Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HÉRAÐSDÓMUR Reykja-
ness dæmdi í gær 18 ára pilt í
9 mánaða fangelsi, þar af sex
á skilorði fyrir vopnað banka-
rán í útibúi Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar 14. nóvember 2003
og fyrir vörslu fíkniefna.
Við ránið var ræninginn
með andlit sitt hulið, ógnaði
gjaldkera með hnífi og skipaði
honum að afhenda sér fjár-
muni. Reyndist peningaupp-
hæðin nema 344 þúsund krón-
um.
Ákærði var handtekinn á
vinnustað sínum hinn 18. nóv-
ember. Hann neitaði í fyrstu
aðild að ráninu en játaði síðar
sama dag. Hann sagðist hafa
framið ránið því hann vantaði
fé til þess að greiða skuld og
sektir. Um 50 þúsund krónur
af ránsfengnum fundust á
heimili ákærða, en mestöllu
hafði hann varið til greiðslu
skulda og kaupa á fíkniefnum.
Við húsleit á heimili hans
fundust 15,22 grömm af am-
fetamíni. Í dómi kemur fram
að ákærði hafði neytt fíkni-
efna frá 13 ára aldri. Hann
sagðist hafa reykt vímuefni að
meðaltali tvisvar á dag að
staðaldri en notað sterkari
efni um helgar. Hnífurinn
sem ákærði notaði við ránið
fannst við leit lögreglu við
Hvaleyrarvatn.
Fram kemur í dómi að
ákærði hafi hins vegar farið í
meðferð, sé hættur neyslu eit-
urlyfja og í fastri vinnu.
Málið dæmdi Finnbogi H.
Alexandersson héraðsdómari.
Verjandi ákærða var Hilmar
Ingimundarson hrl. og sækj-
andi Sigríður Jósefsdóttir
saksóknari hjá ríkissaksókn-
ara.
9 mánaða
fangelsi
fyrir
bankarán
„MIKILL meirihluti er fyrir því í
danska þinginu að bregðast við til-
tölulega háu lyfjaverði í Dan-
mörku,“ segir í frétt danska blaðs-
ins Børsen í gær en eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær er í til-
lögum sérstakrar lyfjanefndar á
vegum heilbrigðisyfirvalda í Dan-
mörku lagt til að greiðsluþátttöku
hins opinbera verði breytt á þann
veg að hún miðist einungis við
ódýrustu lyfin.
„Ég er ekki í vafa um að lyfja-
verð í Danmörku er mjög hátt. Það
er hægt að ná verðinu niður og þess
vegna styð ég kerfi sem tryggir
lægsta mögulega verð á lyfjum,“
segir forsætisráðherra Danmerkur,
Anders Fogh Rasmussen við
Børsen.
Fram kom í máli Harðar Þór-
hallssonar, framkvæmdastjóra
Delta, í Morgunblaðinu þegar
skýrsla Ríkisendurskoðunar um
lyfjakostnað var birt í apríl að „gíf-
urlegt verðstríð“ ríkti á þeim mörk-
uðum sem horft væri til í skýrsl-
unni, t.a.m. í Danmörku.
Björn Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
Pharmaco fyrir N-Evrópu, tók
dæmi af blóðfitulækkandi sam-
heitalyfinu simvastatin sem fyr-
irtækið selur í Danmörku. Und-
irverð væri í gangi og tíu
framleiðendur seldu sama lyfið.
Pharmaco hefði selt fyrir 4 millj-
ónir danskra króna af simvastatin í
fyrra en tapað einni milljón á við-
skiptunum.
Danir ætla að bregðast
við háu lyfjaverði
FORMAÐUR lyfjaverðsnefndar,
Páll Pétursson, segir aðstæður
varðandi lyfjaverð nokkuð aðrar
hér en í Danmörku enda hafi menn
nýlokið við að gera samkomulag
við bæði innflytjendur, íslenska
framleiðendur og lyfsalana um
lækkun á verði sem komi til með að
lækka lyfjareikning landsmanna
um 800–1.000 milljónir á ári.
„Þessi samningur er gerður í
góðu og ég á von á því að þessi
sparnaður skili sér. Við höfum far-
ið þá leið að reyna að ná sam-
komulagi,“ segir Páll.
Leið sem gæti komið
til skoðunar
Hann segir þó hugmyndir Dana
um að greiða aðeins niður ódýrustu
lyfin í hverjum flokki geta komið til
skoðunar en hann vilji láta reyna á
samkomulagið fyrst. „Það var
nokkuð í þessa átt sem reglugerð
heilbrigðisráðherra gekk en frest-
aði síðan meðan menn væru að sjá
hverju samkomulag okkar skilaði.“
Páll segir lyfjaverð hér vera
hærra en í nágrannalöndunum,
einhver hluti af því sé skýranlegur.
Erfiðara sé fyrir lítið markaðs-
svæði að knýja fram afslætti en
stór svæði eða svæði með mikla
sölu. „Ég tel að það sé verulegt
skref að geta lækkað lyfjaverð um
800 til 1.000 milljónir
á ársgrundvelli,“ segir Páll.
Náið fylgst með
aðgerðum Dana
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra segir ráðu-
neytið ekki hafa haft ráðrúm til að
kynna sér skýrslu lyfjanefndarinn-
ar dönsku. Lyfjamál á Ísland séu
hins vegar í þeim farvegi að kann-
að verði á næstu mánuðum hversu
langt niður megi ná lyfjaverði, auk
þess sem náðst hafi samkomulag
um lækkun á verði ýmissa sam-
heitalyfja eins og fram hafi komið.
Ráðherra frestaði sem kunnugt
er um þrjá mánuði gildistöku
reglugerðar og viðmiðunarverðskr-
ár lyfja með sambærileg meðferð-
aráhrif sem átti að taka gildi 1.
maí. Reynt verður að ná fram
samningum milli fulltrúa lyfja-
heildsala, smásala og hérlendra
lyfjaframleiðenda um almenna
lækkun á lyfjaverði.
Ráðherra segir að svo virðist
sem í dönsku tillögunum sé senni-
lega átt við viðmiðunarverð á sam-
heitalyfjum og svipað fyrirkomulag
hafi verið í gildi hér á landi um
nokkurra ára skeið. Náið sé fylgst
með aðgerðum nágrannaþjóðanna í
þessum efnum og tillögur Dana
verði skoðaðar í því ljósi.
Formaður lyfjaverðsnefndar um aðferð Dana
Vill láta reyna á samkomulag
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
átti fund með forseta Eistlands,
Arnold Rüütel, í Ráðherrabústaðn-
um í gærmorgun, en hann var hér
í opinberri heimsókn sem lauk í
gærkvöldi. Davíð sagði eftir fund-
inn að þeir hefðu rætt vinsamleg
samskipti þjóðanna, Evrópusam-
bandið og NATO. Jafnframt ítrek-
aði forsetinn þakkir sínar til ís-
lensku þjóðarinnar fyrir að vera
fyrsta ríkið í heiminum sem við-
urkenndi sjálfstæði Eistlands og
styðja inngöngu þess í NATO.
Forsetar Eistlands og Íslands
heimsóttu ásamt eiginkonum sín-
um og föruneyti Hveragerði í gær,
eftir að hafa skoðað bóndabýlið
Heiðarbæ og gróðursett tré í Vina-
lundi. Fyrsti viðkomustaður gest-
anna í Hveragerði var hverasvæð-
ið sem er í miðbænum. Þar tók
bæjarstjórinn Orri Hlöðversson á
móti gestum fyrir hönd Hvergerð-
inga. Sverrir Þórhallsson, sérfræð-
ingur hjá Orkustofnun, var leið-
sögumaður gestanna um svæðið. Í
lokin var gestum boðið upp á veit-
ingar inni í móttökuskálanum, þar
sem boðið var upp á grænmeti,
ávexti og te úr mjaðjurt og mar-
íustakk.
Næsti viðkomustaður var Garð-
yrkjuskólinn á Reykjum en þar tók
Sveinn Aðalsteinsson skólameistari
á móti gestunum og sýndi þeim
staðinn. Garðskálinn var skoðaður,
bananahúsið og tilraunahúsið en
þar var boðið upp á veitingar.
Síðasti viðkomustaðurinn var
Heilsustofnun Náttúrulækninga-
félagsins, þar tók móttökustjórinn
Guðrún Friðriksdóttir ásamt
starfsfólki á móti forsetanum.
Kristján G. Guðmundsson yf-
irlæknir sagði frá sögu stofnunar-
innar og þeirri starfsemi sem þar
fer fram. Að ávarpi loknu var
gestum boðið að bragða á heilsu-
samlegum smáréttum og ávaxta-
safa. Þá var farin skoðunarferð
um stofnunina þar sem gestum var
m.a. sýnd ný herbergjaálma og
baðhús sem nýlega var tekið í
notkun. Inn af baðhúsinu eru leir-
böðin og fengu gestir að sjá hvern-
ig þau eru nýtt.
Tveggja daga opinberri heim-
sókn forseta Eistlands hingað til
lands er nú lokið.
Opinberri heimsókn Arnold Rüütel, forseta Eistlands, til Íslands lauk í gær
Rætt um vin-
samleg sam-
skipti þjóðanna
Morgunblaðið/Gunnar G. Vigfússon
Íslensku og eistnesku forsetahjónin heimsóttu Heilsustofnun Náttúrulækn-
ingafélagsins í Hveragerði í gær. Dorrit Moussaieff forsetafrú prófar hér
að dýfa hendinni ofan í eitt leirbaða stofnunarinnar.
Morgunblaðið/Gunnar G. Vigfússon
Eistnesku forsetahjónin heimsóttu Heiðarbæ og kynntu sér búskapinn.
Morgunblaðið/ÞÖK
Arnold Rüütel, forseti Eistlands, átti fund með Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu fyrir hádegi í gær.