasmiður í Reykjavík. Ásbjörn var gjaldkeri stjórnar Trésmiðafélags Reykjavíkur um skeið og í stjórn lífeyrissjóðs tré- smiða um árabil og gegndi auk þess fleiri trúnaðarstörfum fyrir félagið. Hann var einnig virkur í starfi Framsóknarflokksins í Reykjavík og tók sæti á framboðslistum. Síðustu starfsárin starfaði hann sem húsvörður við Menntaskól- ann við Sund. Útför Ásbjörns var gerð frá Há- teigskirkju 21. apríl. Nú er afi á Kambsvegi kominn til hennar ömmu og við erum viss um að hún tekur á móti honum með kaffi og molasykri. Við ætlum að muna hvernig allt var á Kambsveginum, þegar þú sast í eld- húsinu í horninu með kaffibollann þinn eða borðaðir grautinn. Okkur fannst erfitt að sjá þig eins og þú varst orðinn á elliheimilinu þegar þú mundir ekkert eftir okkur né þekktir. En nú ertu kominn á betri stað. Hvíl í friði, elsku afi. Aldís, Dagmar, Franz og Egill. ÁSBJÖRN PÁLSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.