Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 46
UMRÆÐAN
46 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARNA mánuði hafa
birst eftir mig greinar, hér á síðum
Morgunblaðsins, þar sem ég hef
verið að skrifa um geðheilbrigð-
ismál. Þar hef ég að-
allega verið að benda
fólki á hvað maður
getur sjálfur gert til
að hífa sig upp úr sín-
um veikindum, og
hvernig maður getur
notað sínar jákvæðu
hliðar til að öðlast
meiri trú á sjálfum
sér.
Eins og fram hefur
komið í mínum blaða-
skrifum er ég virkur
meðlimur í hópi sem
heitir Hugarafl. En
fyrir þá sem ekki vita þá er Hug-
arafl hópur fólks sem sam-
anstendur af tveimur fagaðilum/
iðjuþjálfum úr geðheilbrigðiskerf-
inu og sjúklingum sem náð hafa
góðum tökum á sínum sjúkdómi.
Við höfum verið að vinna saman á
jafningjagrundvelli að því að koma
á fót þjónustumiðstöð fyrir fólk
sem hefur orðið fyrir röskun vegna
veikinda og eða hefur ekki fengið
tækifæri til að sýna getu sína, t.d.
á almennum vinnumarkaði. Þessa
þjónustumiðstöð höfum við kosið
að kalla Hlutverka-
setur.
Í Hlutverkasetrinu
verður mikið um að
vera, en allt mun það
byggjast á því að
virkja fólk í að finna
sér hlutverk í lífinu.
Þungamiðjan verður
kaffihús en þar mun-
um við vera með
starfsþjálfun, þjón-
ustu við almenning og
listviðburði svo eitt-
hvað sé nefnt. Einnig
munum við vera með
ýmiss konar námskeið og fræðslu í
gangi. Þarna verður svo unnin
rannsóknarvinna á öllu því sem við
kemur geðheilsu fólks.
Þarna munu sjúklingar sem
lengi hafa átt við veikindi að stríða
en hafa náð góðum tökum á sínu
lífi, miðla af reynslu sinni til þeirra
sem hafa ekki fundið veikindum
sínum farveg í lífi sínu, því við vit-
um það vel að við ráðum litlu um
það hvort við losnum við sjúkdóm-
inn eða ekki, en við ráðum öllu um
það hvort við lærum að lifa með
honum eða ekki. Það eru til marg-
ar leiðir sem gott er að nota, en
það er náttúrulega misjafnt eftir
hverjum og einum hvaða leið er
best að fara. Þess vegna er nauð-
synlegt að hafa reynslumikið fólk,
með ólíka sjúkdómasögu á bakinu,
til að leiðbeina þeim sem eru jafn-
vel að útskrifast af geðdeild í
fyrsta skiptið, (líkast til með þá
hugsun í hausnum að það sé haldið
einhverjum hræðilegum sjúkdómi),
nú eða eins og fyrr segir fólki sem
lengi er búið að reyna að finna
veikindum sínum farveg. Það að
hafa veikst og fundið leið eru að
okkar mati verðmæti sem þarf að
miðla til annarra.
Við höfum fundið mikinn vilja
innan bæði félagsmála- og heil-
brigðisráðuneytis á að Hlutverka-
setur verði að veruleika, til marks
um það fengum við styrk frá hvoru
fyrir sig til að móta þessar hug-
myndir, og hafa þeir verið okkur
mikil hvatning. En núna erum við
að leita til fyrirtækja og fjár-
málastofnana í þeirri von að ein-
hverjir séu tilbúnir til að styrkja
okkur í að koma Hlutverkasetrinu
á fót. Einnig höfum við verið að
leita eftir hentugu húsnæði undir
starfsemina.
Það er hagur þjóðfélagsins að
skapa hlutverk. Það er hagur allra
að hafa hlutverk.
Hvað er hlutverkasetur?
Bergþór Grétar Böðvarsson
skrifar um geðheilbrigðismál ’Það er hagur þjóð-félagsins að skapa hlut-
verk. Það er hagur allra
að hafa hlutverk.‘
Bergþór G. Böðvarsson
Höfundur greindist með geð-
hvarfasýki árið 1989, í janúar 2003
byrjaði hann að vinna í 50% starfi hjá
Múlalundi, vinnustofu SÍBS.
VIÐ Íslendingar ferðumst vafa-
laust manna mest til hinna ótrú-
legustu landa jafnt nær sem fjær.
Við rekum flugfélög á heims-
mælikvarða sem eru þekkt um
víða veröld og eru jafnvel í far-
arbroddi á því sviði eins og dæmin
sanna um fyrirtæki
eins og Atlanta,
Flugleiðir og Íslands-
flug. Við komumst á
topplista í virtum
fagtímaritum yfir
fyrirtæki í ferðaþjón-
ustu, eins og Hótel
Búðir og Hótel 101
og birtist í fjöl-
miðlum á dögunum.
Nú síðast var eyjan
okkar valin númer
tvö yfir eftirsókn-
arverðustu eyjuna
samkvæmt könnun
sem sænska tímaritið
„Alt om resor“ gerði.
Þar á eftir okkur
voru nefndar eyjar
eins og Majorka,
Bali, Sikiley og Man-
hattan. Við getum
ekki annað en glaðst
yfir þessari velgengni
sem hvetur okkur
enn frekar til að taka
betur á í kynningu á
landinu og markaðssetningu ís-
lenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Sú ánægjulega þróun hefur líka
átt sér stað að landsmenn sækja
sífellt meira í ferðalög um eigið
land og nýta sér alla þá ferða-
möguleika sem eru í boði. Nýleg
skoðanakönnun Gallups sýnir að
70% Íslendinga vilja ferðast enn
meira um Ísland en þeir hafa gert.
Þessi framför á sér stað á sama
tíma og ferðaþjónusta landsmanna
sækir í sig veðrið og er stöðugt að
auka breiddina og fjölbreytnina á
landsvísu. Árlega koma fram nýir
afþreyingar- og gistimöguleikar í
öllum landshlutum og samhliða
tekur fagmennskan miklum fram-
förum.
Átta ferðamálasamtök lands-
fjórðunganna sem sameinast í
Ferðamálasamtökum
Íslands hafa unnið
mikið starf til að bæta
og auka þjónustuna
jafnt við innlenda sem
erlenda gesti sem
ferðast um landið. Í ár
verður markaðstorg
innlendrar ferðaþjón-
ustu, Ferðatorg 2004,
haldið í þriðja sinn í
Vetrargarði Smára-
lindar helgina 7. til 9.
maí. Að þessu sinni er
lögð sérstök áhersla á
gönguferðir og golf. Í
fyrra lögðu þúsundir
manna leið sína á
Ferðatorgið til að
kynna sér framboð í
ferðaþjónustu. Í ár
vonumst við til að enn
fleiri sjái sér fært að
heimsækja Ferðatorg-
ið til að ræða við
ferðaráðgjafa frá öll-
um landshlutum um
áhugaverða og
skemmtilega ferða- og afþreying-
armöguleika innanlands í sumar.
Ljóst er að afar góðar viðtökur
og mikill árangur af Ferðatorginu
hefur sýnt og sannað að þessi ár-
legi viðburður Ferðamálasamtaka
Íslands er kominn til að vera.
Sjáumst á Ferðatorginu.
Makalaus árangur
Pétur Rafnsson skrifar
um Ferðatorg 2004
Pétur Rafnsson
’Í fyrra lögðuþúsundir manna
leið sína á
Ferðatorgið til
að kynna sér
framboð í ferða-
þjónustu.‘
Höfundur er formaður
Ferðamálasamtaka Íslands.
HÓPUR þingmanna þriggja
flokka vill að lagður verði vegur
frá Norðurárdal í Skagafirði um
Stórasand til Húsafells í Borg-
arfirði. Um væri að ræða fyrri
áfanga hugmyndar
um styttingu leið-
arinnar milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur um
42 km en seinni
áfanginn lægi áfram
frá Húsafelli um
Kaldadal til Reykja-
víkur og stytti leiðina
um 40 km. Verði
þessar hugmyndir að
veruleika myndi leiðin
milli Akureyrar og
Reykjavíkur styttast
um 82 km, sem næmi
um einnar klukku-
stundar akstri. Munar um minna.
Hugmyndin er góðra gjalda verð
vegna þeirrar hagræðingar sem af
hlytist við vöru- og fólksflutninga
milli þessara tveggja stærstu þétt-
býliskjarna landsins. Þá má gera
ráð fyrir að enn fleiri kysu að aka
milli landshlutanna í stað þess að
fljúga og myndi Norðurvegur því
stuðla enn frekar að brottflutningi
Reykjavíkurflugvallar úr Vatns-
mýri, sem reyndar gerist fyrr eða
síðar.
Kollvarpar núverandi
hugmyndum
Hins vegar kollvarpar Norð-
urvegur öllum öðrum hugmyndum
sem þegar eru komnar á rekspöl
um víðtæka uppbygg-
ingu og endur-
skipulagningu þjóð-
vegakerfisins milli
landshlutanna. Þær
áætlanir eru óhjá-
kvæmilegar og yrði
Norðurvegur því
hrein viðbót við nú-
verandi vegakerfi. Það
er alveg ljóst hvað
sem líður hugmyndum
um Norðurveg að ekki
verður komist hjá
uppbyggingu stór-
hættulegs núverandi
þjóðvegar 1 allt frá Borgarnesi til
Brúar í Hrútafirði. Sá vegur mun
hvort sem verður af Norðurvegi
eða ekki þjóna stórum hluta Borg-
firðinga og Vestfirðinga, Stranda-
mönnum og Vestur-Húnvetn-
ingum, svo sem á Hvammstanga,
Blönduósi og Skagaströnd. Hjá
þessum vegaframkvæmdum verður
ekki komist. Sé sú staðreynd höfð
í huga er eðlilegast að hugsa málið
í framhaldi af henni og taka til við
næsta áfanga leiðarinnar norður,
sem brýnust er, sem væri leiðin
frá Blönduósi um Þverárfjall (um
Norðurárdal og Laxárdal) til Sauð-
árkróks og áfram um Hegranes og
síðan jarðgöng úr Hjaltadal undir
Hjaltadalsheiði til Hörgárdals,
þaðan sem ekið yrði til Akureyrar.
Víðtæk sátt um
núverandi hugmyndir
Ég er sannfærður um að víðtæk
sátt ríkir í þjóðfélaginu um að
haldið verði við núverandi tillögur
um stórtækar lagfæringar á núver-
andi leið til Akureyrar. Nú þegar
er vegurinn um Þverárfjall (hvar
sem það fjall nú er!) orðinn býsna
góður og alger himnasending fyrir
íbúa Sauðárkróks því hann styttir
leiðina milli Blönduóss og Sauð-
árkróks um 26 km samkvæmt
mælingum Vegagerðarinnar. Það
svarar til um hálftíma aksturs mið-
að við leiðina um Langadal og
Varmahlíð. Ég er jafnframt þeirr-
ar skoðunar að landsmenn hafi
beðið allt of lengi eftir endurbótum
á þjóðveginum um Borgarfjörð til
Hrútafjarðar. Það er löngu tíma-
bært að þar verði hafist handa
strax og án allra bráðabirgðalag-
færinga. Þessi leið krefst stór-
tækra aðgerða með beinum og
breiðum vegi. Þær munu stuðla að
mun hagkvæmari vöru- og fólks-
flutningum en nú er og auk þess,
sem ekki er minnst um vert, draga
stórlega úr slysahættu.
Styrkir núverandi
þéttbýliskjarna
Með því að halda sig í meg-
inatriðum við núverandi leið getum
við landsmenn hlíft áfram fáfarnari
fjallaleiðum og náttúruparadísum
og átt þær áfram sem slíkar.
Landsmenn hljóta að setja spurn-
ingarmerki við skynsemi þess að
flytja þjóðveginn upp í Húsafell og
Hallmundarhraun, að ekki sé talað
um vatnasvæði Arnarvatnsheiðar.
Síðast en ekki síst verða helstu
þéttbýliskjarnar að fá að styrkjast
í stað þess að veikjast enn meir en
nú er.
Hlífum náttúruparadísum
Á sama hátt og við eigum, eins og
kostur er, að hlífa helstu nátt-
úruparadísum okkar við upp-
byggðum beinum og malbikuðum
vegum, hvort sem er Húsafelli,
Arnarvatnsheiði og að ekki sé
minnst á Þórsmörk, ættu lands-
menn að sættast á skynsamari
vegtengingu milli Siglufjarðar og
höfuðstaðar Norðurlands en þá að
fara um Héðinsfjörð. Í því tilviki
hlýtur Fljótaleiðin að verða ofan á.
Sú leið mun einnig og ekki síður
stórbæta samgöngur Siglfirðinga
þar eð hin varasama leið hjá
Sauðanesi um Strákagöng leggst
af sem aðalleið.
Að lokum
Þegar línur eru dregnar á korti
sem sýna leiðina milli tveggja
stærstu þéttbýliskjarna landsins,
Reykjavíkur og Akureyrar, miðað
við núverandi áætlanir sést að
unnt er að stytta hana umtalsvert
með því einu að draga beint strik á
milli. Þannig er Norðurleiðin hugs-
uð í grófum dráttum. Þrátt fyrir
kosti hennar, sem áður var minnst
á og flutningsmenn þingsályktun-
artillögunnar hafa gert góða grein
fyrir, eru ókostir hennar að mínu
mati miklu fleiri en kostir hennar.
Norðurvegur yrði hrein viðbót
Bolli Valgarðsson
skrifar um samgöngur ’Landsmenn hljóta aðsetja spurningarmerki
við skynsemi þess að
flytja þjóðveginn upp í
Húsafell og Hallmund-
arhraun, að ekki sé tal-
að um vatnasvæði Arn-
arvatnsheiðar.‘
Bolli Valgarðsson
Höfundur er áhugamaður um
greiðar samgöngur um landið.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Fréttasíminn
904 1100