Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 21
SÍÐUSTU DAGAR
SUMARSPRENGJUNNAR!
50%
SUÐURLANDSBRAUT 54
(BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109
AFSLÁTTUR
KOMIÐ OG GERIÐ GÓÐ KAUP!
LOKAÐ MÁNUDAG 10. OG
ÞRIÐJUDAG 11. MAÍ.
OPNUM AFTUR
MIÐVIKUDAGINN 12. MAÍ
Reykjavík | Íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur (ÍTR) stóð á
dögunum fyrir málþingi fyrir ung-
linga undir yfirskriftinni Frítíminn
minn. Var þar gerð tilraun til að fá
fram hvað börn og ungmenni í borg-
inni vilja gera í sínum frítíma. Öllum
íþrótta- og æskulýðsfélögum í borg-
inni var boðið að senda fulltrúa á
þingið auk þess sem ungmenni úr
Reykjavíkurráði ungmenna og ung-
lingaráðum félagsmiðstöðva áttu
sína fulltrúa á þinginu.
Þrjátíu og fimm ungmenni sóttu
þingið, sem fór fram í félagsmiðstöð-
inni Árseli í Árbæ. Var þeim skipt
upp í sex hópa, sem unnu hugmyndir
sem verða nýttar í víðtækri stefnu-
mótunarvinnu sem á sér nú stað á
æskulýðs-, íþrótta- og útivistarsviði
ÍTR. Stjórn ÍTR og forstöðumönn-
um félagsmiðstöðva var boðið að
sitja kynningu á niðurstöðum mál-
þingsins til að heyra hugmyndir
unga fólksins um það sem betur
mætti fara í tómstundastarfi.
Unga fólkið var m.a. spurt um
hvað það vildi gera í sínum frítíma og
hvað það væri ánægt og óánægt með
í frítímaþjónustu borgarinnar. Þá
var einnig spurt hvaða frístundaað-
stöðu og tilboð unga fólkið nýtti nú
þegar og hvað vantaði.
Mikil þörf fyrir félagslíf
Það kom ekki á óvart að unga fólk-
ið lifir miklu og ríku félagslífi, spilar
tónlist, æfir íþróttir, umgengst vini,
stundar félagsstarf, útivist og jað-
aríþróttir auk þess sem það vill
gjarnan fá að vera í afslöppuðu um-
hverfi þar sem það getur átt stund
milli stríða.
Mikillar ánægju gætti með starfs-
fólk félagsmiðstöðvanna og annarra
frístundaúrræða ÍTR og þá dagskrá
sem það skipuleggur auk þess sem
aðstaðan í Nauthólsvík hvað varðar
siglingar og ylströnd fékk góða ein-
kunn. Hitt húsið og sundlaugarnar
nutu einnig mikillar hylli. Þá fékk
málþingið sjálft einnig hrós, sem góð
leið til að nálgast þarfir unglinga.
En þótt unglingarnir væru ánægð-
ir með margt höfðu þeir ýmsar hug-
myndir að úrbótum og hlutum sem
betur mættu fara. Þannig vildu þeir
afnema fjöldatakmarkanir á viðburði
og ferðir Samfés, möguleika á því að
fá óþekktar hljómsveitir til að spila á
böllum hjá Samfés, betri og fjöl-
breyttari hjólreiðastíga auk stíga
sem tengja sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu. Unglingunum
þótti einnig nokkuð dýrt í strætó. Þá
vildu þeir að félagsmiðstöðvar væru
starfandi á sumrin og um helgar og
einnig kom upp ósk um sundlaug í
Fossvoginn. Óskir um aðstöðu fyrir
áhugafólk um tónlist, jaðaríþróttir
og útiaðstöðu fyrir íþróttaiðkun al-
mennings. Fjölbreyttari íþróttastarf,
þar á meðal bogfimi, kappróður,
ruðning og klifur. Einnig langaði
unglingana að hljóta leiðsögn í heim-
spekilegri hugsun og sögu og goð-
sögnum mannkyns.
Takmörkuð fjárráð unglinganna
skinu auk þess í gegn í því að margir
mæltu fyrir ódýrari eða ókeypis far-
gjöldum í strætó og aðgangi að sund-
stöðum. Þá óskuðu unglingarnir þess
að komast frítt inn á söfn.
Útvarpsstöð ungs fólks var líka að
sjálfsögðu meðal þess sem ungling-
arnir vildu ljá máls á.
Og ekki miðuðu allar hugmynd-
irnar við eigin þarfir unga fólksins.
Ein hugmynd unga fólksins var að
ÍTR aðstoðaði ungt fólk við sjálf-
boðastarf, til dæmis gætu krakkar
sem kunna á hljóðfæri heimsótt dval-
arheimili og sjúkrastofnanir.
Mikil áhrif á stefnumótun
Sigrún Sveinbjörnsdóttir, fræðslu-
stjóri ÍTR, segir málþingið hafa
heppnast vel í alla staði. „Mér líst
mjög vel á þessar niðurstöður. Þarna
kom mjög margt fram. Það var líka
sérstakt hvað það komu svipaðar
niðurstöður úr öllum hópunum, svo
við sjáum að það eru skýrar hug-
myndir hjá krökkunum,“ segir Sig-
rún. „Við höfum verið að vinna mikið
með ungmennaráðum hverfanna og
Reykjavíkurráði ungmenna, sem
fundar með borgarstjórn einu sinni á
ári. Þessir krakkar eru orðin nokkuð
klárir á vinnubrögðunum.“
Sigrún er afar ánægð með þær
fjölmörgu og frjóu hugmyndir sem
fram komu á málþinginu og segir
óskina eftir frístundaíþróttaaðstöðu
fyrir krakka sem ekki æfa íþróttir
reglulega hafa verið áberandi. „Þau
vilja hafa aðstöðu þar sem þau geta
komið og klifrað og stundað annað
jaðarsport og hitt aðra krakka á
sama aldri. Einnig kom þörfin á að-
stöðu fyrir sextán til átján ára
krakka vel fram,“ segir Sigrún.
Ósk unglinganna um að félags-
miðstöðvarnar séu opnar allt árið og
um helgar segir Sigrún eðlilega og
mikilvægt að líta nánar í þau mál,
enda sé það þá sem krakkarnir eiga
sinn mesta frítíma. „Þetta er nátt-
úrulega okkar stærsti kúnnahópur
og okkar metnaður að leita til þeirra
og reyna að mæta þeirra þörfum, því
þau vita hvað þau vilja. Við höfum
verið að reyna að vinna mikið með
unglingalýðræði svo þessir krakkar
finni að þau geti haft áhrif,“ segir
Sigrún og bætir við að málþingið
hefði heppnast jafnvel betur, ef meiri
þátttaka hefði verið frá unglingum í
íþrótta- og æskulýðsfélögum, það
hefði aukið breiddina. Þó megi ef til
vill leiða að því líkur að unglinga-
lýðræðið hafi að vissu leyti sannað
sig, þar sem unglingar, sem hafa bú-
ið við það hafi það sjálfstraust sem
þarf, til að taka þátt í málþingi af
þessum toga.
Sigrún segir ljóst að niðurstöður
málþingsins verði nýttar til stefnu-
mótunar. „Stefnumótunarhóparnir
eru núna að hefja sitt starf um þetta
leyti og skila sínum niðurstöðum í
haust. Þetta mun hafa víðtæk áhrif á
þeirra vinnu.“
Málþingið Frítíminn minn fjallaði um óskir unga fólksins um tómstundastarf
Öflug og frjó
hugmyndavinna
unga fólksins
Morgunblaðið/Arnaldur
Öflugt tómstundastarf: Unglingar hafa lýst yfir mikilli ánægju með það tóm-
stundastarf sem ÍTR býður upp á, en hafa ýmsar hugmyndir um nýjungar.
Niðurstöður kynntar: Unglingarnir
kynna niðurstöður vinnuhópanna.