Morgunblaðið - 06.05.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 123. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Söngleikur um Edith Piaf frum-
sýndur í Þjóðleikhúsinu | Listir
Viðskipti | Grái markaðurinn sem hvarf Betri akstur með
ökurita Samkeppnishæfni Íslands Úr verinu | Stærsti salt-
fiskverkandi í heimi Dýrmæt þekking á Þórshöfn
Viðskipti og Úr verinu í dag
HANNA Barísevitsj, sem talin er vera
elsta kona í heimi, hélt upp á 116. afmæl-
isdag sinn í gær. Hún fæddist 5. maí 1888 í
þorpinu Buda, skammt austur af Minsk í
Hvíta-Rússlandi, og voru foreldrar hennar
fátækt bændafólk. „Frá barnæsku hef ég
aldrei kynnst öðru en erfiðisvinnu,“ sagði
Barísevitsj, sem hvorki hefur lært að lesa
né skrifa. Hún vann á samyrkjubúi til 95
ára aldurs, en þá flutti hún til dóttur sinn-
ar, sem er 78 ára, skammt frá Minsk.
Barísevitsj lifði byltingu bolsévika, báð-
ar heimsstyrjaldirnar og hrun Sovétríkj-
anna. Versti tíminn fannst henni valdatíð
Stalíns, þegar eiginmaður hennar, Ippolít,
var lýstur „óvinur fólksins“ og gefið að
sök að hafa spillt samyrkjubúinu. Hann
var handtekinn og fluttur til Síberíu og
síðan hefur ekkert til hans spurst.
Barísevitsj ól ein upp börnin sín þrjú og
í seinni heimsstyrjöldinni fór hún oft með
fjölskylduna út í skóg og faldi hana fyrir
nasistum. Hún á orðið erfitt með gang, en
þarf þó ekki stuðning. Stundum kveðst
hún fá höfuðverk og sjónin sé farin að dala
„en annars amar ekkert að mér“.
Hún þakkar erfðum langan aldur sinn.
Föðuramma hennar náði 113 ára aldri.
Hún borðar einfaldan mat, heimagerðar
pylsur, svínafitu, mjólk og brauð. Nína
dóttir hennar segir móður sína matlyst-
uga, hafa sterka skapgerð og mjög sterk-
ar taugar. „Á langri lífsleið hefur mér
lærst að það er ekki þess virði að stökkva
upp á nef sér og taka alla hluti nærri sér,“
sagði Barísevitsj.
AP
Elsta kona heims 116 ára
„Aldrei
kynnst öðru
en erfiði“
Minsk. AP.
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti hét því í gær að refsa þeim
bandarísku hermönnum sem stað-
ið hefðu að „hryllilegum“ pynting-
um á íröskum föngum. Forsetinn
baðst þó ekki afsökunar á gjörðum
bandarísku hermannanna.
„Það mun fara fram ítarleg
rannsókn og réttlætinu verður
fullnægt,“ sagði Bush m.a. í viðtali
við sjónvarpsstöðina al-Hurra, en
hann veitti í gær tveim arabískum
sjónvarpsstöðvum viðtöl. Í fyrra-
dag sagði þjóðaröryggisráðgjafi
Bush, Condoleezza Rice, að
Bandaríkjamenn bæðust „innilega
fyrirgefningar“ á atburðunum sem
áttu sér stað í Abu Ghraib-fang-
elsinu, skammt frá Bagdad, síðla
árs í fyrra.
Bush sagði ennfremur í viðtal-
inu við al-Hurra: „Ég fullvissa
Íraka um að mér þykir þetta
framferði [bandarísku fangavarð-
anna] hryllilegt. Það sem gerðist
þarna í fangelsinu er ekki dæmi-
gert fyrir þau Bandaríki sem ég
þekki.“
Þá kvaðst Bush hafa rætt þetta
mál við varnarmálaráðherra sinn,
Donald Rumsfeld. „Ég sagði [við
hann]: „Komumst að hinu sanna
og segjum írösku þjóðinni og um-
heiminum sannleikann.“ Við höf-
um ekkert að fela. Við trúum á
gegnsæi vegna þess að við búum í
frjálsu samfélagi. Þannig eru
frjáls samfélög.“
Bush var spurður að því hvort
hann vænti afsagnar háttsettra
manna vegna málsins og hvort
hann bæri enn fullt traust til
Rumsfelds. Kvaðst Bush enn bera
„talsvert traust“ til varnarmála-
ráðherrans. „Það er ennfremur
mikilvægt að íraska þjóðin átti sig
á því að í lýðræðisríkjum er ekki
alltaf allt fullkomið. Þar eru gerð
mistök. En í lýðræðisríkjum eru
slík mistök rannsökuð og fólk látið
svara fyrir gjörðir sínar.“
Fréttaskýrendur sögðu Bush
hafa talað fyrir daufum eyrum víð-
ast hvar í arabaheiminum. Haft
var eftir Waleed al-Musab, 27 ára
Sádi-Araba í Medína: „Ég eyði
ekki tímanum í að hlusta á Bush.
Ég trúi ekki orði af því sem hann
segir. Hann er óvinur allra músl-
íma og araba.“
Bush heitir refsingum
Washington, Medína. AFP, AP.
AP
Írösk fjölskylda í Bagdad horfir á George Bush í viðtali á arabísku sjónvarpsstöðinni Al Arabiya í gær.
Ábyrgist persónulega/14
SAMNINGANEFND
Launanefndar sveitarfélag-
anna lagði fram ítarlegt tilboð
í formi heildstæðs kjara-
samnings á fundi með Kenn-
arasambandi Íslands vegna
grunnskólans í húsakynnum
ríkissáttasemjara í gær.
Næsti fundur viðsemjenda er
áformaður á föstudag.
„Þeir lögðu fram ákveðnar
hugmyndir í dag sem eru það
viðamiklar að við þurfum
tíma til að setjast yfir þær,
lesa og meta. Maður getur
hvorki sagt til um hvað þetta
er mikið í krónum eða pró-
sentum að svo stöddu,“ sagði
Finnbogi Sigurðsson, for-
maður Félags grunnskóla-
kennara, í gærkvöldi.
„Komnir af stað“
Birgir Björn Sigurjónsson,
formaður samninganefndar
Launanefndarinnar, segir að
lagðar hafi verið fram viða-
miklar og heilsteyptar tillög-
ur að nýjum samningi. „Eins
og ég lít á það erum við komn-
ir af stað í viðræðuferli með
þessu innleggi og ég vona að
það verði til þess að okkur
takist að ná niðurstöðu.“
Kjaraviðræður
grunnskólakennara
Drög að
samningi
MIKHAÍL Saakashvili, forseti Georgíu, til-
kynnti í gærkvöldi að Alsan Abashidze, leið-
togi aðskilnaðarsinna í héraðinu Adjara
hefði látið af völdum í héraðinu og væri flog-
inn til Moskvu.
Abashidze hefur barist gegn georgískum
stjórnvöldum, og óttast var að deilur hans
og Saakashvilis myndu leiða til borgara-
styrjaldar í landinu. Saakashvili hafði heitið
Abashidze því að hann fengi að fara óáreitt-
ur úr landi með fjölskyldu sína ef hann léti
af völdum.
Abashidze læt-
ur af völdum
Tiblisi. AFP.
♦♦♦
Rammgöldrótt
blanda
BJÖRN Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, ræddi í gær
við John Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, í Wash-
ington. Björn hefur undanfarna
daga átt fundi í Washington með
þeim aðilum innan bandaríska
stjórnkerfisins sem sinna öryggis-
málum og vörnum gegn hryðju-
verkum. Bandaríkjamenn eru að
framkvæma nýja stefnu í þessu
efni og leggja vaxandi áherslu á
samstarf við sem flestar þjóðir.
Meðal annars fundaði dómsmála-
ráðherra með Henry J. Hyde, for-
manni utanríkismálanefndar full-
trúadeildar Bandaríkjaþings, auk
fulltrúa frá varnarmálaráðuneyt-
inu, heimavarnarráðuneytinu,
landhelgisgæslunni og fleiri aðil-
um.
„Við Ashcroft ræddum saman
um málefni sem varða samstarf
þjóðanna, m.a. í lögreglumálum og
á þeim sviðum,“ sagði Björn í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Ég
hef verið að ræða við forystumenn
innan Bandaríkjastjórnar sem
hafa með öryggismál, siglinga-
vernd, öryggi flugvéla og landa-
mæraeftirlit og annað slíkt að gera
sem efst eru á baugi. Björn var
staddur í Washington með emb-
ættismönnum úr dómsmálaráðu-
neytinu og ríkislögreglustjóra.
og fundurinn með dómsmálaráð-
herra var lokapunkturinn,“ segir
Björn. Einnig ræddu þeir Ashcroft
um samskipti landanna og þau mál
Dómsmálaráðherrar Íslands og Bandaríkjanna funduðu
Samstarf þjóðanna í
lögreglumálum rætt
John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, virðir fyrir sér gjaf-
ir sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra færði honum, bók um Ísland
og handsmíðaða ermahnappa, en þeir áttu fund í Washington í gær.