Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 57

Morgunblaðið - 06.05.2004, Page 57
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 57 RAGNAR Óskarsson, landsliðsmaður í hand- knattleik, er tognaður í öxl og hefur þar af leið- andi ekki spilað tvo síð- ustu leiki með franska liðinu Dunkerque. „Þetta gerðist í Evrópuleiknum á móti Skövde og ég er svona hægt og bítandi að ná mér. Ég reikna með að vera á skýrslu um næstu helgi en ég á eki von á að ég spila mikið í þeim leik. Ég stefni hins vegar á að vera kom- inn á fullt skrið þegar deildabikar- keppnin verður haldin hér í Dun- kerque, en hún hefst 20. maí,“ sagði Ragnar í samtali við Morgunblaðið en hann kveður Dunkerque í sumar eftir fjögurra ára dvöl hjá franska liðinu og gengur í raðir Skjern í Danmörku. Í deildabikarkeppninni sem Ragnar vísar til keppa átta efstu liðin í deildinni og verður dreg- ið um hvaða lið mætast en keppnin verður spiluð frá fimmtudegi til sunnu- dags og er með útsláttar- fyrirkomulagi. Dunkerque sigraði Ivry, 29:21, á þriðjudagkvöld og er í þriðja sæti þegar tveimur umferðum er ólokið. Montpellier hefur tryggt sér meist- aratitilinn en liðið hefur 67 stig, Créteil 60, Dunkerque 55, Ivry 53 og Chambéry 50. Ragnar Óskarsson er tognaður í öxl ANDERS Svensson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins South- ampton og sænska landsliðsins í knattspyrnu, gæti átt það á hættu að missa af Evrópumeistaramóti landsliða sem fram fer í Portúgal í sumar en skattayfirvöld í Svíþjóð hafa ákært leikmanninn um skatt- svik. Svensson lagði inn rúmlega 27 millj. kr. á reikning í Lúxemborg árið 2001 er hann var keyptur til enska liðsins frá Elfsborg í Svíþjóð, en hann gerði ekki grein fyrir eign sinni og nú vilja sænsk skattayfir- völd að Svensson greiði allt að 15 millj. kr. sekt vegna málsins. Að auki á hann yfir höfði sér fangelsis- vist, verði hann fundinn sekur. Svensson telur sig ekki hafa ver- ið með lögheimili í Svíþjóð á þess- um tíma en skattayfirvöld byggja mál sitt á leigusamningi sem Svens- son undirritaði vegna íbúðar sem er staðsett í Borås, en þar bjó bróðir leikmannsins um tíma. Í reglugerð sænska knattspyrnu- sambandsins er kveðið á um að leik- menn og forsvarsmenn sænska landsliðsins geti ekki tekið þátt í verkefnum liðsins hafi þeir verið ákærðir vegna brota á almennum lögum í Svíþjóð. Svensson á eftir að skýra mál sitt fyrir sænska knattspyrnusamband- inu sem hefur ekki tekið ákvörðun um framhaldið. Leikmaðurinn seg- ir við Aftonbladet í gær að hann hafi ekki áhyggjur af framhaldinu og að málið sé byggt á misskilningi skattayfirvalda í Svíþjóð. „Ég verð með á EM í Portúgal,“ var það eina sem að Svensson lét hafa eftir sér í sænskum fjölmiðlum í gær. Svensson í vandræð- um með skattinn  BANDARÍSKI kúluvarparinn, Kevin Toth, hefur verið úrskurðaður í tveggja ára keppnisbann vegna notkunar á lyfjum. Toth reyndist hafa notað nýja steralyfið THG, en það hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarna mánuði þar sem ekki var hægt að rekja notkun þess með venjulegu lyfjaeftirliti.  TOTH er 36 ára gamall og hefur ákveðið að taka ekki þátt í fleiri mót- um og hefur þar með lokið ferli sín- um. Toth sem varð fjórði á síðasta heimsmeistaramóti, er þriðji íþrótta- maðurinn sem hefur verið úrskurð- aður í keppnisbann vegna THG.  KANADÍSKA dagblaðið, Toronto Sun, segir í frétt sinni að Julius Erv- ing fyrrum stjarna NBA-liðsins Philadelphia 76’ers hafi áhuga á að gerast framkvæmdastjóri liðsins. Eigendur liðins leita nú að manni í starfið sem getur rifið liðið upp úr þeim öldudal sem það hefur verið í undanfarin misseri.  MALIN Swedberg verður fyrsta konan sem lýsir knattspyrnuleikjum sænska landsliðsins á stórmóti í knattspyrnu í sjónvarpi. Hin 35 ára gamla lögreglukona lék á sínum tíma 78 A-landsleiki fyrir Svía og skoraði 10 mörk, en hún var í bronsliði Svía á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Kína árið 1998. Swedberg hefur starfað sem sérfræðingur um knatt- spyrnu hjá sænska ríkissjónvarpinu um skeið og hefur hún vakið mikla athygli í heimalandi sínu.  SÆNSKI handknattleiksmaður- inn Pierre Thorsson flytur til Sví- þjóðar í sumar eftir að hafa leikið með þýskum og ítölskum félagslið- um í meira en áratug. Hann er nú á mála hjá Flensburg og lýkur leiktíð- inni með væntanlegum þýskum meisturum. Thorsson, sem er 38 ára og hætti að leika með sænska lands- liðinu fyrir fjórum árum, hefur gert samning við nýliða sænsku úrvals- deildarinnar, Hästö IF, um að leika með þeim á næsta vetri.  LEE Bowyer verður í leikmanna- hópi Newcastle í kvöld þegar það leikur síðari leik sinn við Marseille í undanúrslitum UEFA-keppninnar í knattspyrnu. Bowyer hefur átt við meiðsli að stríða en fékk í gær grænt ljós frá sjúkraliði Newcastle um að geta verið með.  BOWYER hefur ekki spilað Evr- ópuleik síðan í desember 2002 eða frá því hann var úrskurðaður í sex leikja bann vegna hrottalegs brots í Evrópuleik með Leeds. Craig Bell- amy, Kieron Dyer, Andy Griffin og Jonathan Woodgate eru allir meidd- ir og verða ekki með í kvöld og greip Sir Bobby Robson, stjóri Newcastle, til þess ráðs að kalla á Steve Cald- well sem hefur verið í láni hjá Leeds. Fyrri leik Newcastle og Marseille lyktaði með markalausu jafntefli. FÓLK Í hópnum eru Anja Ríkey Jakobs-dóttir, Hjörtur Már Reynisson, Íris Edda Heimisdóttir, Jakob Jó- hann Sveinsson, Kol- brún Ýr Kristjáns- dóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Örn Arnarson auk þess að Svanhvít Jóhannsdóttir verður dómari á mótinu og Guð- mundur Harðarson situr í tækni- nefnd. Skemmst er að minnast þegar Kolbrún Ýr og Ragnheiður slógu hver í kapp við aðra met í skriðsundi. „Ég held að ég hafi aldrei verið betur undirbúin,“ sagði Kolbrún Ýr á blaðamannafundinum í gær. „Ég hef hvílt að undanförnu og stefni á að ná fram mínu besta í Madrid og síðan aftur á Ólympíuleik- um. Ég fer með klærnar klárar og tilbúin til að takast á við verkefnið. Það er mjög gaman og mikil spenna í kringum þetta mót. Auðvitað er ég stressuð, er það alltaf, jafnvel þótt það sé lítið sundmót á Skaganum enda eitthvað að ef svo er ekki,“ sagði Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir. Karlarnir munu ekki láta sitt eftir liggja og Hjörtur Már Reynisson gaf tóninn um síðustu helgi þegar hann sló 11 ára gamalt met í 100 metra flugsundi. Minna hefur farið fyrir Erni Arnarsyni, hann hefur átt í meiðslum en er að komast í gagn. „Ég er mjög spenntur fyrir að kom- ast á mótið því ég hef keppt mjög lít- ið á þessu tímabili. Mér tókst að rústa á mér öxlunum og gat ekkert synt í tæpa fjóra mánuði,“ sagði Örn og keppnisandinn er enn til staðar. „Ég er að verða góður núna og gam- an að sjá hvort ég geti ekki strítt þessum tröllum, sem eru að berjast um verðlaunasæti. Tímar á æfingum segja að ég sé í lagi en mestur hluti íþrótta snýst um rétt hugarfar. Mér var sagt að ef maður er nógu þver og langar nógu mikið er allt hægt.“ Morgunblaðið/Stefán Sundfólkið, sem heldur á Evrópumótið í Madríd, ásamt fulltrúum Visa, sem skrifaði undir styrktarsamning í gær. Fyrir framan sitja Steindór Gunnarsson þjálfari, Jónína Ingvadóttir og Leifur Steinn Elísson frá Visa og Óskar Guðbrandsson frá Sundsam- bandinu. Fyrir aftan eru Þuríður Einarsdóttir þjálfari, Hlín Ástþórsdóttir fararstjóri, Héðinn Jónasson sjúkraþjálfari, Hjörtur Már Reynisson, Örn Arnarson, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir og Írís Edda Heimisdóttir. Fjarverandi voru Jakob Jóhann Sveinsson, Anja Ríkey Jakobsdóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir. Sjö sundmenn á EM í Madríd SJÖ sundmenn halda í næstu viku til Madrid á Spáni þar sem fram fer Evrópumót í 50 metra laug. Mestur hluti hópsins mun einnig taka þátt í Ólympíuleikunum í ágúst og ætlar að láta til sín taka í Madrid áður en hvíld og lokaundirbúningur hefst fyrir Ólympíuleika. „Fyrsta krafa er að bæta sig og sjáum svo til en ef fólk fer að bæta sig er von á góðu,“ sagði Steindór Gunnarsson þjálfari þegar liðið var kynnt í gær. „Þetta er mjög sterkt lið og það má búast við nýjum Íslandsmetum frá flestum ef ekki öllum í liðinu. Hópurinn er vel undirbúinn og hefur síðustu mánuði verið að setja met.“ Stefán Stefánsson skrifar Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Anja Ríkey Jakobsdóttir Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Ragnheiður Ragnarsdóttir Morgunblaðið/Sverrir Jakob Jóhann Sveinsson Ragnar  Anja Ríkey Jakobsdóttir, SH, keppir í þremur greinum; 50, 100 og 200 m baksundi.  Hjörtur Már Reynisson, KR, keppir í tveimur greinum; 50 og 100 m flugsundi.  Íris Edda Heimisdóttir, ÍRB, keppir í þremur greinum; 50, 100 og 200 m bringu- sundi.  Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi, keppir í tveimur greinum; 100 og 200 m bringusundi.  Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, keppir í fjórum greinum; 50 og 100 m flugsundi, 50 og 100 m skriðsundi.  Ragnheiður Ragnarsdóttir, SH, keppir í tveimur greinum; 50 og 100 m skriðsundi.  Örn Arnarson, ÍRB, keppir í fjórum grein- um; 50, 100, 200 m baksundi, 100 m skrið- sundi. Keppa í 20 greinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.