Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 31

Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 31
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 31 ÍSSKÁPURINN er helgidómur í augum sumra, fullur af næringu og góðgæti. Í augum annarra er hann neyðarúrræði og er aðeins opnaður ef langt er í næsta veitingastað eða aktu-taktu-sjoppu. En innihaldið segir mikið um persónuleika okkar segja sérfræðingar og getur jafnvel gefið vísbendingar um við hvað við störfum. Samkvæmt úttekt í Daily Mail skiptu sérfræðingar fólki í fimm að- alflokka og byggðu á innihaldi ís- skápa þeirra. Þar voru semsagt allt frá næringarnördum og upp í skyndibitaöfgasinna. Á milli þeirra eru matarsérvitringar, mömmur og reglulegir viðskiptavinir veitinga- húsa. Næringarsérvitringar passa upp á mataræðið með ástríðu og hneigjast til að kaupa lífræna fæðu. Í ísskápn- um þeirra má búast við að finna líf- ræna jógúrt, egg úr hamingjusöm- um hænum, eggaldin og vatn á flöskum. Skipulag ríkir í ísskápnum, allt er í röð og reglu. Flestir eig- endur þeirra eru einhleypir, en ef þeir færu í sambúð yrði það örugg- lega með einhverjum með sömu áhugamál. Skyndibitaöfgasinnarnir fylla ís- skápa sína með afgöngum frá skyndibitastöðum, aðallega pizzu, auk einstaka flösku af áfengum gos- drykkjum eða hvítvíni. Þar er líka majónes, tómatsósa og gosdósir. Ekki ætti að koma á óvart að í þess- um hópi er aðallega ungt fólk til dæmis háskólanemar. Tískusælkerar vinna oft í fjölmiðl- um eða í tískugeiranum. Þeir fylgj- ast með matartískunni, hvað er nýj- ast og flottast, og geyma mikið af vítamínbættum ávaxtasöfum og fæðubótarefnum innan seilingar. Í ísskápnum þeirra er örugglega soja- mjólk, geitaostur, grænmetissósur og lífrænt súkkulaði. Mömmur gera allt til að gleðja aðra og kaupa því bestu merkin fyrir fjöl- skylduna. Reyndar er allt til í ís- skápnum þeirra að mati kaupsýslu- mannsins Reuben Isbitsky, en hann notaði rannsóknina í markaðsátaki. Þær eiga örugglega fiskstauta, stór- steikur og grænmetisborgara, gos og ost, bjór og afganga af ýmsum réttum t.d. kjúklingaréttum ef ein- hver yrði skyndilega svangur. Veitingahúsafólk Þeir sem eru skilgreindir sem reglulegir við- skiptavinir veitingahúsa eru oft í eldri kantinum, í góðum stöðum eða frægir. Þetta fólk á það sameigin- legt að vegna vel og eiga vatnsflösk- ur og tilbúið salat í ísskápnum. Tekið skal fram að rannsóknin var gerð í Bretlandi og tóku um 400 manns þátt í henni. Reynt var að gera svipaða könnun í Bandaríkjun- um en erfiðara reyndist að flokka fólk þar eftir innihaldi ísskápsins. Rannsakendur komust þó að þeirri niðurstöðu að ísskáparnir í Banda- ríkjunum eru yfirleitt mjög stórir.  MATUR| Hvað segir ísskápurinn um þig? Næringarsér- vitringar eða tískusælkerar? Morgunblaðið/Árni Torfason Úttekt: Innihaldið í ísskápnum segir heilmikið um persónuleikann. NÁIÐ samband við aðra mann- eskju getur minnkað líkur á end- urteknum hjartaáföllum um helm- ing. Þetta getur verið náið samband við hvort sem er vin eða elskhuga, að því er fram kemur á vef Guardian. Læknar í Manchester fylgdust í eitt ár með 600 manns sem fengið höfðu hjartaáfall. Þeir komust að þeirri niðurstöðu að þeir sem áttu trúnaðarvin voru í helmingi minni hættu á að fá annað hjartaáfall en þeir sem áttu engan náinn að. Síðarnefndi hópurinn var einnig líklegri til að drekka mikið og neyta ólöglegra fíkniefna. Einnig var líklegra að þeir sem tilheyra þessum síðari hópi hefðu þurft að skilja við foreldra sína í æsku. Vís- indamennirnir veltu fyrir sér hvort foreldramissir í æsku geti minnkað möguleika fólks á að mynda náið samband við aðra á fullorðinsárum. Þrír fjórðu af 600 manna hópnum voru karlmenn og var meðalald- urinn sextíu ár. Andleg heilsa fólksins var tekin með í reikninginn og öfugt við fyrri rannsóknir áttu þeir sem höfðu sögu um þunglyndi ekki frekar á hættu að fá annað hjartaáfall en hinir sem ekki voru þunglyndir. Forsvarsmenn þess- arar rannsóknar leggja þó áherslu á að hjartalæknar ættu ekki að líta fram hjá þunglyndi sjúklinga sinna. Náið samband forvörn  HEILSA|Endurtekin hjartaáföll Morgunblaðið/Þorkell Vinir: Þeir sem áttu trúnaðarvin voru í helmingi minni hættu á að fá annað hjartaáfall en þeir sem áttu engan náinn að. Traust Framúrskarandi ávöxtun 30% stækkun 30 þúsund sjóðfélagar Aðalfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn í dag, 6. maí, kl. 17:15 á Nordica Hotel, Suðurlandsbraut 2. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S ÍA .I S LB I 24 59 0 05 /2 00 4 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á fundinum. 0 5 10 15 20 LÍF IIILÍF IILÍF I % % % % % Nafnávöxtun árið 2003 Lífeyrissparnað r Landsbankans Íslenski lífeyrissjóðurinn er í vörslu Landsbank- ans og var ávöxtun framúrskarandi á árinu 2003. Ávöxtun á innlendum skuldabréfamarkaði og virk stýring sjóðsins skiluðu verulega góðum árangri. Allir eignaflokkar hækkuðu en bestu ávöxtun gáfu innlend hlutabréf. Íslenski lífeyrissjóðurinn stækkaði um 30% á árinu 2003 og nú treysta yfir 30.000 félagar Lífeyrissparnaði Landsbankans til að ávaxta lífeyri sinn. Það segir sína sögu. 19,2% 16,2% 10,8% Banki allra landsmanna Nýjung á lífeyrismarkaðnum Á aðalfundinum verður sérstök kynning á Lífvernd, áhugaverðri nýjung í viðbótarlífeyris- sparnaði sem felur í sér launavernd. Við fráfall greiðir Landsbankinn til erfingja 70% af heildarlaunum í 7 ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.