Morgunblaðið - 06.05.2004, Síða 59
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 2004 59
CARLOS Alberto Parreira, lands-
liðsþjálfari Brasilíu, mætir með alla
sína sterkustu leikmenn til Parísar
til að taka í „leik ársins“ eins og
hann kallar 100 ára afmælisleik
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA, sem fer fram í París 20 maí.
Þá mætast heimsmeistarar Brasilíu
heimsmeisturum Frakka 1998.
„Þetta verður leikur ársins, þar
sem menn geta borið saman leik-
skipulag tveggja frábærra liða,“
segir Parreira, en leikurinn verður
smásýnishorn fyrir viðureign Bras-
ilíu og Argentínu í undankeppni
HM, sem fer fram í Ríó tveimur vik-
um seinna. Eftir leikinn í París
halda Brasilíumenn til Barcelona,
þar sem þeir mæta úrvalsliði Kata-
lóníu á Nou Camp 25. maí.
Landsliðshópur Brasilíu:
Markverðir: AC Dida (AC Milan)
og Marcos (Palmeiras).
Varnarmenn: Cafu (AC Milan),
Roberto Carlos (Real Madrid), Jun-
ior (Siena), Belletti (Villareal), Lu-
cio (Leverkusen), Roque Junior
(Siena), Juan (Leverkusen), Edmil-
son (Lyon) og Luisao (Benfica).
Miðjumenn: Ze Roberto (Bayern
München), Juninho Pernambucano
(Lyon), Kaka (AC Milan), Julio
Baptista (Sevilla), Alex (Cruzeiro),
Edu (Arsenal), Felipe (Flamengo),
Kleberson (Manchester United) og
Gilberto Silva (Arsenal).
Sóknarmenn Ronaldo (Real
Madrid), Luis Fabiano (Sao Paulo),
Adriano (Inter Mílanó) og Ronald-
inho (Barcelona).
Öflugir Brasilíumenn í
afmælisleikinn í París
ALFREÐ Finnsson tekur við
starfi Aðalsteins Eyjólfssonar
sem þjálfari kvennaliðs ÍBV í
handknattleik fyrir næstu
leiktíð en Aðalsteinn kveður
Eyjaliðið eftir leiktíðina og
tekur við þjálfun þýska liðsins
Weiberg.
Alfreð þjálfaði kvennalið
Gróttu/KR á leiktíðinni og þá
varð unglingaflokkur félags-
ins Íslandsmeistari undir hans
stjórn. Segja má að ÍBV fái tvo
fyrir einn með tilkomu Alfreðs
því eiginkona hans, Eva Björk
Hlöðversdóttir sem leikið hef-
ur með liði Gróttu/KR undan-
farin ár, kemur til með að
spila með ÍBV undir stjórn
eiginmanns síns á næstu leik-
tíð.
Alfreð og
Eva Björk
til ÍBV
AUÐUN Helgason lék allan leikinn
með Landskrona sem vann 2. deildar
liðið Rynninge, 2:1, á útivelli í sænsku
bikarkeppninni í knattspyrnu í gær.
Þetta var fyrsti heili leikur Auðuns á
árinu en hann missti alveg af undir-
búningstímabilinu vegna meiðsla.
PÉTUR Hafliði Marteinsson lék
ekki með Hammarby vegna meiðsla
þegar liðið vann Sandviken, 3:1, á úti-
velli í bikarkeppninni. Guðmundur
Viðar Mete var heldur ekki með
Norrköping af sömu ástæðu en lið
hans vann Spårvägen, 3:0.
HELGI Kolviðsson og félagar í
Kärnten töpuðu fyrir Rapid Vín, 3:2,
í austurrísku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu, eftir að hafa náð forystunni
tvívegis. Helgi fór af velli á 60. mín-
útu. Staða Kärnten versnaði enn því
liðið er neðst, fimm stigum á eftir
næsta liði, þegar þremur umferðum
er ólokið.
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson,
knattspyrnumaður frá Vestmanna-
eyjum, fær góða dóma fyrir frammi-
stöðu sína með varaliði AGF gegn
Midtjylland í fyrradag. Eins og fram
kom í blaðinu í gær skoraði hann tvö
mörk en AGF tapaði, 4:3. „Þorvalds-
son var hættulegur, sýndi góðan leik-
skilning og náði góðu sambandi við
nýja samherja. En auðvitað er of
snemmt fyrir þjálfara AGF að meta
hann eftir aðeins einn leik,“ segir í
umsögn um leikinn á vef félagsins.
HERMANN Hreiðarsson og fé-
lagar í Charlton eiga ágæta mögu-
leika á að komast í UEFA-bikarinn í
knattspyrnu í sumar, enda þótt þeir
næðu ekki tilskildu sæti í ensku úr-
valsdeildinni. Charlton er sem stend-
ur efst í háttvísimati ensku liðanna,
sem ekki eru örugg með Evrópusæti,
en England hefur undanfarin tvö ár
verið efst á Evrópulistanum í hátt-
vísimati UEFA og fengið fyrir vikið
aukasæti í UEFA-bikarnum.
SANDEFJORD sigraði Haslum,
30:29, í öðrum úrslitaleik liðanna um
norska meistaratitilinn í handknatt-
leik í gær. Liðin eru jöfn, 1:1, og
Theodór Hjalti Valsson og félagar í
Haslum verða á heimavelli í oddaleik
liðanna um titilinn á sunnudaginn
kemur.
FRANSESCO Totti, fyrirliði
Roma, krefst þess að félagið kaupi
fjóra sterka leikmenn fyrir næstu
leiktíð. Ef ekki þá segist hann vilja
yfirgefa liðið en ekki til liðs á Eng-
landi. Totti hefur leikið allan sinn fer-
il með Roma en hann útilokar ekki að
spila fyrir annað félagi á Ítalíu verði
félagið ekki við þeirri beiðni hans að
styrkja liðið.
TOTTI segir við ítalska blaðið
Gazzetta dello Sport að hann hafi
engan áhuga á að spila á Englandi og
eini staðurinn sem hann getur hugs-
að sér að spila á fyrir utan Ítalíu er á
Spáni og það með Real Madrid.
FÓLK
Það hefðu sjálfsagt ekki margirspáð því þegar flautað var til
leiks í Meistaradeildinni í haust að
það yrðu Mónakó og Porto sem lékju
til úrslita. Sú er engu að síður raunin
og miðað við hvernig þessi lið hafa
leikið í deildinni eiga þau fyllilega
skilið að mætast í úrslitaleiknum.
Liðsheild þeirra er geysilega sterk
og á henni eru þau komin þangað
sem þau eru.
Fyrri hálfleikur var eldfjörugur,
heimamenn mættu gríðarlega
grimmir til leiks og ákveðnir í að
komast áfram en til þess urðu þeir að
skora þar sem Mónakó vann fyrri
leikinn í Frakklandi 3:1. Fernando
Morientes minnti leikmenn Chelsea
snemma leiks á að þrátt fyrir að þeir
ætluðu sér að sækja yrðu þeir að
fara að öllu með gát því hann átti
flott skot sem hafnaði í stönginni hjá
Chelsea. En heimamenn héldu
áfram að sækja og þeir fengu fullt af
færum. Eiður Smári átti fínan skalla
sem small í slánni hjá Mónakó,
Frank Lampard fékk mjög gott færi
en Flavio Roma, markvörður
Mónakó, varði skotið meistaralega.
Sóknir Chelsea dundu á vörn
Mónakó og eitthvað hlaut undan að
láta. Á 21. mínútu skoraði Daninn
Jesper Grönkjær glæsilegt mark.
Fékk boltann utan við hægra víta-
teigshorn Mónakó, leit upp og virtist
ætla að gefa fyrir á stöngina fjær en
boltinn sigldi með snúningi efst í
markhornið.
Chelsea hélt áfram að sækja og
annað mark lá í loftinu. Áður en að
því kom minnti Morientes á sig enn
og aftur, komst í mjög gott færi en
skotið fór sentimetra framhjá stöng
Chelsea. Annað mark heimamanna
kom á 44. mínútu þegar Eiður Smári
fékk boltann á vítateigslínu frá Mar-
io Melchiot. Hann renndi boltanum
laglega inn fyrir vörn Mónakó á
Frank Lampard sem skoraði.
Nú var staðan orðin 3:3 í heildina
og Chelsea áfram á marki gerðu á
útivelli. En gestirnir neituðu að gef-
ast upp og nokkrum sekúndum áður
en dómarinn flautaði til leikhlés, en
hann bætti við tveimur mínútum
vegna tafa, minnkuðu þeir muninn.
Morientes átti fallegan skalla að
marki, boltinn lenti í stönginni. Þar
studdi Hugo Ibarra sig og boltinn fór
í hann og inn. Engin rangstaða, eng-
in hönd eins og Carlo Cucicini, mark-
vörður Chelsea, vildi.
Það voru því tiltölulega ánægðir
gestir sem gengu til búningsher-
bergja í leikhléinu. Búnir að leika
ágætlega þó svo leikmenn Chelsea
tættu vörn liðsins sundur og saman
hvað eftir annað. En staðan var 2:1
þannig að Chelsea varð að skora eitt
mark til viðbótar til að tryggja fram-
lengingu. Alls ekki fjarlægur mögu-
leiki miðað við gang mála fram að
hléi.
Heimamenn byrjuðu af sama
krafti í síðari hálfleiknum en inn vildi
boltinn ekki. Gestirnir komu honum
hins vegar í netið á 60. mínútu og þar
var Morientes á ferðinni. Þar með
var ljóst að Chelsea þurfti að skora
þrjú mörk til að komast áfram og
leikmenn virtust telja það óhugsandi
og gáfust hreinlega upp. Leikurinn
gjörbreyttist við þetta þar sem leik-
menn Chelsea hreinlega höfðu enga
trú á að þeir gætu unnið upp þennan
mun.
„Í stórleikjum geta menn átt von á
að sjá frábæra leikmenn. Morientes
er slíkur leikmaður. Hann er frábær
leikmaður, sá besti í mínu liði,“ sagði
Didier Deschamps, þjálfari Mónakó,
eftir leikinn. Spurður hvort hann
hefði séð þetta fyrir þegar keppnin
hófst fyrir átta mánuðum sagði
hann: „Það var svo fjarlægt mér að
við gætum orðið í þessari stöðu að ég
hugsaði ekki einu sinni út í það. En
nú eigum við helmingsmöguleika á
að verða Evrópumeistarar. Það er
frábært.“
Reuters
Didier Deschamps, þjálfari Mónakó, hughreystir Eið Smára Guðjohnsen, leikmann Chelsea.
Chelsea fór illa
að ráði sínu
MÓNAKÓ tryggði sér í gær sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu
þegar liðið gerði 2:2-jafntefli vð Chelsea í síðari leik liðanna sem
fram fór í Lundúnum. Mónakó kemst því samtals áfram 5:3 og mæt-
ir Porto í úrslitaleik miðvikudaginn 26. maí. Chelsea komst í 2:0 og
jafnaði þar með metin 3:3, en gestirnir skoruðu síðan tvö mörk og
tryggðu sér sæti í úrslitum.
KNATTSPYRNUDEILD
Keflavíkur fékk í gær tilboð
frá svissneska úrvalsdeildar-
félaginu Zürich í varnarmann-
inn Harald Frey Guðmunds-
son. Hann hefur dvalið hjá
félaginu við æfingar um skeið
en dvöl hans þar var fram-
lengd í byrjun vikunnar.
Rúnar Arnarson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavík-
ur, staðfesti við Morgunblaðið
í gær að tilboðið hefði borist
en stjórn deildarinnar ætti eft-
ir að fara yfir það áður en tek-
in yrði afstaða til þess hvort
boðinu yrði tekið eða ekki.
Zürich er í sjötta sæti sviss-
nesku úrvalsdeildarinnar þeg-
ar fjórum umferðum er ólokið.
Zürich
bauð í
Harald
SINISA Kekic, leikmaðurinn
öflugi hjá úrvalsdeildarliði
Grindvíkinga í knattspyrnu,
varð fyrir því óláni að nef-
brotna í æfingaleik með
Grindvíkingum gegn Breiða-
bliki í fyrrakvöld. Leikurinn
endaði 1:1. Kekic fór í „rétt-
ingu“ í gær og hittir háls- nef
og eyrnalækni í dag og þá ætti
að skýrast hvort hann fái
grænt ljós á að spila fyrsta leik
Grindvíkinga á Íslandsmótinu
sem er á móti ÍBV sunnudag-
inn 16. maí.
Kekic er
nefbrotinn