Morgunblaðið - 03.05.2004, Page 6
„Aldrei lent í öðru eins“
„ÉG HEF aldrei lent í öðru eins og
maður er bara feginn að hafa kom-
ist heim,“ sagði Stefán Heimir Stef-
ánsson frá Akureyri sem hafði
brugðið sér í sumarbústað í Aðal-
dalshrauni með fjölskyldu sinni um
helgina en lenti í töluverðum vand-
ræðum á veginum um Víkurskarð á
heimleið í gærkvöld.
Heimir, sem var kominn á sum-
ardekk fyrir um mánuði, varð fyrir
því að festa bílinn tvívegis í Vík-
urskarði, þar sem var blindbylur í
gærkvöld og töluverð hálka á veg-
inum. Ferðalagið um Víkurskarð
tók Heimi drjúga stund enda þurfti
hann að fara fetið á sumardekkj-
unum og alls tók ferðalagið úr Að-
aldal til Akureyrar rúma þrjá
klukkutíma.
„Samkvæmt þeim fréttum sem
ég fékk um miðjan daginn var útlit-
ið ekki svo slæmt en þetta var
verra en ég átti von á,“ sagði Heim-
ir. Kona hans, Anna Halldórsdóttir,
varð fertug í gær og af því tilefni
var haldið í bústaðinn. „Þetta var
nú aldeilis afmælisgjöf sem hún
fékk.“ Með þeim í för voru sonur
þeirra, Bjarki Már, og Nanna
Soffía, systurdóttir Önnu.
Morgunblaðið/Kristján
Stefán Heimir Stefánsson veðurbarinn við bíl sinn í Víkurskarði í gærkvöldi.
Blindbylur
í Víkurskarði
FRÉTTIR
6 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„VIÐ ætlum að skoða menninguna í
bænum okkar á þessum dögum og
við fögnum öllum gestum sem vilja
koma og skoða með okkur það sem
við höfum upp á að bjóða. Við ætl-
um líka að sýna og segja hverjum
sem heyra vill að erum stolt af bæn-
um okkar og okkur þykir vænt um
hann,“ sagði Sigurður Geirdal, bæj-
arstjóri Kópavogs, í gær þegar
hann setti Kópavogsdaga.
Skólahljómsveit Kópavogs lék
við setningarathöfnina undir stjórn
Össurar Geirssonar fyrir utan
Listasafnið. Knapar úr hesta-
mannafélaginu Gusti stóðu heið-
ursvörð og Skólakór Kársness söng
undir stjórn Þórunnar Björns-
dóttur. Mikið var um að vera allan
daginn en hátíðinni lýkur með af-
mælisdagskrá Kópavogsbæjar 11.
maí.
Sigurrós Þorgrímsdóttir, for-
maður lista- og menningarráðs,
sagði við upphaf hátíðahaldanna
frá þeim viðburðum sem standa
fólki til boða. „Allir aldurshópar
taka beinan þátt í Kópavogsdögum
bæði með söngdagskrám og jafn-
framt munu ungir sem aldnir sýna
verk sem þeir hafa verið að vinna
að síðastliðinn vetur,“ sagði hún.
Opið hús verður í leikskólum bæj-
arins, hjá eldri borgurum í Gull-
smára og Gjábakka og einnig
ýmsar uppákomur í Félagsmið-
stöðvum.
Hátíðinni lýkur síðan á afmæl-
isdegi bæjarins, þriðjudaginn 11.
maí. Þá verða veittir listamanna-
styrkir og heiðurslistamaður Kópa-
vogs árið 2004 útnefndur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Menning á Kópavogsdögum
NOTENDUR mbl.is geta pantað
ókeypis smáauglýsingar á vefnum
fram til 1. júní nk. Auglýsingarnar
munu birtast á smáauglýsingavef
mbl.is og verður hver auglýsing
inni í sjö daga. Að þeim tíma lokn-
um er auglýsandanum sendur
tölvupóstur þar sem honum er
boðið að framlengja birtingu um
aðra sjö daga eða bóka nýja aug-
lýsingu.
Auglýsing getur innihaldið allt
að 160 stafi og hægt er að láta
mynd fylgja sé þess óskað.
Ókeypis smáaug-
lýsingar á mbl.is
Á höfuðborgarsvæðinu eru 22
bensínstöðvar sem bjóða ein-
ungis uppá sjálfsafgreiðslu og
hefur mannlausum bensínaf-
greiðslustöðvum fjölgað ört síð-
ustu misserin.
ÓB rekur flestar sjálfsaf-
greiðslustöðvarnar á höfuðborg-
arsvæðinu eða níu talsins. ÓB er
rekið af Olíuverzlun Íslands (Ol-
ís). Orkan rekur sjö afgreiðslu-
stöðvar á sama svæði. Orkan er
samstarfsverkefni Skeljungs,
Hagkaups og Bónuss og eru
margar stöðvar tengdar bíla-
stæðum matvöruverslananna.
Olíufélagið Essó hefur breytt
nafni Essó Express stöðvanna í
EGO og opnar um þessar mund-
ir fjórar sjálfsagreiðslubensín-
stöðvar undir því nafni. For-
svarsmenn félagsins hafa boðað
að stöðvarnar verði sjö til tíu í
lok ársins. Atlantsolía er með
sjálfsafgreiðslustöðvar í Hafn-
arfirði og Kópavogi.
Sigurpáll Sigurbjörnsson,
bensínafgreiðslumaður á Skelj-
ungsstöðinni við Smáralind, á
ekki von á því að störfum við
bensínafgreiðslu fækki mikið á
næstu árum frá því sem nú er.
Þó mannlausum stöðvum fjölgi
sífellt þá verði alltaf eftirspurn
eftir þjónustu. Á meðan halda
bensínafgreiðslumenn vinnunni
og fyrir það er hann þakklátur.
Mannlaus-
um stöðv-
um fjölgar
stöðugt
UM helmingur landsmanna vill færa
bæði sumardaginn fyrsta og upp-
stigningardag þannig að þeir verði
hluti af langri helgi, ef marka má nýja
skoðanakönnun Gallup, um viðhorf til
frídaga. Um 10% vilja á hinn bóginn
einungis færa til sumardaginn fyrsta
og um 2,5% vilja einungis færa til
uppstigningardag. Það þýðir að alls
62% vilja færa til báða eða annan dag-
inn, ef marka má könnun Gallup. Um
38% vilja ekki færa til dagana.
Sumardagurinn fyrsti og uppstign-
ingardagur eru frídagar sem eru allt-
af á fimmtudögum. Í könnuninni
spurði Gallup: „Ertu hlynnt(ur) því að
færa til báða frídagana þannig að þeir
verði hluti af langri helgi, annan dag-
inn eða hvorugan daginn? Ef annan
daginn þá hvorn?“
Skv. niðurstöðum könnunarinnar
eru karlar mun hlynntari því að færa
til báða dagana eða um 58% karla á
móti 47% kvenna. Þá er fólk á aldr-
inum 25 til 44 ára líklegast til að vilja
færa til báða dagana en um 55% í
þeirra hópi vilja færa þá til. Sama
gildir um íbúa Reykjavíkur því 55%
þeirra vilja færa til báða dagana
þannig að þeir verið hluti af langri
helgi.
Könnun Gallup var gerð dagana 14.
til 25. apríl. Úrtakið var 1.225 manns
á aldrinum 18 til 75 ára. Svarhlutfallið
var 62%.
Helming-
ur vill
færa til
frídaga
BÆJARSTJÓRN Blönduósbæjar samþykkti á fundi
sínum þann 20. apríl að gera Jón Ísberg, fyrrverandi
sýslumann, að heiðursborgara Blönduóss. Tilnefningin
er til komin vegna óeigingjarns starfs Jóns fyrir sam-
félagið. Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar
Blönduóss, og Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri
afhentu Jóni áletrað heiðursborgaraskjal í kvöldverð-
arhófi á laugardagskvöldið á Hótel Blöndu.
Í skjalinu stendur „Bæjarstjórn tilnefnir hr. Jón Ís-
berg fyrrum sýslumann hér með heiðursborgara
Blönduósbæjar. Þökkum stórhug, dugnað og áratuga
óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins.“ Frú Þórhildi Ís-
berg, eiginkonu Jóns, var afhentur blómvöndur og þess
jafnframt getið að hún hafi staðið þétt við hlið hans á lífs-
ins leið.
Jón Ísberg þakkaði bæjarstjórn fyrir þann heiður sem
honum hefði verið sýndur en gat þess jafnframt að þetta
hefði komið sér þægilega á óvart.
Jón Ísberg
heiðursborg-
ari Blönduóss
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduósi. Morgunblaðið.