Morgunblaðið - 06.05.2004, Blaðsíða 24
AUSTURLAND
24 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
• Faghópur um Heilbrigðismál - Símon Þorleifsson, ráðgjafi IMG.
• Fjármögnun og rekstur heilbrigðisþjónustu, Axel Hall, hagfræðingur Hagfræðistofnun
Háskóla Íslands.
• Rýni til gagns - Fyrirspurnir frá lesanda skýrslunnar, Katrín Ólafsdóttir, adjunkt frá
Háskólanum í Reykjavík.
• Spurningar og umræður.
Skráning er á heimasíðunni: www.stjornvisi.is
Verð fyrir félagsmenn er 2.000 kr., en 4.000 kr. fyrir aðra.
Stjórnvísi, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, s. 533 5666
Fundurinn er haldinn að frumkvæði Heilbrigðishópsins sem hefur sett sér þau markmið að hefja umræðu um heilbrigðiskerfið yfir
dægurþras. Faghópurinn er hlutlaus vettvangur uppbyggilegrar umræðu um heilbrigðismál þar sem sjónarmið heilbrigðisvísinda,
siðfræði, jafnaðar, hagfræði og stjórnunar takast á þannig að leita megi nýrra lausna og horfa til framtíðar.
Fundarstjóri: Guðrún Högnadóttir, stjórnunarráðgjafi hjá IMG.
Heilbrigðiskerfið - Óseðjandi hít?
Morgunverðarfundur 11. maí kl. 8.30–9.30 í Víkingasal Hótel Loftleiða
Katrín Ólafsdóttir Guðrún Högnadóttir
Axel HallSímon Þorleifsson
Egilsstaðir | Stúdentsefni Mennta-
skólans á Egilsstöðum dimmiteruðu
um liðna helgi með brauki og
bramli.
Þau byrjuðu eldsnemma morg-
uns; voru komin á stjá á tveimur
gömlum hertrukkum með blæju-
boddíi klukkan fimm um morg-
uninn til að ræsa kennara sína og
merkja þá með viðurnefnum vetr-
arins.
Allir voru krakkarnir klæddir
eins og maðurinn með ljáinn og
fóru þannig um allan Egilsstaðabæ
og máluðu hann rauðan eftir föng-
um.
Er nokkuð var liðið á daginn sett-
ust nokkrir menntskælingar niður
við Söluskálann og fengu sér pylsu,
pilsner og kókómjólk til að safna
kröftum svo aftur væri hægt að
taka til við málningarvinnuna
rauðu.
Sú rauða
málning-
arvinna
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Menntskælingar varpa öndinni á annasömum degi: Dimmiterað í Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Melhorn aftur á blað | Umhverf-
isráð Austur-Héraðs vill að aftur
verði tekin til skoðunar hugmynd um
veg frá gatnamótum Seyðisfjarðar-
og Eiðavega yfir á Egilsstaðanes, en
leiðin hefur gengið undir nafninu
Melhornsleið og verið til umræðu af
og til síðustu árin. Þegar nýr meiri-
hluti tók við í bæjarstjórn Austur-
Héraðs fyrir tveimur árum var sett
ákvæði í samkomulag flokkanna um
að ákveðin atriði í aðalskipulagi sveit-
arfélagsins skyldu endurskoðuð og er
Melhornsleiðin hluti af því. Hart var
tekist á um það fyrir nokkrum miss-
erum hvort byggja ætti nýja brú yfir
Eyvindará og beina allri umferð frá
Eiðavegi og Seyðisfjarðarvegi í gegn-
um Egilsstaðabæ, eða ráðast í Mel-
hornsleiðina. Var afráðið að byggja
fremur brúna til að beina umferð inn í
bæinn og voru menn fjarri því á eitt
sáttir um niðurstöðuna. Hugsanlega
gæti Melhornsleið nú leyst þann
vanda sem skapast hefur undanfarið
af mikilli þungaumferð flutningabíla
og vinnuvéla gegnum miðbæinn.
Táveggur steyptur | Nú er unnið
að því að steypa upp svokallaðan tá-
vegg varnarstíflu í Hafrahvamma-
gljúfri og veggi við útrás hjáveitu-
ganga. Bætt var við fyllingarefni í
varnarstífluna um helgina. Á vefn-
um karahnjukar.is segir að vaxið
hafi í Jöklu vegna hlýinda und-
anfarið og mikilvægt sé að treysta
varnir fyrir væntanleg vorflóð í
ánni. Ætla megi þó að sjatni nú í
ánni vegna kuldakasts sem reiknað
er með að standi fram að helginni.
Framkvæmdir ganga vel og í
Fljótsdal er til dæmis byrjað að
bora lóðrétta 400 m djúpa holu úr
aðrennslisgöngum í Valþjófsstað-
arfjalli í Fljótsdal, niður að vænt-
anlegu stöðvarhúsi Kárahnjúka-
virkjunar. Vírar verða dregnir í
holuna og borkróna síðan dregin
upp. Þannig verða gerð tvenn fall-
göng virkjunarinnar sem verða ein
af lengstu stálfóðruðu göngum í
heiminum.
Norðausturvegur | Vopnafjarð-
arhreppur hefur sent frá sér eftirfar-
andi ályktun í kjölfar þess að drög að
tillögu að matsáætlun Norðaust-
urvegar, tengingu Vopnafjarðar við
Hringveg liggur nú fyrir. „Hrepps-
nefnd Vopnafjarðarhrepps fagnar því
að tillaga að matsáætlun (drög), varð-
andi tengingu Vopnafjarðar við þjóð-
veg eitt liggur fyrir. Hreppsnefnd
hvetur Vegagerðina til þess að flýta
sem unnt er gerð matsskýrslu, þar
sem leitast verði við að bera saman
kosti og galla þeirra leiða sem til um-
fjöllunar eru, þannig að unnt verði á
faglegum nótum að mæla með einni
ákveðinni leið áður en að endanlegum
úrskurði Skipulagsstofnunar kemur.“
Tillagan liggur frammi til sýnis á
skrifstofu Vopnafjarðarhrepps.
Köttum haldið til haga | Nú í
mánaðarbyrjun á að stórherða eftirlit
með kattahaldi á Egilsstöðum. Lögð
hafa verið út sérstök búr til að fanga í
ketti og verður athugað hvort þeir
séu merktir og skráðir samkvæmt
samþykki um kattahald á Austur-
Héraði. Forstöðumaður umhverf-
issviðs sveitarfélagsins hefur minnt
kattaeigendur í bænum á að þeir eru
skyldugir til að sjá til þess að kettir
þeirra valdi ekki hættu, óþægindum
eða óþrifnaði, né raski ró manna. Þá
beri kattaeigendum að taka tillit til
fuglalífs á varptíma. Átakinu lýkur að
þessu sinni í júnílok nk.
Morgunblaðið/Jim Smart
Seyðisfjörður | Um helgina var opn-
uð í Skaftfelli á Seyðisfirði sýningin
Lýsir; myndlist úr fornum íslensk-
um handritum.
Á sýningunni gaf að líta nokkra
tugi verka þar sem myndskreytingar
handrita frá siðaskiptum og fram á
miðja 19. öld eru stækkaðar upp og
prentaðar m.a. á málmþynnur.
Myndlistamaðurinn Darri Lorenzen
vann myndirnar fyrir sýninguna og
skipulagði hana ásamt hönnuðinum
Ásrúnu Kristjánsdóttur, sýningar-
og verkefnisstjóra Lýsis.
Í myndunum má m.a. finna ná-
kvæmar útlistanir á stöðu og stétt
manna, skýringarmyndir af skepn-
um, forn mynstur og athyglisverðar
samsetningar úr heiðindómi og
kristni.
Ásrún sagði við opnun sýningar-
innar að búið væri að fara í gegnum
nokkur þúsund handrit og taka það-
an upp myndir, sem hafa verið
hreinsaðar og stækkaðar upp. Í
þessu verkefni er víða ónumið land
og má nefna í því sambandi að eftir
er að fara í gegnum um fimmtán þús-
und skinn- og pappírshandrit til að
skoða þar myndskreytingar.
Hvísl skrifarans
Lýsir var settur á stofn með það
að markmiði að búa til gagnagrunn
um myndlistina í íslenskum handrit-
um. Að verkefninu stendur áhuga-
fólk um þessi málefni, sem fyrir til-
stuðlan Menningarborgarsjóðs,
Listasafns Reykjavíkur og Lands-
bókasafns Íslands var gert kleift að
setja upp sýningu á völdum myndum
í Skaftfelli.
Sýningin var fyrst sett upp í Lista-
safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í
febrúar 2003 og af því tilefni sömdu
tónlistarmaðurinn og allsherjargoð-
inn Hilmar Örn Hilmarsson og rit-
höfundurinn Sjón tónverkið „Hvísl
skrifarans“.
Sýningin verður opin í Skaftfelli til
11. júní nk. alla daga vikunnar.
Myndlist liðinna alda í Skaftfelli
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fornar myndir öðlast nýtt líf: Ásrún
Kristjánsdóttir, sýningar- og verk-
efnisstjóri Lýsis, segir frá verkefn-
inu á sýningaropnun í Skaftfelli.
Svo voru selir skýrðir fyrr á öldum:
Myndskreyting úr skinnhandriti.
Norröna | Farþega- og flutn-
ingaskipið Norröna er nú komið á
sumaráætlun og kom til Seyð-
isfjarðar í morgun. Leið skipsins
liggur til Hansthólm í Danmörku,
til Þórshafnar í Færeyjum, áfram
til Leirvíkur á Hjaltlandseyjum og
Bergen í Noregi. Þá er siglt aftur
til Leirvíkur, Þórshafnar og til
Seyðisfjarðar, þar sem skipið verð-
ur á fimmtudagsmorgnum fram á
haustið. Siglt er út um hádegi.