Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 33
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 33
NÝ uppskera af íslensku græn-
meti er að koma í verslanir
þessa dagana og er nokkuð um
nýjungar á markaði. Gunnlaugur
Karlsson, framkvæmdastjóri
Sölufélags garðyrkjumanna,
bendir á nokkrar nýjar tegundir
af salati sem hægt verður að
rækta allt árið. „Þessi ræktun er
ennþá á tilraunastigi en hefur
fengið mjög góð viðbrögð og von
er á þessum tegundum á markað
á næstunni. Konfekttómatar eru
annað dæmi, þeir eru sambland
af sjérrítómötum og plómu-
tómötum og munu verða í tak-
mörkuðu magni. Einnig má
nefna íslenskan kúrbít sem til-
raunastöð Garðyrkjuskólans er
að rækta og þá er paprikan fyrr
á ferðinni en venja hefur verið
til vegna tilrauna með ræktun
undir raflýsingu. Íslenskt kletta-
salat er líka komið á markað og
næsta haust er von á radísum,
sem ekki hafa verið til,“ segir
hann.
Gunnlaugur nefnir líka úti-
ræktun á íslensku ísbergsalati
og salat sem gerðar hafa verið
tilraunir á sem lofa mjög góðu.
Er þar um að ræða salattegund
sem mikið er ræktuð í Finnlandi
og mun verða á boðstólum allt
árið, að hans sögn.
Hollara, ferskara, bragðbetra
„Þá má benda á salatþrennu í
potti sem fólk getur rifið niður
beint á diskinn en þar erum við
að keppa við innflutta pokasal-
atið. Í stuttu máli sagt er sér-
staða íslenska grænmetisins þrí-
þætt. Það er í fyrsta lagi hollara
þar sem ræktunin er án auka-
efna. Í öðru lagi er það ferskara,
þar sem það kemur beint frá
bónda, og í þriðja og síðasta lagi
er það bragðbetra þar sem það
er fullþroskað er það fer á
markað,“ segir Gunnlaugur
Karlsson að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Tómattínsla í gróðurhúsinu á Jörfa.
Ýmsar nýj-
ungar hjá
garðyrkju-
bændum
Fyrsta voruppskeran
af íslensku grænmeti
Úrslitin í spænska boltanum
beint í símann þinn
Úrslitin í enska boltanum
beint í símann þinn
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn