Morgunblaðið - 06.05.2004, Side 6

Morgunblaðið - 06.05.2004, Side 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ISO 9001 gæðastaðall er okkar styrkur og þín trygging fyrir gæðavöru Allar TEKNOS vörur framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli TEKNOS hágæðamálning fæst nú á öllum norðurlöndunum. TEKNOS er ein vandaðasta málningin á markaðnum í dag. M Á LN ING ARTILB O Ð frá kr. 2 98- lt r. Hágæða lakkmálning Gljástig 15, 40 og 80 Hágæða Akrýl innimálning Gljástig 3, 7 og 20 Báðir framsögumenn mátu frum- varp ríkisstjórnarinnar svo að ákvæði í því stönguðust á við bæði tjáningarfrelsið og eignarrétt. Abrams sagði ákvæði í frumvarpinu algerlega einstök í hinum vestræna heimi. Ef slík lög væru til staðar í Bandaríkjunum eða Evrópu fengju margar af helstu sjónvarpsstöðvun- um ekki endurnýjuð leyfi til sjón- varpsreksturs vegna tengsla við fyr- irtæki sem ekki tengjast fjölmiðlarekstri. Sem dæmi nefndi hann m.a. fjórar stærstu sjónvarpsstöðvarnar í Bandaríkjunum; ABC, sem er í eigu Disney; CBS, sem er í eigu Viacom; Fox, sem er í eigu Rupert Murdoch; og NBC, sem er í eigu General Electric. Abrams segir að þó frumvarpið sé einstakt í hinum vestræna heimi sé ekki þar með sagt að það sé slæmt, en það þýði engu að síður að það þurfi að skoða frumvarpið afar gaumgæfilega áður en það verði að lögum, í stað þess að flýta því í gegn- um lagasetningarferilinn. Sett til höfuðs Norðurljósum Abrams sagði að ef frumvarp af þessu tagi væri lagt fram í Banda- ríkjunum myndi Hæstiréttur lands- ins að öllum líkindum fella lögin úr gildi, enda verði ekki betur séð en þau séu sett sérstaklega til höfuðs Norðurljósum og fjárfestum í því fyrirtæki, sem sé andstætt stjórn- arskrá Bandaríkjanna. Hann varaði íslensk stjórnvöld við, og sagði: „Ekkert er hættulegra í lýðræðislegu samfélagi en að byggja ákvörðun um hverjir megi láta í sér heyra á pólitískum, hug- myndafræðilegum eða persónuleg- um ástæðum.“ Abrams viðurkenndi þó að vissu- lega væri ástæða til að vera á varð- bergi gagnvart því að fjölmiðlar safnist á fáar hendur, og sagði stjórnvöld hafa vald, og í raun skyldu, til að sinna því vandamáli. Máli sínu til stuðnings benti hann á ástandið á Ítalíu þar sem allar sex stærstu sjónvarpsstöðvarnar eru undir stjórn Silvio Berlusconi for- sætisráðherra. Engar alþjóðlegar skuldbindingar Van Elsen sagði í sinni framsögu að það kæmi sér nokkuð á óvart að það væri vísað í evrópsk lög í frum- varpinu, þar sem engar alþjóðlegar skuldbindingar setji kvaðir á stjórn- völd að setja lög af þessu tagi um fjölmiðla. Hann telur umræðuna þurfa tíma í samfélaginu, meta þurfi kosti og galla fjölmiðlaumhverfisins á Íslandi vandlega, sem og áhrif lagasetning- ar á markaðinn. Svo sé hægt að setja lög um þessa starfsemi. Hann benti á að svipuð umræða hefði verið tekin á fjórum árum í Noregi, í stað þess að flýta henni í gegnum laga- setningarferilinn. Einnig sagði van Elsen að skoða þyrfti hverjir hefðu í raun burði til að reka fjölmiðla, og skipti þá smæð markaðsins á Íslandi miklu máli. Hann sagði að skilgreina þyrfti markmiðin með lagasetningu og reyna svo að finna leið að þeim markmiðum sem skerða hvað minnst bæði tjáningarfrelsi og eign- arrétt. Frumvarpið ekki lausnin Að loknum framsögum voru haldnar pallborðsumræður um mál- ið. Þar sagði Jakob Möller lögmaður m.a. að því meira sem hann læsi frumvarpið því sannfærðari yrði hann um að það væri ekki rétta lausnin á hugsanlegum vandamálum vegna samþjöppunar eignarhalds á fjölmiðlum. Spurður um gagnrýni vegna þess hversu lítill tími gæfist til að ræða frumvarpið sagði hann að ekki væri fordæmi fyrir því að Hæstiréttur felldi lög úr gildi á þeirri forsendu að ekki hefði verið fjallað nægilega mikið um málið, þó að slíkt gæti ef- laust haft einhver áhrif á mat rétt- arins í heildina, kæmi málið til kasta dómstólsins. Erlendir lögmenn ræddu fjölmiðlafrumvarpið á fundi á vegum Norðurljósa í gær Segja ákvæði brjóta gegn mannréttindum í landinu Morgunblaðið/ÞÖK Lögmennirnir Filip van Elsen (t.v.) og Floyd Abrams. LÍKLEGT er að Hæstiréttur eða Mannréttindadómstóllinn í Strassborg myndi komast að þeirri niðurstöðu að ákvæði í fjölmiðlafrumvarpi ríkis- stjórnarinnar bryti í bága við mannréttindi, kæmi málið til kasta dómstól- anna, að mati tveggja erlendra sérfræðinga. Frumvarpið var rætt á fundi á vegum Norðurljósa í gær og voru lögin sett í samhengi við lagaumhverfi í Evrópu og Bandaríkjunum af sérfræðingum þaðan. Framsögumenn á fund- inum voru Floyd Abrams, bandarískur lögmaður og gistiprófessor við fjöl- miðladeild Columbia-háskóla, og Filip van Elsen, belgískur lögmaður og sér- fræðingur í hugverka- og upplýsingalöggjöf með áherslu á fjölmiðlarétt. STJÓRN Kvenfélagasambands Gullbringu- og Kjósarsýslu hefur ákveðið að selja merkið „Gleym mér ei“ dagana 7.–8. maí nk. og verður allur ágóði sölunnar afhent- ur BUGL, Barna- og unglingageð- deild, í haust þegar KSGK heldur upp á 75 ára afmæli sitt. Söluátakið hófst í gær með því að Dorrit Moussaieff forsetafrú var af- hent fyrsta merkið. Merkinu fylgir lítill miði þar sem á er letrað m.a.: „Augað er merki hreinnar sam- visku, þekkingar, einlægni og upp- ljómunar. Auk þess er augað merki verndunar og aðgætni. Að halda fyrir augun þýðir: Ég vil ekki vita, mér er alveg sama.“ Morgunblaðið/ÞÖK Dorrit Moussaieff forsetafrú fær afhent fyrsta merkið, „Gleym mér ei“, sem Kvenfélagasamband Gullbringu- og Kjósarsýslu selur um næstu helgi. Merki seld til styrktar BUGL JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra mun biðja Tryggingastofnun ríkisins um greinargerð í tilefni af- stöðu Ingibjargar Georgsdóttur, barnalæknis hjá TR, til skráningar heilsufarsupplýsinga barna í mið- lægan gagnagrunn TR vegna svo- kallaðs umönnunarmats. Um er að ræða börn sem fá svokallað umönn- unarmat vegna veikinda og fötlun- ar, langvinnra veikinda, þroska- eða hegðunarraskana. Á síðasta ári voru um 4.400 börn með umönnunarmat á skrá TR. Í umönnunarmati felst fjárhagsleg aðstoð TR við framfærendur barnanna. Mjög ítarlegar heilsu- farsupplýsingar eru gefnar upp um börn þegar sótt er um umönnunar- mat og sagði Ingibjörg í Morg- unblaðinu á þriðjudag að sér hrysi hugur við „merkingum á börnum með þessum hætti sem geti hæg- lega orðið þeim til trafala síðar á ævinni.“ „Ég mun biðja TR um grein- argerð um þetta mál og hvað stofn- unin leggi til,“ segir Jón Kristjáns- son. „Ég vil undirstrika að þessar upplýsingar eru ekki þess eðlis að þær berist út, en hins vegar mun ég biðja Ingibjörgu og þá starfsmenn TR sem um þetta mál fjalla um greinargerð um málið og hvernig þeir sjái þetta fyrir sér,“ segir Jón. Þung áhersla á þagnarskylduna Um sjónarmið Ingibjargar segir Sigurður Guðmundsson landlæknir að leggja verði höfuðáherslu á þagnarskylduna þegar tekið er við ítarlegum heilsufarsupplýsingum. „Svar okkar allra sem vinnum í heilbrigðiskerfinu er að allar upp- lýsingar eru trúnaðarmál og eiga ekki að fara neitt nema með vilja og vitund þess sem um ræðir,“ segir Sigurður. „Við verðum að leggja gríðarlega þunga áherslu á að þess- ar upplýsingar eru og verða alltaf trúnaðarmál.“ Sigurður segir þá að taka verði með í reikninginn í þessari umræðu að skráning og meðferð upplýsinga með þeim hætti sem hér um ræði endurspegli þá aðferð hins opinbera að ná til þess hóps sem hefur mestu þörfina fyrir aðstoð. „Það er sam- félagsleg ákvörðun hvernig við ætl- um að ná velferðarmarkmiðum okk- ar. Ætlum við að finna þá sem eru í mestri þörf eða fara leið jafnaðar- mennsku á afslætti?“ Biður TR um greinargerð Skráning heilsufarsupplýsinga HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra átti fund með utanríkisráð- herra Hollands, Bernard Rudolf Bot, sl. þriðjudag en Ísland fer með formennsku EES-ráðsins síðar á árinu þegar Hollendingar hafa for- mennsku í ESB. Skv. upplýsingum utanríkisráðu- neytisins ræddu ráðherrarnir helstu áherslur í formennskutíð landanna. Tók Halldór sérstaklega upp áhyggjur EFTA-ríkjanna af umfjöll- un ESB um mögulegar hömlur á inn- flutningi eldislax frá Íslandi og Nor- egi. Lagði ráðherra áherslu á að slíkar aðgerðir stríddu gegn ákvæð- um EES-samningsins og myndu hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir íslenskt laxeldi. Náið samráð verði haft um loftferðasamninga Halldór ljáði einnig máls á yfir- standandi loftferðasamningum ESB við Bandaríkin og áréttaði mikilvægi þess að sambandið hefði náið samráð við EFTA-ríkin um þessa samninga. Flugfélög í EFTA-ríkjum og sér- staklega á Íslandi störfuðu í ríkjum ESB og því væri mikilvægt að nýir samningar af þessu tagi tækju fullt tillit til réttinda þessara flugfélaga. Halldór Ásgrímsson hitti utanríkisráðherra Hollands Áhyggjur af eldislaxi og loftferða- samningi ♦♦♦ BORGARSTJÓRI telur ekki tilefni til að efna til atkvæðagreiðslu um færslu Hringbrautar samhliða for- setakosningunum 26. júní nk., en átakshópur Höfuðborgarsamtak- anna og Samtaka um betri byggð kröfðust atkvæðagreiðslunnar. Svar Þórólfs Árnasonar borgar- stjóra var kynnt í borgarráði á þriðjudag. Þar kemur fram að und- irbúningur að færslu Hringbrautar hafi staðið lengi. Ýmsar tæknilegar útfærslur hafi verið kannaðar vand- lega „enda miklir hagsmunir í húfi að vel takist til“, segir borgarstjóri. Jafnframt hafi málið verið rætt ít- arlega og kynnt í samræmi við lög. „Færsla Hringbrautar hefur því hlotið ítarlega og vandaða meðferð og verið auglýst sem hluti af skipu- lagsferli og mati á umhverfisáhrif- um. Borgarbúum og þeim sem hags- muna eiga að gæta hefur gefist færi á að koma athugasemdum á fram- færi.“ Borgarstjóri Ekki tilefni til atkvæða- greiðslu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.