Morgunblaðið - 06.05.2004, Qupperneq 22
AKUREYRI
22 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
YNGSTU og elstu borgarar bæjar-
ins áttu saman góða stund á leik-
skólanum Lundarseli í vikunni. Þeir
eldri komu í heimsókn á leikskólann
og kynntu sér það starf sem þar fer
fram tóku þátt í leikjum barnanna
og drukku með þeim miðdegissop-
ann.
„Þetta var rosalega skemmtilegt,“
sagði Helga María Þórarinsdóttir,
leikskólakennari á Lundarseli. Áður
hafa börnin komið í heimsókn til
þeirra eldri, í félagsmiðstöðina í
Víðilundi og tóku þar þátt í heilmik-
illi dagskrá sem allir höfðu gaman
af. Upphaf samstarfins milli þeirra
eldri borgara sem sækja félagsmið-
stöðina í Víðilund og barnanna á
Kisudeild í Lundarseli má rekja til
þess að á leikskólanum var unnið að
verkefninu „Bær í barnaaugum“ þar
sem fjallað er um hvernig Akureyri
kemur börnum fyrir sjónir. Í fram-
haldi af því var afráðið að þau fengju
að kynna sér listamenn betur. „Sig-
urbjörg í Víðilundi sá frá okkur
tölvupóst og hafði samband og
spurði hvort við hefðum ekki áhuga
á að kynnast þeim fjölda listamanna
sem tæki þátt í starfsemi félagsmið-
stöðvarinnar,“ sagði Helga María.
Þannig hófst samstarfið og þar sem
afar vel hefur tekist til verður fram-
hald á. Næst munu börnin heim-
sækja þau eldri og gera eitthvað
skemmtilegt með þeim úti við og
endurgjalda svo heimsóknina og
taka þátt í útiveru með börnunum.
„Börnin voru ofboðslega spennt
fyrir þessari heimsókn,“ sagði Helga
María, en áður höfðu þau undirbúið
komu þeirra með því að útbúa borða
þar sem gestirnir voru boðnir vel-
komnir. „Margt af þessu eldra fólki
hefur aldrei inn á leikskóla komið og
það var greinilegt að þeim þótti
gaman að sjá hvernig búið er að
börnunum. Fólkið tók svo þátt í
ýmsum leikjum með börnunum,
sumir fóru að leira, aðrir að raða
kubbum, vatnslita, sauma, spila eða
bara spjalla,“ sagði Helga María.
Samstarf milli leikskólabarna og eldri borgara
Börnin voru
ofboðslega spennt
Morgunblaðið/Kristján
Í kaffi með börnunum: Eldri borgararnir Helga Ingimundardóttir, t.v.,
Arnfríður Róbertsdóttir, Torfhildur Steingrímsdóttir og Áslaug Þorsteins-
dóttir fengu sér kaffi og meðlæti með Söru, Irenu Rut og Guðrúnu Björk á
leikskólanum Lundarseli.
Morgunblaðið/Kristján
Góðir gestir í heimsókn: Freygerður Bergsdóttir og Kristján Einarsson,
eldri borgarar á Akureyri, á Lundarseli, með þeim Sunnu, Róberti, Snorra,
Hilmu Rún, Elísu Ósk, Tómasi, Róberti Helga og Margréti Steinunni.
GJALDKERI hefur verið starfandi
hjá Akureyrarbæ frá árinu 1863 en
nú nýlega var starfið lagt niður og
því ekki lengur hægt að greiða
reikninga á bæjarskrifstofunni.
Fyrsti bæjargjaldkerinn á Ak-
ureyri var Jóann Gottfreð Havsteen,
en hann var kosinn samhljóða á
fundi bæjarstjórnar 30. apríl árið
1863 og gegndi hann starfinu til árs-
ins 1866 þegar B.A. Steinke tók við.
Jóhann átti heima í Hafnarstræti
3 og samkvæmt upplýsingum frá
Jóni Hjaltasyni sagnfræðingi hefur
hann að öllum líkindum haldið utan
um starfið þar.
Bæjargjaldkeraembættið á Ak-
ureyri var lagt niður árið 2000 og því
var breytt í deildarstjórastarf.
Gjaldkerastúkunni var hins vegar
lokað endanlega nú fyrir skömmu.
Það var m.a. gert í hagræðing-
arskyni og eins var orðið mjög lítið
um það að fólk kæmi til að greiða
reikninga á Bæjarskrifstofunum að
sögn Heiðar Hjaltadóttur, forstöðu-
manns fjárreiðudeildar.
Sú sem gegndi gjaldkerastarfinu
er hins vegar ekki að missa vinnuna,
á deildinni eru næg önnur verkefni
að fást við. Fjárreiðudeild bæjarins
mun nú á næstu dögum flytja upp á
aðra hæð Ráðhússins og var yfirvof-
andi flutningur hennar einnig partur
af því að ákveðið var að loka gjald-
kerastúkunni nú.
Morgunblaðið/Kristján
Gjaldkerastarfið aflagt: Kristín Sigurðardóttir gjaldkeri og Heiður Hjalta-
dóttir, forstöðumaður fjárreiðudeildar Akureyrarbæjar.
Gjaldkerastarfið lagt
niður hjá Akureyrarbæ
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt Akureyrarbæ til
að greiða Guðrúnu Sigurðardóttur
deildarstjóra ráðgjafardeildar hjá
Akureyrarbæ tæpar 3,7 milljónir
króna auk dráttarvaxta. Sumarið
2002 var í héraðsdómi kveðinn upp
dómur í sama máli, en því var skotið
til Hæstaréttar sem krafðist þess að
héraðsdómurinn yrði ómerktur og
var málinu vísað heim í hérað að nýju.
Byggði hún kröfur sínar í málinu á
því að hún hefði orðið fyrir fjártjóni
vegna brota bæjarins á ákvæðum
jafnréttislaga við launaákvarðanir.
Akureyrarbær krafðist sýknu í mál-
inu. Byggði hún aðalkröfu sína á mis-
mun launa og annarra kjara í starfi
sínu miðað við starf deildartækni-
fræðings hjá tæknideild bæjarins á
tímabilinu frá 1. mars 1992 til 31.
ágúst 2000.
Fram kemur í dómnum að óum-
deilt sé að launakjör hennar hafi ver-
ið lakari en deildartæknifræðings á
því tímabili sem krafa hennar tók til.
Fram kemur það álit dómsins að
þrátt fyrir að störfin lúti að mismun-
andi verkssviðum, hafi þau um margt
verið með svipuðum hætti, þ.e. þeim
fylgdi báðum ábyrgð á viðkomandi
deildum. Af því megi ráða að störfin
hafi „almennt séð verið sambærileg
að ábyrgð, inntaki og ytri búnaði,“
segir í dómnum. Dómnum þykir að
tekist hafi að sanna að starf hennar
hafi verið jafnverðmætt starfi deild-
arstjóra tæknideildar í skilningi laga
Evrópusambandsins um jafnlaunatil-
skipanir. Samningsfrelsi sætir tak-
mörkunum vegna ákvæða jafnréttis-
laga og að mati dómsins tókst
Akureyrarbæ ekki að styðja það
haldbærum rökum að mismunun á
launakjörum deildarstjóra ráðgjafar-
deildar og deildartæknifræðings
tæknideildar mætti skýra með mark-
aðssjónarmiðum eða lægri heildar-
starfsaldri. Þannig hafi ekki tekist að
sanna að hlutrænar og málefnalegar
aðstæður hafi skýrt launamismuninn.
Stefnanda hafi hins vegar tekist að
færa sönnur á það að störf umræddra
deildarstjóra hafi því sem næst verið
jafnverðmæt og sambærileg. Akur-
eyrarbæ hafi ekki tekist að sýna fram
á að launahallinn hafi ekki verið á
grundvelli kynferðis og verði að bera
hallann af því. Því beri honum að
greiða skaðabætur en við ákvörðun
bótanna var höfð hliðsjón af launum
og öðrum starfskjörum deildartækni-
fræðings hjá tæknideild eftir því sem
við á.
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Sif Konráðsdóttir
sótti málið fyrir hönd Guðrúnar en
Hákon Stefánsson var verjandi Ak-
ureyrarbæjar.
Akureyrarbær tapar máli í Héraðsdómi Norðurlands eystra
Gert að greiða kvenkyns
deildarstjóra skaðabætur
Kynningarfundur | Haldinn verð-
ur kynningarfundur um Leonardó
starfsmenntaáætlun ESB og ný for-
gangsatriði á morgun, fimmtudag-
inn 6. maí, kl. 15.
Fundurinn er haldinn í samvinnu
við Háskólann á Akureyri og fer þar
fram í stofu 101 á Sólborg. Hann
hefst kl. 15.
Sérstök áhersla er að þessu sinni
lögð á að auka þátttöku fyrirtækja í
áætluninni, annars vegar með því að
senda starfsmenn utan til starfs-
þjálfunar og hins vegar með því að
þróa verkefni tengd mati og vottun
á færni starfsmanna, símenntun og
færni í tungumálum innan fyr-
irtækja.
Veiðisvæði | Þröstur Elliðason
verður með kynningu á veiðisvæðum
í félagsheimili Stangaveiðifélags Ak-
ureyrar í Gróðrarstöðinni við Krók-
eyri í kvöld, fimmtudagskvöldið 6.
maí, kl. 20. Þröstur er þekktur í
heimi veiðimanna og átti meðal ann-
ars stóran þátt í ævintýrinu í kring-
um uppbyggingu laxveiðinnar í
Rangánum á sínum tíma segir í frétt
frá félaginu. Hann leigir nú og rækt-
ar laxveiðiár víðsvegar um landið og
má þar nefna Hrútafjarðará og
Breiðdalsá, auk þess sem hann hefur
byggt upp mikla og góða urriðaveiði
í Minnivallalæk í Landsveit. Þröstur
ætlar að sýna frá veiðislóðum hring-
inn í kringum landið, fjalla um veiði-
staði, bráðina og þær aðferðir sem
gefast best.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
KÓR Tónlistarskólans á Akureyri
flytur óperuna Dídó og Eneas eftir
Henry Purcell í Glerárkirkju ann-
að kvöld, föstudagskvöldið 7. maí,
kl. 20. Þetta er samstarfsverkefni
óperudeildar, strengjadeildar og
kórs Tónlistarskólans undir stjórn
Michael J. Clarke. Á þessum tón-
leikum koma fram 10 einsöngvarar
úr röðum nemenda skólans en alls
taka þátt í verkefninu um 70 tón-
listarmenn. Er þetta stærsta og
viðamesta verkefni skólans á þessu
starfsári.
„Við erum farin af stað aftur eft-
ir fjögurra ára hvíld,“ sagði Mich-
ael J. Clarke. „Það er orðið nokk-
uð um liðið frá því flutt hefur verið
svona stór ópera með hljómsveit á
Akureyri, þannig að þetta er nokk-
ur viðburður.“ Óperan Dídó og
Eneas er elsta enska óperan sem
vitað er um og fjallar um Eneas,
stríðshetju sem kemur til Karþagó
þar sem Dídó drottnar. Fjallar
óperan um ástir og örlög þeirra.
Michael sagði rífandi gang í
söngdeild Tónlistarskólans um
þessar mundir, langur biðlisti væri
eftir að komast að. Gerð er sú
krafa að allir nemendur deild-
arinnar taki þátt í starfsemi kórs-
ins og sagði Michael að mikil
gróska væri í kórnum nú.
Á tónleikunum verður texta óp-
erunnar varpað á vegg þannig að
áheyrendur geta fylgst með og
eins verða inn á milli myndir af
samtímaviðburðum, málverkum og
frægum atburðum sögunnar.
Miðaverð á tónleikana er kr.
500.
Flytja óperuna Dídó og
Eneas í Glerárkirkju