Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.05.2004, Blaðsíða 50
ÍÞRÓTTIR 50 MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Valur – Haukar 23:29 Hlíðarendi, Reykjavík, annar úrslitaleikur karla, þriðjudaginn 11. maí 2004. Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 3:3, 6:3, 8:6, 9:10, 11:11, 13:11, 13:14, 14:14, 14:20, 18:24, 20:26, 23:26, 23:29. Mörk Vals: Brendan Þorvaldsson 6, Bald- vin Þorsteinsson 5/1, Markús Máni Mich- aelsson 4, Hjalti Pálmason 3, Ragnar Æg- isson 2, Heimir Örn Árnason 1, Hjalti Gylfason 1, Bjarki Sigurðsson 1/1. Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson 10, Halldór Ingólfsson 5/3, Þorkell Magnússon 3, Þórir Ólafsson 3, Andri Stefan 3, Vignir Svavarsson 2, Robertas Pauzuolis 2, Gísli Jón Þórisson 1. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifs- son, komust vel frá hlutverki sínu. Áhorfendur: Um 700, færri en á kvenna- leik Vals og ÍBV í fyrrakvöld.  Haukar hafa yfir, 2:0, og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á morgun. KNATTSPYRNA Frakkland Lens - Auxerre ..........................................1:3 Bordeaux - París SG .................................3:0 Staða efstu liða: Lyon 35 22 7 6 60:25 73 Mónakó 35 20 11 4 55:25 71 París SG 36 20 10 6 48:28 70 Auxerre 36 18 7 11 57:33 61 Sochaux 35 17 9 9 50:38 60 Nantes 35 16 8 11 44:32 56 Marseille 35 16 5 14 47:41 53 Bordeaux 36 13 11 12 39:37 50 Lens 36 14 8 14 32:44 50 Lille 35 13 7 15 38:38 46 Nice 35 10 15 10 38:36 45 Rennes 35 12 8 15 48:44 44 Bastia 35 9 12 14 33:45 39 Skotland Dundee United - Dunfermline .................3:2 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Austurdeild, undanúrslit: Miami - Indiana .................................... 94:87  Indiana er yfir, 2:1. Vesturdeild, undanúrslit: Sacramento - Minnesota.................. 113:114  Eftir framlengingu.  Minnesota er yfir, 2:1. SKOTFIMI Fyrsta landsmót Skotíþróttasambands Ís- lands í sumar í leirdúfnaskotfimi var haldið hjá Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar að Iða- völlum, sunnudaginn 9. maí. Einstaklingskeppni, skotið á 150 Ellert Aðalsteinsson, SÍH .......................137 Gunnar Gunnarsson, SFS .......................131 Örn Valdimarsson, SÍH...........................129 Sveitakeppni: SÍH .........................................með 333 dúfur Ellert Aðalsteinsson Örn Valdimarsson Sigurþór Jóhannesson SFS ........................................ með 307 dúfur Gunnar Gunnarsson Friðþór Sigfús Sigurmundsson Halldór Helgason SÍH ........................................ með 283 dúfur Kári Grétarsson Kristinn Rafnsson Stefán Örlygsson SIGLINGAR Keppni um Reykjavíkurbikarinn í kajak- róðri, laugardagur 8. maí. Karlar á trefjabátum, 10.5 km: Sveinbjörn Kristjánsson, Inuk.............58.28 Halldór Sveinbjörnsson, Inuk..............58.29 Sigurður Pétursson, See Wolf ..........1:07.56 Karlar á plastbátum 10.5 km: Mads Sircstedt, Seyak .......................1:07.04 Kári Þórsteinsson, Kodiak ................1:09.05 Grétar Marteinsson, Capella ............1:10.09 Konur 10.5 km: Fanney Pálsdóttir, Inuk ....................1:13.19 Elín Eiríksdóttir, Nord Kapp ...........1:15.03 Jónína Guðjónsdóttir, Quest .............1:26.00 Karlar 3.5 km: Gunnar Sæmundsson, Sardina ............21.55 Finnbogi Björnsson, See Wolf .............22.10 Hlöðver Pálsson, Esplore.....................22.20 Konur 3.5 km: Hildur Nilsen, Viking Lv......................24.24 Steinunn Sveinsdóttir, Quajaq.............26.20 DAGNÝ Skúladóttir, landsliðsmaður í handknattleik, íhugar nú tilboð frá þýska 1. deildarliðinu TuS Weibern, sem Aðalsteinn Eyj- ólfsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara ÍBV tekur við þjálfun á í sumar. Dagný lék á síðustu leiktíð með TV Lützellinden í þýsku 1. deildinni en það er gjaldþrota og leikur í 3. deild á næsta keppnis- tímabili af þeim sökum. Forráðamenn TV Lützellinden hafa einnig ekki gefið upp alla von um að halda Dagnýju, sem þótti standa sig afar vel með liðinu á liðnum vetri. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vill Dagný ekki gera nema eins árs samning við TuS Weibern þar sem sambýlismaður hennar Gunnar Berg Viktorsson á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Wetzlar. TuS Weibern hefur einnig gert þeim Jónu Mar- gréti Ragnarsdóttur og Sólveigu Láru Kjærnested tilboð og því ekki útilokað að a.m.k. fjórir Íslendingar verði í herbúðum liðsins á næsta keppnistímabili. TuS Weibern var nýliði þýsku 1. deildinni á nýliðnum vetri og hafnaði í 10. sæti. Ekki er loku fyrir það skotið að Dagný verði áfram í herbúðum TV Lützellinden, en þjálfari liðsins vill gjarnan halda henni. Gerðu forráðamenn TV Lützellinden Dagnýju tilboð í gær en hún mun ekki vera mjög ginnkeypt fyrir að leika í 3. deildinni. Dagný Skúladóttir með tilboð frá TuS Weibern FH og Everton hafa náð samkomulagi um að Bjarni Þór Viðarsson, drengjalandsliðs- maður í knattspyrnu, gangi til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið, en eins og áður hefur komið fram, gerði Everton Bjarna tilboð fyrir skömmu. Nú er verið að vinna í samn- ingagerð Bjarna Þórs við Everton og er reiknað með að hann haldi til Liverpool í næstu viku – fari í læknisskoðun og skrifi undir samning, ef hann stenst læknisskoð- un. Eftir áreiðanlegum heimildum Morgun- blaðsins liggur þriggja ára samningur tilbú- inn á Goodison Park. Bjarni Þór er 16 ára og spilaði 9 af 10 leikjum drengjalandsliðs- ins 2003, sem komst í milliriðil Evrópu- keppninnar, og hann er áfram gjaldgengur í liðið á þessu ári. Bjarni Þór er bróðir Arn- ars Þórs, fyrirliða Lokeren, og Davíðs Þórs, Lilleström. Þeir eru synir Viðars Halldórs- sonar, fyrrverandi landsliðsmanns úr FH. Bjarni Þór fer til Everton Glæsilegur leikkafli Hauka í byrj-un síðari hálfleiks var vendi- punktur leiksins. Á fyrstu 15 mín- útum leiksins skoruðu meistararn- ir níu mörk gegn að- eins einu frá Val og eftir það var aðeins formsatriði að ljúka leiknum, nokkuð sem fáum datt í hug þegar flautað var til leikhlés. Valsmenn höfðu tveggja marka forskot eftir fyrri hálfleikinn, 13:11, hálfleiks sem helst verður minnst vegna frábærrar frammistöðu mark- varðanna Pálmars Péturssonar og Birkis Ívars Guðmundssonar. Hvað eftir annað vörðu þeir meistaralega og það mátt ekki á milli sjá hver hafði betur. Birkir hélt hins vegar uppteknum hætti í síðari hálfleik og undirstrikaði að hann er besti mark- vörður landsins um þessar mundir. Valsmenn sýndu heldur betur á sér klærnar í fyrri hálfleik. 3:2:1 vörn þeirra var afar öflug og Pálmar varði hvað eftir annað meistaralega fyrir aftan hana. Ásgeir Örn Hall- grímsson hóf leikinn af sama krafti og hann gerði á Ásvöllum á sunnu- daginn. Þessi frábæri leikmaður, sem verður betri með hverjum leikn- um, skoraði sex af átta fyrstu mörk- um Haukanna og aðeins hann og Ro- bertas Pauzuolis komust á blað fyrstu 20 mínúturnar í leiknum. Sóknarmönnum Hauka fyrir utan Ásgeir gekk illa að finna glufur á vörn Vals og Valsmenn höfðu ágæt tök á leiknum. Þeir komust í 7:4 en á þessum kafla gekk Haukunum flest í mót og þeir misnotuðu til að mynda sjö sóknir í röð. Haukum tókst að jafna, 8:8, en Valsmenn, með Brend- an Þorvaldsson í fararbroddi, náðu yfirhöndinni á ný áður en hálfleik- urinn var allur, en Brendan skoraði fimm mörk í hálfleiknum og þar af komu fjögur af vítalínunni. Fyrri hálfleikurinn einkenndist hins vegar af miklu óðagoti og mistökum á báða bóga. Líklega hefur Páll Ólafsson þjálf- ari Hauka sagt vel valin orð við læri- sveina sína því þeir mættu gífurlega einbeittir til leiks í síðari hálfleik. Þeir gáfu tóninn með því að skora þrjú fyrstu mörk hálfleiksins og hafi vörn Valsmanna verið öflug framan af fyrri hálfleik þá komst hún ekkert í líkingu við varnarmúr Haukanna fyrsta stundarfjórðunginn í síðari hálfleik. Valsmenn réðu ekkert við flata og afar hreyfanlega vörn Hafn- firðinganna og Birkir Ívar hélt áfram að verja eins og berserkur. Haukar skoruðu hvert markið á fæt- ur öðru, mörg hver eftir hraðaupp- hlaup og ekki bætti úr skák fyrir Valsmenn að þeir misstu tvo menn útaf með stuttu millibili. Haukar komust í 21:15 og eftir það var ekki aftur snúið fyrir meistaraliðið þó svo að smá fjörkippur hafi hlaupið í Vals- menn þegar þeim tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk, 26:23., þremur og hálfri mínútu fyrir leiks- lok. Haukarnir sýndu mátt sinn og megin og áttu sviðið lokamínútur leiksins og það var vel við hæfi að Ás- geir Örn Hallgrímsson ætti lokaorð- ið þegar hann skoraði sitt 10. mark og það sirkusmark. Haukar hafa lagt Valsmenn í tví- gang að velli með sannfærandi hætti og ekki eru nein teikn á lofti að bik- arinn hverfi frá Ásvöllum þetta árið. Haukarnir eru komnir með níu fing- ur á bikarinn og draumur þeirra er að hampa honum fyrir framan dygga stuðningsmenn sína á Ásvöllum ann- að kvöld. Frábær markvarsla Birkis Ívars ásamt firnasterkri vörn gerði líklega útslagið í rimmu liðanna í gærkvöld og þá var þáttur Ásgeirs Arnar afar stór en vinstri handar skyttan unga hélt Haukaliðinu á floti í sóknarleiknum lengi framan af leik. Haukarnir létu aldrei slá sig út af laginu þótt á móti blési framan af leik. Þeir stöppuðu í sig stálinu og með frábærri liðsheild afgreiddu þeir afmælisbarnið á Hlíðarenda af miklu öryggi. Pálmar Pétursson og Brendan Þorvaldsson stóðu upp úr í liði Vals en það sem varð þeim að falli að þessu sinni var hversu margir af lyk- ilmönnum brugðust. Markús Máni var afar mistækur og Heimir Örn Árnason náði sér aldrei á strik frek- ar en aðrir af útileikmönnum liðsins. Greinilegt er að úthaldið er farið að bresta í herbúðum Vals ásamt því að margir leikmanna liðsins ganga ekki heilir til skógar en það er ekki væn- legt gegn svo sterku liði og Haukar hafa á að skipa. Engin afmælisgjöf til stóra bróður HAUKAR gáfu stóra bróður í Val enga afmælisgjöf þegar bræðra- félögin, bæði stofnuð af séra Friðriki Friðrikssyni, áttust við á 93 ára afmæli Valsmanna á Hlíðarenda í öðrum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Haukarnir fóru á kostum í síðari hálfleik og uppskáru öruggan sex marka sigur, 29:23, og mið- að við tvo fyrstu leiki liðanna bendir ýmislegt til þess að Haukar verði krýndir Íslandsmeistarar annað árið í röð á Ásvöllum annað kvöld. Morgunblaðið/ÞÖK Stuðningsmenn Hauka fjölmenntu á Hlíðarenda í gær til að hvetja sína menn til dáða eins og glögglega má sjá. Guðmundur Hilmarsson skrifar   # 01 2(0 3 1  3 3  #   1 6 =  4 5 ) 6 7 ) ) 6 5 5 5 ) ) 6 =  4  3 '$ '#  "* "+ = 75 +8 7* ' -'   '' '*  "+ "+  +9 5) 8* 3                Birkir Ívar Guðmundsson, Haukum 21 (þar af sjö aftur til mótherja): 11 (4) langskot, 3 (1) af línu, 5 (1) úr horni, 2 (1) eftir hraðaupphlaup. Pálmar Pétursson, Val 20 (þar af 6 aftur til mótherja): 8 (2) af línu, 4 (1) langskot, 4 (1) úr horni, 2 (1) eftir hraðaupp- hlaup, 2 eftir gegnumbrot. Þannig vörðu þeir Vilhjálmur til Vals VILHJÁLMUR Halldórsson, handknattleiksmaður, skrif- aði í gær undir 2ja ára samn- ing við Val. Vilhjálmur, sem er 22 ára gamall, hefur leikið allan sinn feril með Stjörn- unni en þar er á ferð mikil skytta sem mörg lið voru á höttunum eftir, þar á meðal Fram og ÍR. „Um leið og það var orðið ljóst að Markús Máni færi frá okkur þá fórum við á stúfana til að finna arftaka hans og Vilhjálmur kom strax upp í hugann. Við væntum mikils af honum og teljum að hann geti fyllt skarð Markúsar,“ sagði Haraldur Daði Ragn- arsson, formaður handknatt- leiksdeildar Vals, við Morg- unblaðið í gær. Haraldur sagði að Vals- menn myndu halda sama mannskap á næsta tímabili og þá yrði Óskar Bjarni Ósk- arsson áfram þjálfari liðsins en Valsmenn hafa tekið stefnuna á að spila í Evrópu- keppni á næsta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.