Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 10.00 - 10.10 Setning Gu›n‡ Hildur Magnúsdóttir starfandi forma›ur jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar 10.10 - 10.30 Jafnrétti kynjanna og jafnræ›isreglan Helga Jónsdóttir borgarritari 10.30 - 10.50 Rannsóknin Minnihlutahópar, kynfer›i og jafnrétti Berglind Rós Magnúsdóttir, starfandi jafnréttisfulltrúi HÍ 10.50 - 11.10 Jafnréttisstarf Háskóla Íslands Hómfrí›ur Gar›arsdóttir lektor HÍ 11.10 - 11.20 Fyrirspurnir / umræ›ur 11.20 - 11.40 Tilskipanir ESB gegn mismunum Ragnhei›ur fiorsteinsdóttir lögfræ›ingur í utanríkisrá›uneyti 11.40 - 12.25 Minnihlutahópar og jafnrétti Arnflór Helgason framkvæmdastjóri ÖBÍ Hafdís Hannesdóttir kvennahópi ÖBÍ Anh-Dao Tran forma›ur Samtaka kvenna af erlendum uppruna Akeem Cujo Oppong, Alfljó›ahúsi Sara Dögg Jónsdóttir kynningarfulltrúi Samtakanna '78 Hrafnkell Tjörvi Stefánsson framkvæmdastjóri Samtakanna '78 12.25 - 12.35 Fyrirspurnir / umræ›ur 12.35 - 13.00 Hvernig fara flau a› í Rá›húsinu í Kaupmannahöfn? Hanna Ziadeh jafnréttisrá›gjafi innflytjenda hjá Kaupmannahafnarborg 13.00 - 13.20 Fyrirspurnir / umræ›ur 13.20 - 13.30 Samantekt og slit Fundarstjóri er Hildur Jónsdóttir jafnréttisrá›gjafi Reykjavíkurborgar A›gangseyrir er kr. 1.000, en innifali› í honum er morgunver›ur af hla›bor›i og kaffiveitingar. Fundurinn verður táknmálstúlkaður fyrir heyrnarlausa. Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar Dagskrá Minnihluta- hópar, kynfer›i og jafnrétti Morgunver›armálfling á Hótel Borg, laugardaginn 15. maí kl. 10-13.30 Hafnarfjörður | Íbúar Hafnarfjarð- ar munu þurfa að sækja þjónustu vinnumiðlunar til Reykjavíkur frá lokum júlí nk., þar sem til stendur að loka útibúi Vinnumiðlunar höfuð- borgarsvæðisins í Hafnarfirði, sem hefur verið í verslunarmiðstöðinni Firði. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði mótmælir lokuninni, og segir í ályktun frá ráðinu að sú ráð- stöfun sé hvorki hagkvæm né rétt- lætanleg, og því beri að hætta við hana. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, staðfestir að til standi að loka skrifstofunni, og segir það gert í hagræðingarskyni, en reiknað er með að spara um 3,5 millj- ónir króna á ári með þessari ráðstöf- un. Starfsfólk skrifstofunnar mun flytjast til Reykjavíkur, og verður því ekki sagt upp. Um 300 manns hafa notað skrifstofuna á mánuði til að sækja hefðbundna þjónustu. „Þessi skrifstofa hefur verið minna notuð en við vorum að vonast til, og við getum sparað umtalsverða fjármuni með því að leggja niður skrifstofuna. Þá þurfa þeir sem hafa notað þjónustuna þarna að koma á skrifstofuna á Engjateigi,“ segir Gissur. Gissur segir að vissulega verði um óhagræði að ræða fyrir þá Hafnfirð- inga sem nota þjónustuna, en bendir á að aðrir höfuðborgarbúar þurfi að fara á skrifstofu Vinnumiðlunarinn- ar í Engjateig, sama hvort þeir búi í Mosfellsbæ eða á Seltjarnarnesi. Skora á félagsmálaráðherra Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði hefur mótmælt lokun- inni, og segir ráðið í ályktun sinni að sú fullyrðing að með þessu sparist 3,5 milljónir standist ekki nánari skoðun. „Þá hafa stjórnendur Vinnumála- stofnunar alveg gleymt að greina frá því að með þessu er verið að flytja kostnað frá ríkinu yfir á atvinnulaust fólk, sem er með innan við 90 þúsund krónur í mánaðarlaun. Það er því al- veg óásættanlegt að atvinnulausu fólki í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaðahreppi sé gert að fara inn á Engjateig í Reykjavík til skráning- ar,“ segir í ályktuninni. Fulltrúaráðið skorar á félagsmála- ráðherra að beita sér fyrir afturköll- un á þeirri ákvörðun að loka skrif- stofunni í Hafnarfirði, og bendir á að í Hafnarfirði og nágrannasveitar- félögum búi yfir 32 þúsund manns, og það heyri undir lágmarksþjón- ustu að halda vinnumiðlunarskrif- stofunni opinni. Vinnumiðlun flutt til Reykjavíkur Segja kostnaði velt á atvinnulausa Gufunes | Tillaga að matsáætlun vegna landfyllinga við Gufunes í Reykjavík er nú í athugun Skipulagsstofnunar. Gert er ráð fyrir alls um 46 hektara landfyll- ingu í tveimur áföngum. Annars vegar er um að ræða 34 hekt- ara landfyllingu við vestanvert Gufunes og hins vegar 12 hektara fyllingu út frá norðanverðu Gufunesi út í Eiðsvík. Land- fyllingarnar eru ætlaðar undir blandaða byggð, en það er Reykjavíkurborg sem stendur að framkvæmdunum. Mat á um- hverfisáhrifum er unnið af Hönnun hf. Reiknað er með að ákvörðun um til- lögu að matsáætlun verði tilbúin í byrjun júní, en almenningur hefur tækifæri til að koma athugasemdum um tillöguna til Skipulagsstofnunar fram til 21. maí. Þegar matsáætlunin verður tilbúin hefst mat á umhverfisáhrifum, og gefst þá al- menningi og hagsmunaaðilum aftur tækifæri til að koma athugasemdum á framfæri. Samkvæmt matsáætluninni gæti matið verið tilbúið í október nk., en ef það mat verður kært má búast við úrskurði ráð- herra í byrjun árs 2005. Landfyllingar: Rætt er um tvær landfyll- ingar, aðra 34 ha við vestanvert Gufunesið og hina 12 ha við norðanvert nesið. Meta um- hverfisáhrif landfyllinga Hafnarfjörður | Nýju húsi á hluta Thorsplans í miðbæ Hafnarfjarðar og endurhönnun plansins er ætlað að styrkja miðbæinn, en torgið á að nýtast til almennrar útiveru jafnt sem menningarviðburða. Ellý Erlingsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður þjónustu- og þróun- arráðs, segir að Thorsplanið verði endurhannað frá grunni, og verði ráðist í framkvæmdir við planið eftir að byggingu hússins við Linn- etstíg, sem liggur að planinu, lýk- ur. Húsið verður á fjórum hæðum, á fyrstu hæðinni verður verslunar- og þjónustuhúsnæði, en á hinum hæðunum verður íbúðarhúsnæði. Nýbyggingin við Linnetstíg mun veita gott skjól fyrir ríkjandi hafátt á Thorsplaninu, en á móti kemur að hús munu umlykja torgið á þrjá vegu, sem eykur væntanlega skuggamynd- un á svæðinu, segir Ellý. Hún segir að rýmið fyrir fram- an nýja verslunarhúsnæðið muni tengjast torginu, og t.d. henta vel fyrir kaffihús, þannig að hægt sé að hafa borð og stóla ut- andyra á torginu. Hugmyndin er að opna planið meira út á Strandgötuna, en það hefur verið nokkuð lokað með stórum trjá- beðum sem skilja að Strandgöt- una og Thorsplanið. Grafið fyrir bílakjallara Nú er verið að grafa fyrir bíla- kjallara sem fyrirhugað er að hafa undir nýja húsinu við Linn- etstíg, og mun hann ná að ein- hverju leyti undir Thorsplanið, og því hefur orðið talsvert rask á túninu. Ekki verður hægt að byrja framkvæmdir við torgið sjálft fyrr en eftir að búið er að reisa húsið. Ellý segir þó að til standi að hafa jólaþorp á Thorsplani næstu jól, þrátt fyrir það rask sem orðið hefur. Ellý segir að ef að líkum lætur geti framkvæmdir við torgið sjálft hafist snemma sumars 2005, en vinna við hönnun end- anlegs útlits Thorsplans er nú að hefjast. Ellý segir erfitt að segja til um væntanlegt útlit torgsins svo snemma á hönnunarferlinu, en segir að torgið verði líklega hellulagt með einhverjum gróðri, en ekki grasivaxið eins og áður. Kostnaður við endurgerð Thorsplans er ekki ljós á þessari stundu. Morgunblaðið/Ásdís Niðurgrafið: Thorsplanið er sundurgrafið um þessar mundir þar sem verið er að leggja bílakjallara sem verður undir því að hluta.          () *            ", 4   = 7 &* '$        + ''  8 =7  6 7 Thorsplanið endurhannað Reykjavík | Sláttur hófst á fremur hefðbundnum tíma í ár, og var hafist handa við fyrsta slátt á mánudagsmorgun. Grasspretta hefur verið ágæt í vor, og eftir fyrsta slátt stendur til að bera áburð á umferð- areyjar og tún. Alls eru umferðareyjar slegnar á bilinu þrisvar til tíu sinnum á sumri, og fer fjöldi slátta eftir sprettu og því hversu snöggt grasið þarf að vera, segir Guðbjartur Sigfússon, yfirverkfræðingur hjá Gatna- málastofu. Hann segir erfitt að áætla hversu margir vinni við sláttinn á hverju sumri, en um 15 til 16 séu á dráttarvélum og um 300 ungmenni vinni í gróðri, þar af góður hluti í slætti með minni sláttuvélum og rakstri. Fyrsti sláttur sumarsins hafinn Morgunblaðið/Árni Torfason Kaupa kassagítar | Nýlega ákvað Kiw- anisklúbburinn Sólborg að láta ágóðann af skemmtikvöldi þeirra renna óskiptan til unglingastarfs Gamla bókasafnsins. Geir Bjarnason forstöðumaður Gamla bóka- safnsins tók við styrknum og þakkaði fyrir framtakið. Hann sagði að unga fólkið hefði rætt um hvernig ætti að verja styrknum og hefði orðið sammála um að kaupa kassagítar.   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.