Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 16

Morgunblaðið - 12.05.2004, Page 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ FULLTRÚAR Evrópuskrifstofu Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, komu saman í Reykjavík í vikunni á svonefndum Framtíðarfundi og var þar rætt um aðferðir til að tryggja hratt upplýsingastreymi, t.d. vegna yfirvofandi farsóttar og hvernig út- skýra beri hættumat fyrir almenningi og fjöl- miðlum. Þess má geta að háttsettir embætt- ismenn í heilbrigðismálum Frakka urðu að segja af sér vegna rangra viðbragða þegar í ljós kom að þúsundir aldraðra höfðu látist af völdum hitabylgjunnar sl. sumar. Upplýs- ingar um dauðsföllin bárust of seint innan kerfisins en einnig til almennings. Meðal þátttakenda á fundinum voru Marc Danzon, yfirmaður skrifstofu WHO í Evrópu og Davíð Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heil- brigðisráðuneytinu. Davíð var í fyrra kjörinn í stjórn WHO. Sir Liam Donaldson, land- læknir Bretlands, flutti erindi á fundinum í gær. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að bresk stjórnvöld hefðu þurft að takast í skyndingu á við kúariðu og mörg fleiri, erfið mál síðustu ár en hann tók við embætti 1998. Að vita ekki og segja það „Áður höfðum við tilhneigingu til að reyna að róa fólk með því að segja sem minnst,“ segir Donaldson. „En þetta er að breytast. Nú þurfa viðbrögðin að taka tillit til mun þró- aðra samfélags, við getum ekki lengur notað þá röksemd að upplýsingarnar sem við höfum séu of ógnvekjandi og því verði að sitja á þeim. Við eigum ekki að sýna slíka forræðis- hyggju og halda að neikvæðar upplýsingar muni valda fáti og skelfingu. Við þurfum að vera opnari og stundum verðum við að vera reiðubúin að segja: Við vitum það ekki. Það er ekki merki um veikleika heldur styrk að segja að við þurfum meiri upplýsingar til að geta leyst vanda með árangursríkum hætti.“ En er hægt að útrýma nýjum, hættulegum farsóttum á borð við HABL-lungnabólguna eins og gert var við bólusótt á sínum tíma? „Við vitum of lítið um sjúkdóminn til að geta fullyrt eitthvað um það en sennilega er það ekki hægt. Við vitum ekki einu sinni með vissu hvort hann kom úr rottum eða fuglum í Kína. Eina leiðin til að útrýma smitsjúk- dómum er að bólusetja. Ég held að við- brögðin við HABL sýni vel vandann sem stjórnvöld eiga við að stríða og hvernig rang- hugmyndir meðal almennings geta leitt til vafasamra aðgerða. Þess var krafist að flug- farþegar yrðu skimaðir, milljónir ferða- manna. Við sögðum hins vegar að rétt væri að einbeita sér að tilfellum um leið og þau kæmu upp, koma þá fólkinu á sjúkrahús og hjálpa því. En fjölmiðlar spurðu stöðugt: Af hverju er ekki skimað, af hverju setjið þið ekki upp vél- arnar sem taka myndir af ferðamönnum og mæla um leið líkamshitann eins og gert er í Hong Kong? Síðar var farið yfir árangurinn í Hong Kong og Kína og í ljós kom að skim- unin var gagnslítil. Sárafá, hugsanlega engin tilfelli voru greind með þessum aðferðum. Grundvöllur góðrar almannaheilsugæslu er alltaf að leggja beri áherslu á fullkomið eftirlit og eftirfylgni. (...) Þá geta jafnt ein- stakar þjóðir sem alþjóðasamfélagið fylgst með því sem er að gerast, séð hvernig smit berst og reynt að hindra frekari útbreiðslu.“ Donaldson segir að þessar ráðstafanir hafi virkað með ágætum í Evrópu sem skýri hve HABL-tilfellin voru þar fá. Pukur og skortur á eftirliti hafi ýtt undir útbreiðsluna í Austur- Asíu þar sem nær öll dauðsföllin urðu. En myndum við núna eiga auðveldara með að fást við mjög mannskæða flensu eins og spænsku veikina 1918? Og eiga eyþjóðir eins og Bretar og Íslendingar auðveldara með að takast á við slíkan vanda? „Ég held að óhjákvæmilegt sé að einhvern tíma munum við þurfa að takast á við hnatt- rænan flensuvanda af svipuðu tagi og spænska veikin var. Hún var óvenju skæð. Enginn veit samt hvort hún yrði jafnalvarleg ef hún kæmi upp núna. Þetta var fyrir tíma nýtískulegra spítala og súlfalyfja. Þótt slík lyf dugi ekki gegn sjálfri veirunni koma þau að gagni í baráttu gegn aukaverkunum eins og lungnabólgu og öðru sem fylgdi flensunni.“ Kapphlaup við tímann „Ljóst er samt að farsótt af þessu tagi yrði alvarlegt vandamál. Vandinn við flensufar- aldra er að ekki er hægt að hafa hemil á þeim með sóttkví, veikin berst svo hratt milli fólks um loftið, þegar það hnerrar eða hóstar. Réttu viðbrögðin yrðu að fylgjast vel með þróun sóttarinnar og reyna að búa til mót- efni. Helsti styrkur WHO er einmitt að þar eru bestu mótefnasérfræðingarnir. En þetta yrði vissulega kapphlaup við tímann. Um eyþjóðirnar, í stuttu máli þá er svarið nei. Flugið veldur því. HABL-tilfellið í Bret- landi var rakið til kaupsýslumanns sem hafði farið flugleiðis frá Hong Kong til níu landa áður en hann kom til Bretlands. Hinn flókni heimur alþjóðasamgangna og ferðalaga er orðinn þannig og Bretland er þungamiðja í því vegna Heathrow-vallarins. Og á Íslandi er flugvöllur sem margir fara um. Ég er smeykur um að eyþjóðir séu ekki betur staddar að þessu leyti lengur,“ segir sir Liam Donaldson. Rangt að sitja á upplýsingum af ótta við fát Morgunblaðið/Þorkell Sir Liam Donaldson, landlæknir Bretlands: Ný „spænsku veiki“-flensa óhjákvæmileg. Einhvern tíma mun á ný koma upp mannskæð far- sótt á borð við spænsku veikina en menn kunna nú betri ráð en 1918, segir sir Liam Donaldson, land- læknir Bretlands. Kristján Jónsson ræddi við hann. kjon@mbl.is ÍSRAELSKIR hermenn felldu alls sjö Palestínumenn í átökum í Gaza- borg í gær, en sex ísraelskir her- menn féllu þegar herskáir Palestínu- menn sprengdu í loft upp brynvagn sem þeir voru í. Frá byrjun uppreisnar Palestínu- manna sem nú stendur, í september 2000, hafa þeir aldrei fyrr fellt svo marga ísraelska hermenn í einu. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr- aels, kallaði ríkisstjórnina á neyðar- fund og hét því að ráðist yrði á herskáa Palestínumenn „hvar sem þeir kunna að leynast“. Hamas-samtök Palestínumanna lýstu sig ábyrg fyrir árásinni á bryn- vagninn, en önnur samtök, Al-Aqsa- herdeildirnar, sendu síðar frá sér til- kynningu þar sem þau kváðust hafa í fórum sínum líkamsleifar af ísraelsku hermönnunum og myndu ekki skila þeim nema að uppfylltum skilyrðum. Eftir að brynvagninn sprakk mátti sjá Palestínumenn fara um götur haldandi á lofti pörtum af líkum her- mannanna og hlutum úr braki bryn- drekans. „Ég tók járnstykki úr vagn- inum. Líkamsleifarnar voru dreifðar um allt, uppi á húsþökum og á göt- unni,“ sagði Mohammad Aza, 45 ára Palestínumaður, við AFP. „Við gleðj- umst. Þetta er liður í hefndum okkar vegna þess að þeir drápu leiðtoga okkar,“ bætti hann við, og skírskot- aði til vígs Ísraela á stofnanda Ham- as, Ahmed Yassin, í mars, og eftir- manni hans, Abdelaziz Rantissi. Reuters Palestínumenn hefja á loft hluta úr ísraelska brynvagninum sem sprengdur var í loft upp í Gazaborg í gær. Ísraelskur bryn- vagn sprengdur Gazaborg, Jerúsalem. AFP. SPÆNSKI herinn neitaði að verða við beiðni Bandaríkjamanna um að efna til meiriháttar hernaðaraðgerða gegn fylgismönnum sjítaklerksins Moqtada al-Sadrs í hinni helgu borg Najaf áður en þeir yfirgáfu Írak í síðasta mánuði. Þetta var haft eftir spænskum hershöfðingja í gær. „Umboð okkar felur ekki í sér að við efnum til árása heldur að við stuðlum að stöðugleika og uppbygg- ingu [í Írak], auk þess sem við erum ekki í stakk búnir til að ráðast í slíka stóraðgerð,“ sagði hershöfðinginn, Jose Enrique Ayala, að því er fram kom í spænskum dagblöðum. Ayala sagði að yfirmenn Banda- ríkjahers hefðu farið fram á það í apríl að spænsku hermennirnir 200, sem þá voru í Najaf, réðust gegn al- Sadr með það í huga að handtaka hann. Sagði Jose Bono, varnarmála- ráðherra Spánar, um þetta á mánu- dag að Spánn hefði „algerlega hafn- að að afhenda [Bandaríkjamönnum] tiltekinn trúarleiðtoga, dauðan eða lifandi, eins og við vorum beðnir um að gera á sínum tíma“. Enn eru nokkur hundruð spænsk- ir hermenn í Írak en þeirra verkefni er að flytja búnað spænsku hersveit- anna, sem þegar hafa yfirgefið land- ið, heim til Spánar. Sagði Bono að mögulega yrði hægt að afhenda Bandaríkjamönnum yfirráð í her- búðunum, sem Spánverjar réðu yfir suður af Bagdad, í lok þessarar viku. 13 fylgismenn al-Sadrs felldir Bandaríkjamenn greindu frá því í gær að þeir hefðu fellt þrettán liðs- menn vopnaðra sveita al-Sadrs ná- lægt borginni Kufa, sunnarlega í Írak. Harðir bardagar hafa geisað milli bandarískra hermanna og manna al-Sadrs undanfarna daga. Fjórir dóu einnig í gær í spreng- ingu í borginni Kirkuk í N-Írak og ráðist var á bílalest á þjóðveginum sem liggur frá jórdönsku landamær- unum til Bagdad. Þá féll einn Rússi og tveir aðrir voru teknir í gíslingu. Spánverjar neituðu að ráð- ast gegn al-Sadr Madríd, Bagdad. AFP. MYNDBAND, sem birt var á net- svæði á vegum herskárra íslamskra samtaka í gær, virtist sýna liðsmenn hóps, sem tengdur er hryðjuverka- samtökunum al-Qaeda, hálshöggva bandarískan gísl. Segja mennirnir á myndbandinu að um sé að ræða hefnd fyrir pyntingar sem íraskir fangar sættu af hálfu bandarískra hermanna og varða í fangelsum í Írak. Fimm menn með svartar grímur standa yfir manni sem bundinn er á höndum og fótum. Kynnir maðurinn sig sem Bandaríkjamann frá Phila- delphiu og segist heita Nick Berg. Lík Bergs fannst í Bagdad sl. laug- ardag. Eftir að maðurinn hefur lesið yf- irlýsinguna sést þegar hinir mennirn- ir hálshöggva hann með stórum hníf um leið og þeir hrópa Allahu Akbar! (Guð er mikill!) Þeir halda síðan á höfðinu fyrir framan myndavélina. Einn maðurinn les síðan yfirlýs- ingu þar sem segir, að þeir hafi boðið bandarískum stjórnvöldum að skipta á þessum gísl og nokkrum föngum sem haldið var í Abu Ghraib-fangels- inu og því hafi verið neitað. Aftaka á myndbandi Bagdad. AFP. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti ákvað í gær að setja bann við öll- um útflutningi bandarísks varnings til Sýrlands, nema á matvælum og lyfjum. Var þetta haft eftir embætt- ismönnum í þjónustu Bandaríkja- þings, sem ríkisstjórnin upplýsti um ákvörðunina fyrir opinbera birtingu hennar. Þessar viðskiptaþvinganir gegn Sýrlandi fylgja í kjölfar annarra þingunaraðgerða sem bandarísk stjórnvöld hafa gripið til gegn land- inu vegna langvarandi óánægju með að sýrlenzk stjórnvöld hafa sýnt lít- inn vilja í verki að stöðva straum manna yfir landamærin til Íraks sem þar taka þátt í skæruhernaði gegn bandaríska hernámsliðinu. Banna út- flutning til Sýrlands Washington. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.