Morgunblaðið - 03.05.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 120. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Samdi
besta lagið
Bryndís Sunna fetar í fótspor
föður síns | Fólkið
Fasteignir | Þegar fegurðin liggur í leyni Lífsstíll að kaupa notuð hús-
gögn Þeim var ætlað að vera saman Íþróttir | Háspenna á Hlíðarenda
Annað sætið innan seilingar Nelson-feðgar féllu á prófinu
SEX vélsleðamenn frá Akureyri slös-
uðust síðdegis í gær inn af Garðsárdal
í Eyjafirði í slæmu veðri. Eftir því
sem næst verður komist óku þeir
fram af hengju. Um var að ræða tvo
aðskilda hópa og slösuðust fimm úr
öðrum þeirra en einn úr hinum. Vitað
er að sá síðastnefndi meiddist í baki
en var ekki talinn alvarlega slasaður –
þurfti þó aðstoð til þess að komast til
byggða. Ekki var enn vitað um líðan
hinna fimm um miðnætti. Læknir og
sjúkraflutningamenn voru þá ný-
komnir til þeirra, eftir að hafa þurft
að ganga langa vegalengd. Stórhríð
var og mjög lélegt skyggni.
„Þeir eru slasaðir en við vitum ekki
nákvæmlega hversu mikið. Við erum
ekki í símasambandi þarna inn eftir,
heldur þarf að bera fjarskipti á milli,“
sagði Daníel Guðjónsson, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri, við Morgun-
blaðið laust fyrir miðnætti.
Um miðnættið voru björgunar-
menn að búa sig undir að bera hina
slösuðu í gangnaskála sem kallaður er
Addi, en þangað er um 3,5 km loftlína
frá staðnum þar sem fimmmenning-
arnir slösuðust. Talið er að gangan
taki marga klukkutíma. Björgunar-
sveitabílar voru komnir að Adda.
Slysin áttu sér stað með um það bil 4
kílómetra millibili.
„Eins og staðan er núna er vonast
til að hægt verði að bera þá niður, en
það verður mjög torsótt og erfitt,“
sagði Daníel Guðjónsson. Mikinn
mannfjölda þarf til þess að bera bör-
urnar sex, eða um 20 á hverjar vegna
þess að hver hópur gengur ekki lengi í
einu vegna erfiðra aðstæðna.
Þaulvanir menn
Sjö voru saman í öðrum hópnum,
allt þaulvanir vélsleðamenn. Vegna
mjög slæmra skilyrða óku þeir þétt
saman í tveimur röðum þegar slysið
varð, skv. heimildum Morgunblaðs-
ins. Allir úr fremri röðinni keyrðu
fram af hengjunni en tveir úr þeirri
aftari sluppu og gátu látið vita. Það
var á fjórða tímanum sem fyrstu upp-
lýsingar bárust.
Þeir tveir sem sluppu komust til
byggða. Þeir urðu að vísu viðskila um
tíma og þurftu að skilja vélsleða sína
eftir og gengu síðasta spölinn niður á
Eyjafjarðarbraut. Þar biðu lögreglu-
menn tvímenninganna og komu með
þá í stjórnstöð Súlna, björgunarsveit-
arinnar á Akureyri, um kl. 22 í gær-
kvöld.
Hvorugur treysti sér til að ræða við
blaðamenn en þeir gáfu lögreglu og
björgunarsveitarmönnum skýrslu.
110 björgunarmenn
Björgunarsveitir allt frá frá Egils-
stöðum til Varmahlíðar voru kallaðar
út í gær, samtals um 110 björgunar-
sveitarmenn. Vegna óveðurs og
slæmrar færðar gekk ferð þeirra á
slysstaðina seint, en þeir notuðu 6
snjóbíla, 11 vélsleða, 5 torfærumótor-
hjól, 2 dráttarvélar og 16 öfluga jeppa
til að komast leiðar sinnar. Þyrla
Landhelgisgæslunnar kom til Akur-
eyrar í gær. Hún gat ekki athafnað
sig vegna hvassviðris og blindu.
Sex slasaðir vélsleða-
menn bornir langa leið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Úr stjórnstöð björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri í gærkvöld. Smári Sigurðsson situr við tölvuna og leiðbeinir
leitarmönnum með staðsetningar. Til vinstri er Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri.
Gríðarlega
umfangsmiklar
björgunaraðgerð-
ir í Eyjafirði
Akureyri. Morgunblaðið.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, beið mikinn ósigur í gær
þegar flokkur hans, Likud-flokkur-
inn, hafnaði áætlun hans um að
kalla ísraelska herliðið heim frá
Gazasvæðinu og hluta Vesturbakk-
ans. Sharon kvaðst í gærkvöld ætla
að virða niðurstöðuna og leiðtogar
stjórnarandstöðunnar kröfðust þess
að boðað yrði til þingkosninga.
Um 61% þeirra sem greiddu at-
kvæði lagðist gegn áætluninni og
aðeins 38% studdu hana, samkvæmt
fyrstu tölum þegar 53% atkvæðanna
höfðu verið talin.
Flestir greiddu atkvæði eftir að
tveir vopnaðir Palestínumenn myrtu
vanfæra konu úr röðum gyðinga á
Gaza-svæðinu og
fjögur börn henn-
ar og margir
fréttaskýrendur
töldu það hafa
haft veruleg áhrif
á atkvæðagreiðsl-
una. Um helm-
ingur 193.000 fé-
laga í Likud-
flokknum nýtti
atkvæðisrétt sinn.
Klofnar Likud?
Niðurstaðan er eitt af alvarleg-
ustu áföllum sem Sharon hefur orð-
ið fyrir frá því að hann varð for-
sætisráðherra í mars 2001 og búist
er við að hún leiði til mikils umróts í
stjórnmálum Ísraels næstu vikurn-
ar.
Tommy Lapid, dómsmálaráð-
herra og félagi í Shinui-flokknum,
sagði að úrslit atkvæðagreiðslunnar
væru „sigur fyrir fámennan hóp
öfgamanna“. „Ég hafði gert mér
vonir um samsteypustjórn Verka-
mannaflokksins, Likud og Shinui.
Núna er sá draumur úr sögunni.“
Ehud Olmert aðstoðarforsætis-
ráðherra sagði hins vegar að áætlun
Sharons væri enn „eini kostur“ Ísr-
aela. Forsætisráðherrann hafði sagt
að hann liti aðeins á atkvæðagreiðsl-
una sem „siðferðilega skyldu“, hún
væri ekki lagalega bindandi og áætl-
unin yrði lögð fyrir þingið þótt Lik-
ud-flokkurinn hafnaði henni.
Áætlunin var hins vegar felld með
svo miklum mun að ólíklegt þykir að
margir þingmenn Likud myndu
greiða atkvæði með henni á þinginu
gegn vilja flokksmanna.
Niðurstaðan var talin geta valdið
stjórnarkreppu í Ísrael, leitt til upp-
stokkunar á stjórninni, klofnings í
Likud eða jafnvel þingrofs og kosn-
inga.
Palestínska heimastjórnin hvatti
stjórn Ísraels til að hætta við áætl-
un Sharons og hefja þegar í stað
samningaviðræður við fulltrúa Pal-
estínumanna á grundvelli friðarveg-
vísisins svokallaða.
Likud-flokkurinn hafnar
áætlun Ariels Sharons
Jerúsalem. AFP, AP.
Ariel Sharon
Fasteignablaðið og Íþróttir
FYRRVERANDI fyrirsæta, sem eitt
sinn vó 52 kílógrömm en hefur þre-
faldað þyngd sína, sigraði í árlegri
fegurðarsamkeppni þar sem þrifleg-
ustu konurnar eru álitnar fegurstar.
Tuttugu fegurðardísir tóku þátt í
keppninni sem fór fram í Samphran
í Taílandi á laugardagskvöld.
Fyrirsætan fyrrverandi, Bangon
Waiyawong, stígur hér fjörugan
dans áður en hún var krýnd „Jöt-
undrottningin“.
Waiyawong er 170 kílógrömm, 29
kílóum þyngri en sú sem varð í öðru
sæti. Fyrri Jötundrottningar hafa
orðið frægar í Taílandi, leikið í sápu-
óperum og komið fram í tónlistar-
myndböndum.
AP
Jötundrottn-
ingin krýnd
NÝR tölvuormur hefur þegar
borist í milljónir tölva í heimin-
um og óttast er að hann breiðist
hratt út í dag þegar starfsemi
fyrirtækja hefst á ný, að sögn
sérfræðinga í gær.
Ormurinn, sem nefnist Sass-
er, byrjaði að breiðast út á laug-
ardag og olli víða röskun um
helgina. Hann notfærir sér galla
í nýlegum útgáfum Windows-
stýrikerfisins – Windows 2000,
Windows Server 2003 og Wind-
ows XP. Hann drepur á sýktum
tölvum og kveikir síðan á þeim
aftur og endurtekur þetta
nokkrum sinnum. Hann virðist
þó ekki valda varanlegum skaða,
að sögn sérfræðinga sem frétta-
stofan AFP hafði samband við.
Friðrik J. Skúlason tölvu-
fræðingur sagði í samtali við
Morgunblaðið að minnst tvö af-
brigði af orminum hefðu borist í
tölvur á Íslandi. Fyrirbærinu
svipaði til tölvuormsins Blaster
sem olli usla í fyrra.
Kemst í tölvur án eldveggs
Að sögn Friðriks kemst orm-
urinn í tölvur sem eru ekki með
eldveggi eða nýjustu öryggis-
uppfærslur Microsoft. Einstak-
lingar og fyrirtæki sem væru
með þessar varnir þyrftu ekki
að hafa áhyggjur. Fyrirtæki
gætu hins vegar lent í vandræð-
um ef starfsmenn notuðu ferða-
tölvur án eldveggs, svo og ein-
staklingar sem ekki hefðu komið
sér upp vörnunum.
Nýr tölvu-
ormur
veldur usla