Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 43

Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 43 Það var svo óraun- verulegt að heyra að þú værir farinn. Eftir að það var búið að hringja í mig og láta mig vita af þessu þá hugsaði ég í svona tvær mínútur bara hvað væri í gangi, þetta gat ekki verið satt. Ég tók upp símann og reyndi að hringja í þig en þú svar- aðir ekki. Ég hringdi aftur í mann- eskjuna sem sagði mér þetta til að fá að heyra þetta aftur og þá gerði ég mér grein fyrir því að þetta var satt. Þórður var dáinn. Það er ómögulegt að lýsa því hvernig mér leið, fannst allt á einu augnabliki vera orðið svo tómt og óraunverulegt. Ég kynntist Þórði í ágúst þegar við byrjuðum í Hraðbraut og við urðum fljótlega góðir vinir. Hann skildi vitleysuna í mér og hélt oft aftur af mér. Með tímanum var nóg að horfa á hann og þá vissi maður hvað hann var að meina eða hvað honum fannst um hluti, glott- ið sem hann setti upp þegar manni datt einhver vitleysa í hug sagði manni allt sem hann var að hugsa. Við gerðum margt saman ég og Þórður og finnst mér hæst bera þegar við fórum eina helgi norður á Dalvík til að fara á snjóbretti og það er ein besta helgi sem ég hef upplifað. Síðan margt annað, ísr- úntur til Hveragerðis með Steinari þar sem við gáfum afgreiðslustúlk- unni í Eden rós og kort af því að hún átti afmæli, þegar við keyrð- um Hvalfjörðinn og upp í Borg- arnes og þegar við fórum einn daginn eftir próf í frábæru veðri niður á Bæjarins bestu og svo fengum við okkur appelsín í Cafe Árnesi. Þetta voru góðar stundir og þær góðu minningar sem ég á um þig eru óendanlegar. Stór varstu og maður þurfti að horfa aðeins upp á við til að tala almennilega við þig en ég leit upp til þín þó svo að þú sætir á stól og ég væri hærri en þú. Það að þú hafir þurft að fara svona snemma er mér óskiljanlegt en þetta var þín ákvörðun og ég ÞÓRÐUR WILLARDSSON ✝ Þórður Willards-son fæddist á Ak- ureyri 27. október 1986. Hann lést á Dalvík 25. apríl síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Lang- holtskirkju 5. maí. vona að þér líði vel þar sem þú ert. Núna vantar stóran part í mitt líf, eins og tvo metra eða svo. Ég bara vildi óska þess að ég hefði getað kvatt þig áður en þú fórst úr skólanum á föstudaginn með bros á vör. Þú varst einn af mínum allra bestu vinum, mér þótti ótrú- lega vænt um þig og mun sakna þín mikið. Elsku Tóta, Will- ard, Össur, Birna og fjölskylda, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Pétur Snær Jónsson. Okkar kæri vinur, Þórður Willardsson, er látinn langt um aldur fram. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd, söknuðurinn er mikill og okkur skortir orð til að lýsa samúð okkar og sorg. Við kynntumst Þórði (Dodda) haustið 2003, þegar við vorum allir að byrja í Menntaskólanum Hrað- braut. Doddi fór ekki framhjá neinum manni enda af stærri gerð- inni. Við urðum fljótt vinir, enda varla annað hægt þegar að Doddi var annars vegar. Við áttum marg- ar góðar stundir saman í skól- anum, þónokkrar í frímínútum, þar sem við annaðhvort skelltum okkur í fótbolta eða út að borða. Enn fleiri og betri stundir áttum við þó utan skóla, til dæmis nokkr- ar sumarbústaðarferðir, þar sem við skemmtum okkur ærlega. Oft- ar en ekki kom það fyrir að Doddi endaði kvöldið á sinn sérstaka hátt, stundum við misjafnar und- irtektir nærstaddra en öllum til gamans. Einnig voru rúntarnir ófáir og margir skemmtilegir og eftir- minnilegir. Stendur þó mest upp úr rúnturinn í Borgarnes. Dag- urinn byrjaði á prófi í skólanum. Þennan dag var frábært veður, og við ákváðum að við gætum ekki sleppt öðrum eins degi. Tekinn var rúnturinn í gegnum Hvalfjörð og endað í Borgarnesi í hamborgara og ís. Svo var brunað í bæinn, til að læra undir næsta próf. Það eru svona dagar sem standa upp úr innan um fjöldann allan af ógleym- anlegum minningum. Verst að það verða ekki fleiri svona dagar með Þórði. Við munum aldrei gleyma hon- um og ávallt sakna hans. Hvíl í friði, kæri vinur. Steinar Aron Stefánsson, Grímur Snæland Sigurðsson. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PÁLÍNA M. STEFÁNSDÓTTIR frá Þykkvabæ II, Landbroti, verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 8. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Velunnarasjóð Klausturhóla, reikn. 0317-13-771176. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR frá Grafarholti, Vestmannaeyjum, síðast til heimilis í Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju föstu- daginn 7. maí kl. 14. Högni Jónsson, Birna Sigurðardóttir, Sigurborg Jónsdóttir, Sigurður Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, langafa og bróður, GARÐARS SIGURÐSSONAR fyrrverandi alþingismanns, Laugarnesvegi 89. Hjartans þakkir til starfsfólks á Skjóli og deildar 1-L Landakoti. Guð blessi ykkur öll. Bergþóra Óskarsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir okkar, tengdafaðir, bróðir minn, afi og langafi, HREINN JÓNASSON, Kelduhvammi 16, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 4. maí. Margrét Jónsdóttir, Sólveig Margrét Magnúsdóttir, Stefán Karl Harðarson, Jón Ölver Magnússon, Víðir Þór Magnússon, Helena Richter, Björk Magnúsdóttir, Úlfar Sigurðsson, Sólveig J. Carner og fjölsk., barnabörn og langafabarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og dóttir, ODDNÝ S. AÐALSTEINSDÓTTIR, Stararima 55, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 29. apríl, verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 7. maí kl. 10.30. Halldór Guðjónsson, Aðalheiður G. Halldórsdóttir, Davíð Gunnarsson, Inga Dóra Halldórsdóttir, Magnús Guðfinnsson, Sævar Dór Halldórsson, Hrund Guðjónsdóttir og barnabörn, Guðmunda O. Sigurðardóttir. Okkar ástkæra MARÍA BJARNASON frá Bakka í Siglufirði, sem lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar sunnudaginn 25. apríl, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju mánudaginn 10. maí kl. 14:00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar njóta þess. Fjölskylda hinnar látnu. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTINN JÓHANNSSON, Vitastíg 9a, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 7. maí kl. 13.30. Kjartan Kristinsson, Ólöf J. Guðmundsdóttir, Þórður Kristinsson, Edda Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐFINNUR FRIÐFINNSSON, áður til heimilis í Melási 12, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, mánudaginn 3. maí. Guðmundur B. Friðfinnsson, Sigríður Alda Ásmundsdóttir, Erna Friðfinnsdóttir, Örn Friðfinnsson, Pétur Hákon Friðfinnsson, Hjördís Braga Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.