Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 56

Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 56
ÍÞRÓTTIR 56 FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Opna Top-flite Etonic mótið laugardaginn 8. maí Mjög góð verðlaun fyrir sæti 1-3 án forgjafar sæti 1-3 m. forgjöf Nándarverðl. á 3. og 16. braut Höggleikur með og án forgjafar. Hámarksforgjöf karlar 24, konur 28. Ræst út frá kl. 9:00-14:00 Skráning á www.golf.is og í síma 421 4100 Keppnisgjald kr. 2.500 Austurbakki hf. Punktakeppni og verðlaun fyrir besta skor. Nándarverðlaun á par 3 br. Skráning í síma 481 2363 eða á golf.is Pakkatilboð: 5.500 kr. Innifalið mótsgjald og flug frá og til Bakka, sími 481 3255. OPNA COKE COLA mótið í Eyjum 8. maí ÁRNI Gautur Arason segir óvíst hvað taki við hjá sér eftir leiktíðina, en landsliðsmarkvörðurinn er samningsbundinn Manchester City út leiktíðina. „Það er ómögulegt að segja til um hvað ég geri en ég hef ekkert talað við Manchester City um framhaldið. Hér hefur öll orka stjórnarmanna og hjá þeim sem að liðinu standa farið í baráttuna um að halda liðinu í úrvalsdeildinni og nú, þegar það hefur tekist, fara hlutirnir væntanlega að skýrast. Ég reikna með að fá að vita innan mjög skamms tíma hvort mér verður boðinn áframhaldandi samningur en svo er umboðsskrifstofa, sem annast mín mál, að skoða aðra möguleika,“ sagði Árni Gautur við Morgunblaðið. Ert þú búinn að gera það upp við þig hvort þú viljir vera áfram hjá City og keppa við David James bjóðist þér nýr samningur við liðið? „Nei í sjálfu sér ekki. Ég ætla að bíða og sjá til hvaða möguleikar verða í boði. Það kitlar mig eðlilega að spila meira heldur en ég hef gert og ef það kæmi tilboð frá þokka- lega spennandi liði, þar sem ég ætti meiri möguleika á að spila, myndi ég íhuga það mjög vandlega,“ segir Árni sem segist ekki vita til þess að David James sé á förum. Árni Gaut- ur hefur fengið að spreyta sig í tví- gang með aðalliði City á leiktíðinni en þeir leikir voru báðir í bikar- keppninni þar sem James var ekki gjaldgengur og stóð Árni Gautur sig mjög vel í þeim leikjum. Árni Gautur vill fá fleiri tækifæri í markinu STJÓRN Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur ekki tekið ákvörð- un um hver verður eftirmaður Kristins Friðrikssonar. Kári Marís- son, sem var aðstoðarþjálfari Krist- ins í vetur, sagði við Morgunblaðið í gær að allt væri opið í þessum efn- um. „Ýmsir menn hafa verið nefnd- ir til sögunnar,“ sagði Kári en hann hefur áhyggjur af leikmannamál- um félagsins. „Það stefnir í að níu leikmenn úr æfingahópi félagsins séu á förum á félaginu. Friðrik Hreinsson fer í nám á Laugarvatni, Óli Barðdal í nám í Danmörku, Gunnar Andrésson og Matthías Rúnarsson fara til náms í Reykja- vík. Bandaríkjamennirnir þrír eru horfnir á braut, Kristinn er farinn frá okkur. Að auki stefnir Axel Kárason á framhaldsnám í Banda- ríkjunum og það eru töluverðar lík- ur á því að það gangi upp hjá hon- um,“ sagði Kári. Spurður hvort hann sé líklegur til þess að taka að sér liðið sem þjálfari svaraði Kári: „Ég er alltaf til í að þjálfa. Og myndi ekki segja nei ef það yrði leitað til mín. En hinsvegar hef ég ekki hugmynd um hvað stjórn fé- lagsins hefur hugsað sér í þessum efnum. Fjölskylda Vals Ingimund- arsonar býr hér á Sauðárkróki og hann kemur eflaust til greina líkt og svo margir aðrir,“ sagði Kári. Allt útlit er fyrir að Svavar Birg- isson og Gunnlaugur Erlendsson verði áfram í herbúðum Tindastóls, en þeir komu til félagsins á sl. tíma- bili frá Þór í Þorlákshöfn. Gríðarleg fækkun í leik- mannahópi Tindastóls  BRASILÍSKI framherjinn Giov- ane Elber mun að öllum líkindum ganga til liðs við þýska liðið Herthu Berlín í sumar en Elber er á mála hjá Lyon í Frakklandi. Þýska blaðið Bild greindi frá því í gær að Elber væri í samningaviðræðum við Berl- ínarliðið.  ELBER, sem er 31 árs gamall, gerði garðinn frægan með Bayern München en hann ákvað að söðla um eftir síðustu leiktíð og spila með Lyon. Elber er samningsbundinn Lyon til júní 2005 en forráðamenn Herthu eiga í viðræðum við Lyon um kaup á leikmanninum. Hertha er í bullandi fallbaráttu en þegar þremur umferðum er ólokið er liðið í 15. sæti, aðeins stigi frá fallsæti.  FORSVARSMENN NBA-deildar- innar hafa ákveðið að sekta Dallas Mavericks um tæplega 2 millj. kr. vegna myndbands sem sýnt var á heimaleik liðsins gegn Sacramento Kings í fyrstu umferð úrslitakeppn- innar. Þar var gert grín að leikmönn- um Kings með þeim hætti að for- svarsmenn NBA töldu að væri ekki við hæfi.  STJÓRN enska knattspyrnuliðs- ins Leeds United hafa gengið frá því að Eddie Gray verði áfram við störf hjá félaginu en hinsvegar er ekki víst að hann verði áfram knattspyrnu- stjóri liðsins. Gray tók við sem knatt- spyrnustjóri liðsins í vetur eftir að Peter Reid var sagt upp störfum en Leeds féll úr úrvalsdeild um sl. helgi. David Richmond framkvæmdastjóri Leeds segir að Gray sé mikilvægur þáttur í framtíð félagsins en ekki verði tekin ákvörðun um hver verði næsti knattspyrnustjóri liðsins fyrr en eftir tvær vikur.  JESPER Grønkjær leikmaður Chelsea er undir smásjánni hjá Ajax um þessar mundir, en liðið leitar að snöggum útherja.  SKOSKI kylfingurinn Colin Montgomerie hefur ákveðið að taka þátt á breska meistaramótinu sem hefst í dag á Forest Arden vellinum. Montgomerie hefur átt í vandræðum með einkalíf sitt og um sl. helgi til- kynnti eiginkona hans, Eimear, að hún hefði sótt um skilnað en þau hafa verið gift í 14 ár. FÓLK Það vekur athygli að Miami erkomið í undanúrslit þrátt fyrir að hafa aðeins unnið 5 af 20 fyrstu leikjum tímabilsins og segir Lamar Odom, leikmaður liðsins, að menn þar á bæ geti verið stoltir af bar- áttuandanum í liðinu. „Það hefðu mörg NBA-lið farið að huga að næstu leiktíð eftir slíka byrjun, en við héldum áfram og æfðum gríð- arlega mikið. Þessi vinna er að skila sér í dag,“ sagði Odom. Mike Bibby fór á kostum Sacramento Kings kom nokkuð á óvart í nótt er liðið lagði Minnesota Timberwolves að velli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vestur- deildar í NBA-deildinni í körfu- knattleik, 104:98. Mike Bibby fór á kostum í liði Kings enn og aftur en hann skoraði 33 stig. Sam Cassell skoraði 40 stig fyrir heimamenn sem náðu bestum árangri allra liða á Vesturströndinni en Kevin Garnett, sem var útnefndur mikilvægasti leikmaður deildarinnar í fyrradag, náði aðeins að skora 16 stig í leikn- um. Flip Saunders, þjálfari Minne- sota, var argur í leikslok þar sem heimaleikjaréttur liðsins í þessari rimmu er farinn í vaskinn. „Við lögðum okkur ekki nógu mikið fram í þessum leik, og árangurinn úr 82 leikjum tímabilsins er nú runninn okkur úr greipum. En við þurfum að vinna leik í Sacramento og það mun- um við gera,“ sagði Saunders við CBS-sjónvarpsstöðina. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki leikur til úrslita á Vesturströndinni en í hinni undanúrslitarimmunni eigast við San Antonio Spurs og LA Lakers. Reuters Caron Butler fagnar sigri Miami Heat á New Orleans Hornets. Miami enn með í baráttunni MIAMI Heat tryggði sér sæti í undanúrslitum Austurstrandarinnar í NBA-deildinni í körfuknattleik en liðið vann New Orleans Hornets í oddaleik liðanna í fyrrinótt og einvígið þar með, 4:3. Lokatölur 85:77. Caron Butler skoraði 23 stig fyrir Heat en fyrrum aðalstjarna Heat, Steve Smith, var stigahæstur í liði Hornets en hann skoraði 25 stig. Heat mætir Indiana Pacers í undanúrslitum Austurstrandarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.